Vikan - 19.04.1990, Blaðsíða 60
TEXTI: ANNATOHER
Nú er aö hefja göngu
slna á Stöð 2 ný þátta-
röð sem nefnist Séra
Dowling. Þættirnir verða á
dagskrá á laugardagskvöldum
I sumar. Þeir fjalla um séra
Dowling sem kemst upp á lag
með að leysa morðgátur.
Hann nýtur aðstoðar sam-
starfskonu sinnar, nunnunnar
Steve sem gengur undir nafn-
inu „systir Steve“. Þrátt fyrir
sakleysislegt útlit er hún hinn
mesti bragðarefur og gæti
þess vegna verið vitorðsmað-
ur allra glæpamannanna. Á
einhvern yfirnáttúrlegan hátt
tekst þeim skötuhjúum að
finna sönnunargögn sem
leysa gáturnar, svo jafnvel lög-
regluna grunar að „himnesk
öfl" standi með þeim.
Tom Bosley og Tracy Nelson í hlutverkum séra Dowlings og systur Steve. Saman tekst þeim að
leysa gátur svo snilldarlega að jafnvel lögregluna grunar að „himnesk öfl“ standi þar að baki.
/
DOWLING
Tom Bosley fer með hlut-
verk fööur Dowling. Flestir
þekkja hann úr þáttunum
Morðgátu þar sem hann leikur
hinn góðlega lögreglustjóra
Tupper. Bosley er borinn og
barnfæddur í Ohicago þar
sem þættirnir eiga að gerast.
Hann hóf feril sinn í litlu leik-
húsi skömmu eftir aö hann
lauk menntaskólanámi. Bosl-
ey eyddi næstu árum í upp-
færslum á Broadway og það
varð til þess að hann vann
stóran leiksigur í söngleiknum
Fiorello! árið 1959. Meðal ann-
ars fékk hann hin vinsælu og
eftirsóttu Tony-verðlaun.
Eftir sigurgöngu á Broad-
way og eftir aö hafa sannað
ótvíræða hæfileika sem grín-
leikari hóf hann f auknum
mæli að leika í sjónvarpsþátt-
um. Hann varð einn af fasta-
leikurunum hjá NBC sjón-
varpsstöðinni sem framleiðir
einmitt þættina um séra
Dowling. Bosley lék mág
Debbie Reynolds í vikulegu
þáttum hennar þar sem Dean
Martin fór einnig með hlutverk.
Aörir þekktir þættir, þar sem
hann hefur komið við sögu,
eru Bonanza, Love, American
Style og hinn ógleymanlegi
Get Smart.
MORÐSÖGUÞÆTTIR
Tracy Nelson, „systir
Steve“, kynntist snemma
frægð og frama. Hún er fædd í
Santa Monica í Kaliforníuríki
og fjölskylda hennar hefur
löngum staðið í sviðsljósinu.
Faðir hennar var söngvarinn
sálugi, Ricky Nelson. Hún er
barnabarn grínparsins Ozzie
og Harriet sem urðu fyrst fræg
af útvarpsþáttum sínum og
síðan sjónvarpsþáttum. Nel-
son hefur leikið í grínþáttunum
Square Pegs og spennuþátt-
unum Glitter. Hún lék vand-
ræðaungling í myndinni Down
and out in Beverly Hills.
Nelson segist vera mjög
spennt fyrir að takast á við
hlutverkið í nýju þáttaröðinni
þar sem hún leikur þessa
blíðu en úrræðagóðu nunnu
sem oft þarf að vinna undir
fölsku flaggi til að ná söku-
dólgnum. Nelson er gift Will-
iam R. Moses sem leikur unga
lögfræðinginn, Ken Malansky,
á móti Raymond Barr í Perry
Mason Specials. Hann leikur
einnig gestahlutverk í einum
þættinum um séra Dowling.
Mary Wickes leikur forvitna
ráðskonu. Hún er gamalkunn-
ugt andlit úr mörgum góðum
grínmyndum fyrri ára. Allir að-
dáendur sígildra mynda eins
og The Man Who Came to
Dinner, Music Man, Now,
Voyage og White Christmas
með Bing Crosby koma til með
að þekkja rödd hennar og and-
lit strax.
Framleiöandi þáttanna er
ekki með öllu óþekktur þar
sem hann framleiðir Matlock-
þættina. Hann er sannfærður
um að sjónvarpsþættir, þar
sem þekktir leikarar fara með
aðalhlutverkin, séu það sem
fólkið vill. Hann er virtur á sínu
sviði svo þáttaröðin um séra
Dowling ætti ekki aö svíkja
neinn.