Vikan - 26.07.1990, Blaðsíða 63
I
ingu á því hvers vegna þið
hafið náð svona langt?
„Það er vegna þess að við
erum heiðarleg, vegna þess
aö við erum frönsk, vinnum
samkvæmt sterkum tónlistar-
hefðum og líka vegna þess að
tónlist okkar er tónlist framtíð-
arinnar þar sem við erum að
brúa hin ýmsu bil milli ólíkra
tónlistartegunda. Fólk úröllum
áttum getur fundið eitthvað við
sitt hæfi í tónlistinni okkar."
- Textarnir ykkar hafa
vakið athygli, þykja fyndnir
og kaldhæðnir. Álítið þið að
húmor sé það mikilvægasta
í daglegu Iffi?
„Nei, kannski ekki það mikil-
vægasta en húmor og kald-
hæðni er góð leið til þess að
fjalla um alvarleg málefni. Þeir
sem nota til dæmis ofbeldi eru
á villigötum. Húmor er hins
vegar okkar tæki til þess aö
fjalla um lífið og tilveruna.
Þetta er frönsk hefð - að fjalla
um alvarlega hluti á gaman-
saman hátt.“
- Kynþáttahatur er Ifka
málefni sem þið fjallið um.
Þið standið mjög nálægt
slíkum málum, er það ekki?
„Jú, enda erum við af mörg-
um þjóðernum og erum þvf
hluti af þessu. Og þaö er mikið
kynþáttahatur í París, alltof
mikið af því eins og víðast
hvar í heiminum."
- í París mætast ólíkar
tónlistastefnur og það hefur
verið sagt að þar séu eins
konar menningarlegar
krossgötur. Geturðu sagt
mér eitthvað frá þessu?
„í kringum 1980 fór eitthvað
að gerast í tónlistarl ífinu i
Frakklandi sem var öðruvísi
en þessi hefðbundna væmna
franska popptónlist. Franskir
tónlistarmenn uppgötvuöu að
það var til önnur tónlist en
gamla vellan. Þremurtil fjórum
árum síðar fóru tónlistarmenn
víða að úr Afríku, sem voru í
borginni, að gefa út snældur
og hljómplötur. Þetta var önn-
ur bylgja frumlegrar tónlistar
og nýrra hluta. Tónlistin sem
þarna ruddist inn á markaðinn
var geysilega fjölbreytt. f þess-
ari hringiðu þróaðist okkar
tónlist og áhrifin koma úr öllu
sem við lífum og hrærumst í.“
- Er ný plata á leiðinni frá
Les Négresses Vertes?
„Já, við förum að vinna að
henni í september. Við verð-
um á hljómleikaferðum fram í
byrjun ágúst og tökum okkur
þá mánaðar frí. Þá fyrst getum
við fariö að semja og leggja
línur."
- Hefurðu einhverja hug-
mynd um hvernig platan
verður?
„Hún verður á svipuðum
nótum en betur spiluð. Við vor-
um nefnilega allir byrjendur
þegar við spiluðum inn á
MLAH en okkur hefur farið
mikið fram.“
- Hvaða aðferðir notið
þið þegar þið semjið tónlist
ykkar?
„Það má eiginlega líkja því
við matseld, eldamennsku.
Það verður að ákveða hvort á
að hafa fisk eða kjöt, hvernig
fisk eða kjöt og síöan kemur
grænmetið, kryddið og vínið til
að gera góða sósu. Út úr
þessu kemur lag! Yfirleitt byrj-
ar þetta með einni grunnhug-
mynd sem síðan er unnið út
frá. Við erum þrír til fjórir sem
semjum tónlistina en Helno
söngvari semur textana. Loka-
útkomuna ákveður svo hljóm-
sveitin sjálf." .
Frá útkomu breiðskífunnar
MLAH, sem selst hefur í um
fjögur hundruð þúsund eintök-
um, hefur hljómsveitin verið
mjög upptekin og spilað um
alla Evrópu, að Spáni frátöld-
um, Japan, Ástralíu og í
Bandaríkjunum. Mathias
sagði að engin þjóð, engin
borg væri sambærileg við aðra
varðandi viðtökur við tónlist-
inni. Þau væru heldur aldrei
eins, fólk væri í mismunandi
skapi. „Við erum með „lifandi"
tónlist, þess vegna er hún
aldrei eins frá degi til dags.“
Hljómsveitin er um þessar
Frh. á næstu opnu
Tvöfaldur
raki
ACO Fuktlotion!
Með og án ilmefna.
Fæst aðeins í apótekinu.
ACO FUKTLOTION gefur
húð þinni tvö náttúruleg
rakabindiefni.
Finndu sjálf hve ACO Fukt-
lotion smýgur hratt inn í húð-
ina án þess að klægi eða svíði
undan og hve húðin verður
mjúk.
ACO FUKTLOTION ilmar
einnig þægilega.
Heldurðu að þú finnir betri
húðmjólk?
Hún er notaleg fyrir allan
líkamann.
15 TBL. 1990 VIKAN 63