Vikan


Vikan - 26.07.1990, Blaðsíða 64

Vikan - 26.07.1990, Blaðsíða 64
c^ á c^ co Z O co ZD Cí co OE Cí o z co LOUIE LOUIE - THE STATE l’M IN Louie Louie hefur skotiö upp á stjörnuhimininn meö svip- uðum hraöa og Kevin Paige og reyndar eru þessir kappar um margt mjög líkir. Báðir flytja þeir áheyrilegt og vel sþilað dægurpopþ og semja mestallt efniö sjálfir. Louie Louie vakti á sér athygli hér á landi meö laginu Sittin' in the Lap of Luxury sem komst alla leiö i þriðja sæti íslenska listans strax í annarri viku. Platan The State l’m in er hressileg og skemmtileg og mjög í anda lagsins sem áöur er getið. Reyndar eru tvær mjög áheyrilegar ball- ööur á þlötunni og mér segir svo hugur að aö minnsta kosti önnur eigi eftir aö ná vinsældum. Titillag þlötunnar er þegar farið aö heyrast í út- varpi og þau eiga eftir aö verða fleiri. The State l’m in er skemmtileg plata, vel unn- in og áheyrileg í alla staöi. ★ ★★Vi2 HOTHOUSE FLOWERS - HOME Þessi írska hljómsveit vakti fyrst á sér athygli þegar Eurovisionkeþpnin var haldin á (rlandi. Þá kom hún fram í „hléinu“ og stal senunni. Leiöin hefur veriö upp á viö allt frá því og platan People frá '88 þykir mjög góö. Beöiö var eftir nýju þlötunni með mikilli eftirvæntingu og þegar Home kom á markaö fyrir skömmu var hún rifin út úr þlötubúðum. Hothouse Flow- ers þykja hafa þroskast mikiö á þessum tveimur árum en þrátt fyrir að þeir séu breyttir hafa þeir ennþá sín sérein- kenni, þennan sérstaka írska þjóölagahljóm. Fyrsta smá- skífulagiö, Give It Up, er lr íi 64 VIKAN 15 TBL. 1990 þegar komiö á fleygiferð á ís- lenska listanum og gæti eins vel endað á toþþnum. Önnur lög, sem vert er aö veita at- hygli, eru Water, ballaðan Sweet Marie sem er virkilega góð og titillagið. ★ ★★V2 MADONNA - I’M BREATHLESS Hvernig í ósköþunum fer manneskjan að þessu? Þaö viröist vera alveg sama hvaö er í tísku og hvað þykir flott, Madonna hefur allt á hreinu og virðist alltaf vera best. I’m Breathless inniheldur aö miklu leyti tónlist úr kvik- myndinni um Dick Tracy sem spáö er geysimiklum vin- sældum og tónlist í anda Dick Tracy áranna. Eitt lag- anna er þó í takt við tímann og vel það, topplagið Vogue sem hefur fariö hamförum á vinsældalistum um allan heim. Vinnslan er aö sjálf- sögðu óaðfinnanleg og ekki er undan söngnum aö kvarta. Madonna er Ma- donna og hún getur leyft sér þetta-og því ekki þaö? Plat- an er stórskemmtileg. Lagið Hanky Panky er þegar farið að gera sig líklegt til vin- sælda og þaö kæmi mér ekki á óvart þótt Now l’m Follow- ing You geröi góöa hluti. ★ ★★★ THE CHIMES - THE CHIMES Tríóiö Chimes er skiþað tveimur Skotum, Mike Peden og James Locke, sem sjá um allan hljóöfæraleik og enskri söngkonu sem heitir Pauline Henry. The Chimes vöktu heldur betur á sér athygli með endurgerð U2-lagsins I Still Haven’t Found What l’m Looking for og áttu þaö svo sannarlega skilið. Lagið er B the | chimes j ^y/i i\v^ vissulega frábært en þaö er synd aö þaö skuli þurfa svona lag til aö vekja athygli á jafnframbærilegri hljóm- sveit og Chimes í rauninni eru. Danstónlistin er líklega besta útskýringin á tónlist