Vikan


Vikan - 26.07.1990, Page 42

Vikan - 26.07.1990, Page 42
Freddy! - Já, mamma! - Ég kem beint frá skrifstofu lög- fræðingsins og hef heldur betur stað- ið í ströngu. Erfðaskráin hans var lesin upp fyrir mig. Þegar ég giftist föður þínum kom mér ekki til hugar að hann gæti verið svona grimmur. - Ekki það? - Hann hefur arfleitt þig að öllu saman, bankanum, eignunum í Lake Forest og verk- smiðjunni. Ég á að láta mér nægja einar 50.000 krónur á ári og má auk þess búa í íbúð- inni okkar í bænum, en einungis þar til ég gifti mig aftur. Ef ég geri það er ég þar með úr leik. - Já, mamma! Hún varð sýnilega reið yfir því hve ég svar- aði henni kæruleysislega. Hún reis á fætur, starði illilega á mig og sagði með dramatískri sviðsrödd (hún hefur verið stjarna á Broad- way): - Hlustaðu á það sem ég segi. Ég sætti mig ekki við þetta. Ég hef ekki eytt æsku minni með honum til þess eins að láta hann sparka mér nú. Hann hefði aldrei vogað sér að fara svona með mig ef hann hefði lifað. - Nei, áreiðanlega ekki, mamma! - Við gleymum þessari heimskulegu erfða- skrá. Ég hef beðið Silverman að annast fyrir- tækin og lögfræðingurinn hefur lofað mér að reyna að finna einhverja leið út úr þessum ógöngum. Þú skrifar undir þau skjöl sem ég bið þig um, er það ekki, Freddy? Jú, ég vissi það. Við skiljum hvort annað og það er gott. Hún sneri sér við og leittil Mark Finnley sem sat í stól og horfði á hana aðdáunaraugum. - Þá þurfum við ekki að grípa til neinna neyðarúrræöa, sagði hún. Mark stóð á fætur og sagði: - Það er mér að mæta ef hann ætlar að eyðileggja þetta fyrir okkur. - En hann gerir það alls ekki. Hann fær kannski æðiskast og æpir og brýtur allt og bramlar en hann gerir ekki neitt sem veldur okkur skaða. Hann mun áreiðanlega baða sig í hetjudraumi sínum. Hann trúir því að hann hafi mikilvægu hlutverki að gegna og sé í þann veginn að vinna mikið afrek. En hann er ekki til neins nýtur. Og einmitt þess vegna getum við haft gagn af honum. Án hans mundi erfðaskrá gamla mannsins eyðileggja allt fyrir okkur... Nújæja, þau féllu í þá gryfjuna að vanmeta mig og hæfileika mína svolítið. Ég þóttist fá æðiskast en lét róast fljótlega aftur. Ég skrifaði síðan undir pappírana sem hún minntist á. En fyrst neyddi ég þau til að gefa mér sveitasetrið og nýja rafmagns-járnbraut. Ég lét þeim eftir íbúðina í bænum og þangað fluttu þau að hveitibrauðsdögunum loknum. Ég neitaði að kalla hana mömmu framar og ávarpaði hana upp frá þessu með því að segja: Súsanna, elskan mín ... ( æsku minni, þegar ég bjó hjá pabba, var hann sí og æ að skipta.um eiginkonur. Og stjúpa mín virtist ætla að hafa sama háttinn á hvað eiginmenn snerti. Þessi Mark virtist að vísu ætla að búa um sig hjá henni til langrar dvalar. Hann hafði raunar kvænst henni. Mér fannst hrein kvöl að þurfa að verða vitni aö hamingju þeirra - sérstaklega af því að ég vissi svolítið sem stjúpa mín vissi ekki. Mark var nefnilega í slagtogi við Kathryn, hina ungu og saklausu Kathryn, dóttur Silvermans ... Þegar þau höfðu verið gift í eitt ár kom á daginn það sem mig hafði alltaf grunað. Það ALFRED HITCHCOCK fæddist í Lundúnum árið 1899 og dó í Kaliforníu árið 1980. Hann hafði lokið verkfræðinámi þegar hann fékk það starf að hanna titilskilti í þöglar kvikmynd- ir. Eftir það áttu bíómynd- irnar hug hans allan og með tímanum varð hann frægasti spennumyndaleikstjóri kvikmyndanna. Hann hafði sérkennilega kímnigáfu og næmt auga fyrir smáatriðum. Upp úr 1950 fór hann einnig að snúa sér að gerð sjónvarpsþátta en þættir í anda hans hafa verið sýndir reglulega á Stöð 2. Vikan hefur í áratugi birt valdar smásög- ur úr safni Hitchcocks. kom I Ijós að Mark hafði kvænst Súsönnu sumpart vegna þess aö hún hafði áður verið stjarna og sumpart af aðdáun á fegurð hennar og skapgerð en einnig vegna peninganna og þeirrar aðstöðu sem hún gat boðið honum. Enginn þurfti raunar aö ímynda sér að hann mundi loka augunum fyrir ungum og blóðheit- um stúlkum. Ég verð að viðurkenna að honum tókst vel upp í byrjun. Súsönnu grunaði ekki 42 VIKAN 151BL1990

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.