Vikan


Vikan - 26.07.1990, Page 20

Vikan - 26.07.1990, Page 20
BERTHOLT BRECHT KRÍTARHRINGURINN í AUGSBURG BERTHOLT BRECHT hefur verið kallaður „mesti leikhúsmaður aldarinnar" enda fór hann ekki troðnar slóðir á því sviði. Hann fæddist í Ausburg í Þýska- landi árið 1898 og dó f Berlín árið 1956. Þegar nasisminn tók völdin voru verk hans dæmd óhæf og hann var sviptur þýskum ríkisborgararétti. Hann flutti þá til Danmerkur, síðan til Svíþjóðar, þá til Bandaríkjanna og loks heim til Þýskalands að stríðinu loknu þar sem hann stofnaði sitt eigið leikhús. Meðal þekktustu leikverka hans eru Túskildingsóperan, Púntilla og Matti, Mutter Courage og Sweik í siðari heimsstyrjöldinni. Jk tímum þrjátíu ára stríðsins bjó sviss- w\ neskur mótmælandi, Zingli að nafni, í fríríkishöfuðstaðnum Augsburg við Lech og átti þar stórt sútunar- m \ verkstæði og skinnaverslun. Hann var kvæntur Augsborgarstúlku og áttu þau eitt barn. Þegar þeir kaþólsku nálguðust réðu vinir hans honum eindregið til að flýja. Hvort heldur að litla fjölskyldan hélt í hann eða hann vildi ekki skilja verkstæðið eftir í hers höndum gat hann ekki ráðið það við sig fyrr en um seinan að yfirgefa borgina. Hann sat þar því enn um kyrrt þegar málalið keisarans stormaði inn í borgina. Þegar rán þess hófust undir kvöldið leitaði hann fylgsnis í kjallara undir útihúsi þar sem hann geymdi jafnan litunarefnin. Svo var ráð fyrir gert að eiginkonan leitaði hælis með barnið hjá ætt- ingjum í útborginni en hún tafði brottför sína með því að láta niður klæði, sængurfatnað og skartgripi og annað sem hún hugðist taka með sér og vissi ekki fyrr en hún sá út um glugga á neðstu hæð íbúðarinnar hvar hópur soldáta keisarans ruddist inn í garðinn. Miður sín af skelfingu hljóp hún frá öllu saman bakdyra- megin út á götuna. Barnið var því að vissu leyti eitt skilið eftir inni í húsinu. Það lá í vöggu sinni og ríslaði sér við trékubb sem hékk í bandi niður úr loftinu. Ung vinnukona var þar einnig eftir og stóð og sýslaði við potta sína í eldhúsinu þegar há- reystin utan af götunni barst henni til eyrna. Hún brá sér út að glugganum og sá hvernig soldátarnir rændu og rupluðu í íbúðinni á efri hæðinni í húsinu hinum megin við götuna. Hún hraðaði sér þá inn og var í þann veginn að lyfta barninu úr vöggunni þegar barsmíðin buldi á eikarhliðinu svo undir tók í húsinu. Felmtri slegin flúði hún upp á næstu hæð. Ölvaðir soldátarnir lögðu húsið undir sig og brutu þar allt og brömluðu, laust sem fast. Þeir vissu að þar átti mótmælandi heima. En þó að þeir leituðu og færu ránshendi um allt húsið heppnaðist vinnukonunni, Anna hét hún, að leynast fyrir þeim. Soldátarnir hurfu annað, Anna læddist út úr skápnum þar sem hún hafði staðið í felum og fann meira aö segja barnið í vöggunni óskaddað. Hún tók það upp í skyndi og laumaðist út í húsagarðinn. Myrkrið var skollið á en í eldsbjarmanum af brennandi nágrannahúsi leit hún með hryllingi lík hús- bónda síns, óhugnanlega útleikið. Soldátarnir höfðu dregið hann upp úr kjallaranum og drep- ið hann. Nú fyrst gerði stúlkan sér grein fyrir í hvílíka hættu hún stofnaði sér ef hún yrði staðin að því að freista þess að koma barni mótmæl- anda undan. Var henni þungt fyrir hjarta þegar

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.