þeirra, góö og mjög áheyri- leg danstónlist. Heaven, True Love og 1-2-3 eru allt mjög góð lög. Platan inni- heldur einnig svokallaö „st- reet-mix” af fyrrnefndu U2- lagi og þaö er virkilega gott. Chimes fara stundum út í fullmikla sýru að mínu mati en ég er viss um aö þeir sem hafa gaman af þessari teg- und tónlistar hafa mjög gam- an af þessari plötu. ★ ★★ BIG COUNTRY - THROUGH A BIG COUNTRY Skoska hljómsveitin Big Country er án efa ein af þeim bestu. Sérstakur hljómur, sér- stakur söngur og frábærar lagasmíöar hafa skipaö henni á bekk með risum. Nýjasta platan, Peace in Our Time, þótti ekki takast alveg nógu vel en var samt ágætlega vinsæl. Trommarinn Mark Brzerski hefur sagt skilið viö félaga sína og nýr maður er sestur bak við settið. Big Country er um þessar mundir á tónleika- feröalagi en þegar því lýkur veröur farið beinustu leiö í hljóðver og tekin upp ný plata sem væntanleg er meö vorinu. Til aö stytta biðina var þessi safnplata gefin út og hún gerir sönnum Big Country-aðdáendum, sem eiga allt efni hljómsveitarinn- ar, í rauninni afar lítið gagn, þannig eru safnþlötur nú einu sinni. Öll bestu lögin eru á plötunni, In a Big Country, Wonderland, Where the Rose Is Sown, Look Away, King of Emotion og svo mætti lengi telja. Eitt nýtt lag er á þessari plötu. Það heitir Save Me og lofar svo sann- arlega góöu, frábært lag. Góö í safnið og vel það. ★ ★★★ Frh. af bls. 63 mundir aö æfa lag fyrir safn- plötu sem gefin veröur út í Bandaríkjunum vegna AIDS og fórnarlamba þeirrar skæöu veiru. Meðal þeirra sem eiga lög á þlötunni eru Prince, U2 og fleiri stórlistamenn. Varð- andi orðróm um að Les Nég- resses Vertes eigi að spila undir á næstu plötu Madonnu er ekkert til í honum. „Viö tók- um upp eitt lag sem á aö nota í kvikmynd, annaö er það ekki,“ sagði Mathias. - Nú er hljómsveitin ansi mannmörg. Hver borgar út- gerðina? Er það hljómplötu- fyrirtækið ykkar? „Nei, við erum hætt hjá Off the Track. Það slitnaði upp úr samstarfinu vegna þess aö þeir borguðu okkur ekki. Þetta gerðist aðeins tveimur dögum áöur en viö komum hingaö til lands. Við erum núna að leita [ rólegheitum aö öðru fyrirtæki og höfum fengið fjölmörg tilboö. Þetta á við um markaði utan Bandaríkjanna. Þar erum viö á samningi hjá Warner út- gáfunni til fimm ára. En við erum ekkert að flýta okkur. Lögfræöingar okkar eru þegar aö vinna aö okkar málum varðandi útgáfuréttinn á MLAH og viö bíðum þar til þau mál eru komin á hreint. Það er alveg merkilegt viö þennan bransa aö allir vilja troöa á öðrum og græða sem mest sjálfir. - Hvernig er framtíð hljómsveitarinnar að öðru leyti? Er hún björt og eruð þið bjartsýn á hana? „Já, auðvitað. Ef við værum ekki bjartsýn og jákvæð mynd- um viö sennilega bara leggjast í rúmið meö tærnar upp í loft, kveikja á sjónvarpinu og horfa á heimsmeistarakeppnina,” sagöi Mathias og hló hressi- lega aö lokum. Um kvöldið héldu hann og félagar hans í þessari stórskemmtilegu frönsku hljómsveit eftirminni- legustu tónleika sem haldnir hafa verið á Hótel (slandi. □ LES NÉGRESSES VERTES
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.