Vikan


Vikan - 14.06.1990, Side 47

Vikan - 14.06.1990, Side 47
Á rannsóknarstofu Helenu Rubinstein tókst að finna efni sem er nægilega öflugt til aö „pumpa upp“ húöina, ýta hrukkunum þannig upp í átt að yfirborði húðarinnar og uppræta hrukkurnar á þann hátt. ÞRÍHLIÐA VERKUN „Vegna þess að þetta krem ræðst gegn hrukkunum við upptök þeirra hefur það þrí- hliða verkun," segir Sólrún. „[ fyrsta lagi er að nefna tafar- lausan árangur. Frá þeim tíma sem kremið er borið á húðina verður hún mjúk viðkomu klukkustundum saman. Og þó álag sé mikið yfir daginn helst húðin fersk, línur verða mýkri og útlitið unglegra. Þá er að nefna djúpvirknina en dagleg notkun tryggir virkni kremsins. Dag eftir dag minnka hrukkur og fínar línur hverfa jafnframt því sem myndun nýrra hrukka seinkar." í þriðja lagi vildi Sólrún nefna langtímaáhrifin. „Prófanir á rannsóknarstofum sýna að kremið heldur áfram að vinna í allt að einn mánuð eftir að notkun þess er hætt.“ FLÓKNAR TILRAUNIR Áður en þetta krem leit dags- ins Ijós voru margar mikilvæg- ar tilraunir gerðar. Þær voru framkvæmdar með nýjustu tækni og gerðu Helenu Rubin- stein kleift að sannreyna ræki- lega virkni efnanna. Fyrst er að nefna svonefnt lífljómapróf og síðan nákvæmar rann- sóknir sem voru gerðar til að mæla þykkt húðarinnar en þær leiddu í Ijós greinilega aukningu á þykkt húðar við notkun kremsins. Að lokum var notuð mjög þróuð tækni til að mæla virkni kremsins, svokölluð skugga- tækni, sem er alveg ný af nál- inni og sýnir hrukkur grafískt. „Beinagrind" hrukkunnar er mæld og reyndist hún minni við notkun Skin Life TPA. Kremið hefur sérstaka áferð, það er ríkt en samt létt og hef- ur mildan ilm. Það hverfur vel inn í húðina, bókstaflega bráðnar inn í hana, og vekur vellíðan. Skin Life TPA er krem sem hentar vel á morgnana og/eða á kvöldin. Það er óháð húðteg- und, er sérlega mjúkt og bráðnar inn í húðina án þess að skilja eftir sig merki á henni. Það hentar vel undir farða og auðveldar ásetningu hans og hann helst betur. Einnig hent- ar það sem næturkrem. Krem- ið er borið á hreina húðina á andliti og hálsi. Þu ferð ekkert! Verður frekar heima og gerir við símann!!! Komdu sæll og blessaður. Hvað segir þú? Fá mig í aukavinnu!! Já, já, einmitt! Ég kem til þín eins og skot. Ææ! Ég hafði næstum gleymt að hringja i Jóa

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.