Vikan - 26.07.1990, Blaðsíða 17
allt veltist seldust plötur hennar jafnt og þétt og
nýjustu myndbönd hennar voru viðburður fyrir
hverja sjónvarpsstöð. Þeir höfðu alltaf haft
jafngaman af að koma fólki á óvart og kvöld
nokkurt kom öll hljómsveitin saman á lítt
þekktri bjórknæpu til að spila nokkur af fræg-
ustu lögum sínum. Þetta var ekkert auglýst svo
að knæpugestum fannst sem þeir hefðu unnið
stóra vinninginn í happdrættinu enda varö allt
brjálað og svitinn draup úr lofti knæpunnar.
Sama ár eyddu Mick Jagger og David Bowie
hálfum sólarhring í að gera myndband með
laginu Dancing in the Street og flestir reiknuðu
með að Rolling Stones væru einfaldlega
hættir. Mick og Keith voru farnir að fara of-
boðslega í taugarnar hvor á öðrum og fjöldi
tímarita gerði sér mat úr heiftarlegum rifrildum
þeirra. Þeir virtust sammála um að þeir kæmu
aldrei til með aö spila saman aftur en samt
sagðist Keith myndu kála Mick ef hann léti sér
til hugar koma að hefja sólóferil. Seinna sagði
hann reyndar að það yröi erfiðara að skilja við
Mick en fastheldnustu eiginkonu þar sem þeir
hefðu skapað svo margt saman á einum aldar-
fjórðungi að það tæki annan aldarfjórðung að
ganga frá því öllu.
Ron Wood eins og Sebastian Kriiger sér hann.
Sjálfur er Wood liötækur málari.
Keith Richard mun hafa hugleitt tilboð frá íslenskum aðilum um að koma fram á sólóferðalagi sínu hér
um árið. Skyldi honum takast að fá Stones til íslands núna? í fyrra spurði einn hjálparkokka Keith
hvenær Stones kæmu til íslands og fékk svarið: „Bráðum".
Keith undirritaði samning um gerð sólóplötu
en Mick lét sér fátt um finnast. Keith vann að
kvikmynd um og með Chuck Berry og Mick
sendi frá sér plötuna Let’s Work. Svo, öllum aö
óvörum, hittust Mick og Keith í New York 23.
ágúst 1988 til að ræða málin. Lítið virtist koma
út úr þeim viðræðum því að skömmu síðar
kom fyrsta sólóplata Keiths, Talk is Cheap, á
markaðinn. Hann fylgdi henni eftir með mis-
heppnaðri hljómleikaferð. Til dæmis voru inn-
an við þúsund áhorfendur viðstaddir í Mem-
phis í Tennessee. Seint í janúar 1988 sættust
gömlu kempurnar, Keith og Mick, loksins og
fóru til Barbados til að semja nokkur lög. Út-
koman varð svo platan Steel Wheels sem hef-
ur selst f milljónum eintaka og í kjölfarið kom
mesta hljómleikaferð sem ein hljómsveit hefur
nokkurn tíma farið. Hún hófst í borginni Fíla-
delfíu í Bandaríkjunum í ágústlok í fyrra en
það er kannski tilviljun að grískættaða orðið
Fíladelffa þýðir bróðurkærleikur.
EVRÓPA EINS OG
HRÆÐILEG MARTRÖÐ
The Rolling Stones eru sem sagt komnir á
fulla ferð einu sinni enn og hafa þeyst um
Evrópu þvera og endilanga undanfariö. Mick
Jagger var að vísu ekkert áfjáður í að fara í
Evrópuferð eftir móttökurnar í Ameríku.
„Evrópa er eins og hræðileg martröð miðað
við Ameríku," sagði hann fyrir nokkrum vikum
og bætti við: „Það er ekki bara spurningin um
peninga. Þetta er miklu erfiðara í alla staði;
endalaust landamæravesen og rosaleg tolla-
vandræði. Mér er meinilla við þetta umstang.
Ameríka er eins og A en allt annað er eins og
B - og þá er aldrei eins gott að búa með B.
Þetta er eins og að hafa leigt sér Ferrari og
þurfa svo að skrönglast í Hondu daginn eftir.
Það er ekki gott mál ef maður verður að láta
sig hafa það.“
Keith Richards er hins vegar alltaf til í að
koma fram opinberlega. Það er hans líf og
yndi. Hann veit að ísland er á landakortinu og
hefur meira að segja haft á orði að hann geti
vel hugsað sér aö koma hingað - en þar sem
félagar hans í Rollingunum eru mjög ólíkir inn-
byrðis er ómögulegt að spá nokkru um það að
svo stöddu. q □
LEIKALYSINGU I STIÐASTA
nu giaui, | gvu oiuuuu. __ | |
PQgjCTGLw
15TBL. 1990 VIKAN 17