Vikan - 14.06.1990, Page 9
icient" eins og hann orðar það sjálfur. Eigin-
kona hans er heima við og annast heimilið og
uppeldi barnanna sem eru strákur og stelpa á
unglingsaldri en Ólöf, eða Lúlla eins og hún er
kölluð, er talsvert yngri en Hlöðver sem kvænt-
ist eftir að hann var frílega búinn að slíta
barnsskónum og hafði þá aldrei verið við
kvenmann kenndur lengur en einn sólarhring í
einu svo notuð séu hans eigin orð.
Hlöðver er það kappsmál að konan sé
heima og fari ekki að þvælast út á vinnumark-
aðinn eins og kvenfrelsislistakerlingarnar
prédika, en svoleiðis raus er eitur í beinum
Hlölla. „Konan á að vera heima og sjá um allt
heila skítti-mojið eins og það leggur sig,“ segir
Hlöðver en það virðist einungis vera hans
skoðun í orði kveðnu því hann stjórnar heimil-
inu harðri hendi í gegnum síma og skipuleggur
matseðil dagsins fyrir þá sem heima sitja, þó
svo hann fari aldrei heim í mat í hádeginu
enda finnst honum Lúlla afleitur kokkur.
„ÉG GERI GÓÐAN BISSNISS“
að reyndist auðsótt mál að fá viðtal við
Hlölla í Hlöllabúð eða, svo vitnað sé f
hans eigin orð: „Viðtal við heimilisblaðið Vik-
una? Anytime, vinur minn - anytime. Fáðu þér
sveskju." Verslun Hlöðvers er ein af fáum
ósviknum „krambúðum" sem eftir eru í
Fteykjavík, þessi litla hlýlega kjörbúð á horninu
þar sem hægt er að fá allt frá þurrkuðum epl-
um og apríkósum upp í þvottaklemmur og
vinnuvettlinga að ógleymdu úrvals dönsku
munntóbaki, sem Hlöðver flytur sjálfur inn og
segir að sé úrvals „ekta klassískt skro“. Hlöð-
ver er á þönum um verslunina og inni á lager
þessa stuttu stund sem við stöldrum við í
Hlöllabúð enda í ýmsu að snúast hjá kaup-
manni sem þjónar heilu gamalgrónu hverfi í
vesturbænum. „Ekki þar fyrir, drengur minn,
að ég er nú ekki einn í þessari paradís, ó nei,“
segir Hlölli og grettir sig. „Þarna hinum megin
aðeins neðar í götunni verslar hann Kristófer í
Kjallarabúðinni, ákaflega ómerkilegur pappír
og frægur gyðingur, but I couldn't care less, ég
geri góðan bissniss þó svo allt sé að fara til
fjandans í þessu þjóðfélagi, allt heila trumsið
eins og það leggur sig. Fáið ykkur kúlur, alveg
eins og þiö viljið."
Hlölla í Hlöllabúð fellur ekki verk úr hendi
meðan á viðtalinu stendur og við eltum hann
inn á lager þar sem hann tekur að umstafla
klósettrúllum. „Time is money, drengir mínir,
ekki það sko - það er gaman að tala við ykkur
og allt það en við skulum drífa í þessu viðtals-
kjaftæði áður en kerlingarnar fara að flykkjast
hingað inn og traffíkin byrjar fyrir alvöru. Ég get
náttúrlega ekki verið í einhverju blaðaviðtali í
rólegheitunum eins og ráðherra í allan dag,
sko the show must go on,“ segir Hlöðver og
setur brilljantín í hárið á sér.
GAT KLÆMST REIPRENNANDI
Á ÞREM ÓLÍKUM TUNGUMÁLUM
Hlöðver Hlöðversson, kaupmaður í Hlölla-
búð, fæddist og ólst upp vestur í Bolungarvík.
Hann lauk barnaskólaprófi og fór ungur á sjó-
inn og sigldi lengi á frökturum heimshorna á
milli og þar komu fljótlega í Ijós margvíslegir
hæfileikar hans. Til aö mynda var hann óvenju
fljótur að tileinka sér framandi þjóðtungur.
„Hann Hlölli gat klæmst reiprennandi á sjö
ólíkum tungumálum auk íslenskunnar," segir
Hróðmar Sveinsson, fyrrverandi bryti, en þeir
Hlöðver sigldu lengi saman á millilandaskip-
um. „Hann var ótrúlega klókur og stundum allt
að því yfirskilvitlega snöggur að leysa úr erfið-
um málum í erlendum höfnum. Þó átti þetta
einstaka tungumálaséní það til að gera mistök
eins og þegar við urðum eggjalausir í Póllandi
og Hlölli bauðst til að redda málunum. Hann
fór í land að morgni og kom svo aftur seint um
kvöldið, ákaflega mikið kenndur, með pólska
kennslukonu upp á arminn og sagðist hafa
samið við eggjabónda uppi í sveit um að
senda okkur 150 ósvikin pólsk alifuglaegg.
Morguninn eftir birtist svo þessi bóndi með 150
akfeitar veðhlaupahænur sem við neyddumst
til að kaupa af honum fyrir dollara. Eftir tveggja
mánaða siglingu og hænsnakjöt í hvert mál
var Hlöðver Hlöðversson tungumálaspesíalisti
ekki vinsælasti maðurinn um borð eins og
nærri má geta enda var þetta síðasti túrinn
sem hann sigldi með okkur og sáum við hann
aldrei eftir þetta. Næsta sem af honum fréttist
var að hann væri orðinn kaupmaður í Reykja-
vík og þótti okkur skipverjum það afar grun-
samlegt."
Aðspurður um ástæðuna fyrir því að hann
gerðist kaupmaður segir Hlöðver að hann hafi
eitt sinn verið staddur í Póllandi og þar hafi
hann fyrir tilviljun getað útvegaö innfæddum
„Ótrúleg nánös þetta skítseiði“
- segir Kristófer Schroeder, kaupmaður í Kjallarabúðinni
Hlöllabúð er sannkölluð krambúð af gamla skólanum, sem Hlölli hefur rekið í þónokkuð
mörg ár eða allar götur frá því hann hætti á sjónum og Hannes á Horninu hætti að versla
fyrir aldurs sakir og seldi Hlölla Hornhúsið. Verslunin er afar lítil og þröng en þrátt fyrir
hæfilega lítið og hugmyndasnautt vöruúrval ægir þar saman hinum aðskiljanlegasta varn-
ingi í mikilli óreiðu vægast sagt. Mest ber á stórum stöflum af tékkneskum toilettcrépe-
pappir, sem Hlöðver fékk fyrir slikk frá heildsalanum bróður sínum fyrir nokkrum árum og
treglega hefur gengið að koma út. Þegar Hlölli keypti af Hannesi gamla, sem hafði verslað
á Horninu frá því í lok fyrri heimsstyrjaldarinnar, gerði hann eins litlar breytingar innan og
utan dyra og hann taldi sig geta mögulega komist upp með. „Það eru nú ekki húsfriðunar-
mál eða þjóðminjavarsla sem vakir fyrir honum Hlöðver með því að breyta engu i versl-
uninni," segir Kristófer Schroeder, kaupmaður í Kjallarabúðinni. „Hann er bara einfald-
lega svo mikil ótrúleg nánös þetta skítseiði að hann tímir ekki að breyta neinu. Einu nýj-
ungarnar hjá honum síðan 1953 er nýjasta módel af rammgerðasta peningakassa sem
fæst á markaðnum og hefur hann endurnýjað kassann reglulega á tveggja ára fresti síðan
brotist var inn í mjólkurbúðina hérna á þarnæstu götu fyrir 14 árum síðan,“ segir Kristófer
og bætir við óprenthæfum munnsöfnuði um hjartalag og innræti Hlöðvers í Hlöllabúð.
kjúklingabónda þrælmögnuð viðskipti og í
staðinn hafi bóndinn komið sér í sambönd þar
ytra er urðu þess valdandi að hann fékk einka-
umboð á íslandi fyrir pólskar kartöflur og
vodka.
FLESTIR BERA HONUM
ALLSÆMILEGGA SÖGUNA
Fiestir viðskiptavina Hlöðvers í Hlöllabúð
bera honum allsæmilega söguna. „Hann má
eiga það, hann Hlölli, að hann skrifar hjá
manni von úr viti og dæmi eru til um að hann
hafi haft þolinmæði gagnvart ógreiddum reikn-
ingum allt upp í heilt ár,“ segir öldruð kona
sem er búin að vera í viðskiptareikningi hjá
Hlölla frá því hann hóf rekstur í Hlöllabúð. „Þó
svo hann Hlöðver eigi þaö til að lauma inn á
reikninginn manns fáeinum baunadósum eða
nokkrum dúsínum af kornflekspökkum, sem
maður hefur aldrei tekið út, þá er það ekkert til
að tala um og svo sem bara sanngjarnir vextir
þegar maður kemst upp með að gera ekki upp
reikninginn sinn svo mánuðum skiptir."
Einn af fyrrverandi viðskiptavinum Hlölla í
Hlöllabúð, Ebeneser Jónsson eftirlitsmaður,
tekur í sama streng en með öðrum formerkjum
þó. „Hlöðver sýndi oft fádæma þolinmæði
gagnvart óuppgerðum matarúttektum í versl-
uninni en hann jafnaði líka metin svo um mun-
aði,“ sagði Ebeneser og sýndi okkur skjálf-
hentur gamla úttektarnótu úr Hlöllabúð máli
sínu til sönnunar. „Látum vera þó hann bætti
stundum á reikninginn minn smáræði á borð
við naglalakk eða kinnalit, sem ég hafði auðvit-
að aldrei tekið út, en þegar ég las á reikningn-
um mínum að ég hefði tekið út randsaumuð
rauðköflótt jakkaföt með uppábroti sagði ég
upp reikningnum mínum í Hlöllabúð og fór að
versla hjá honum Kristófer í Kjallarabúðinni,"
sagði Ebeneser að lokum.
Hlöðver segir sjálfur að viðskiptin hafi aldrei
verið blómlegri en einmitt nú og fastir kúnnar
bætist við á hverjum einasta degi. „Þeir sem
einu sinni detta hingað inn fyrir tilviljun verða
undantekningalaust fastir kúnnar hjá mér og
margir fram í andlátið. Sem dæmi um tryggð
viðskiptavina við Hlöllabúð eru margir ef ekki
bara flestir mínir kúnnar búsettir uppi í Grafar-
vogi og sumir uppi á Kjalarnesi, fólk sem vill
ekki sjá að versla annars staðar enda er þetta
eins og þess annað heimili. Fólk kemur hingað
til þess að hittast og spjalla um daginn og
veginn. Sumir koma bara til þess að spyrja um
köttinn sinn eða eiginmanninn og versla aldrei
neitt en geta ekki afborið heilan dag án þess
að reka inn nefið,“ segir Hlölli og rekur gamlan
róna með harðri hendi út úr búðinni.
12. TBL, 1990 VIKAN 9