Vikan


Vikan - 26.07.1990, Síða 43

Vikan - 26.07.1990, Síða 43
hið minnsta hvernig í pottinn væri búið. Hún blómstraði og naut lífsins með honum í ríkum mæli. En þegar hann ákvað loks að yfirgefa hana hafði það í för með sér erfiðleika. Telja mátti fullvíst að svikin mundu ríða henni að fullu. Einhver varð því að koma henni til hjálpar og vernda hana. Þau höfðu dvalist nokkra hríð á sveitasetrinu hjá mér en nú var Mark farinn afturtil bæjarins. Þegar ég ætlaði að taka bílinn minn út úr bíl- skúrnum kvöld nokkurt stóð bíll Súsönnu fyrir framan bílskúrinn. Ég ákvað því að fara með lestinni í staðinn. Ég vildi ekki ónáða hana meö því að biðja hana um lyklana að bílnum hennar. Hún hafði farið snemma aö hátta og tekið inn svefntöflur. Henni leið ekki sem best að eigin sögn. Ég gekk frá járnbrautarstöðinni. Það var kyrrt sumarkvöld. Það var komið fram yfir miðnætti þegar ég stóð loks fyrir framan stóra sambýlishúsið. Húsvörðurinn, John, var farinn og hafði læst fyrir nóttina. Ég opnaði með lykli. Ég fór ekki upp með lyftunni. Ég hef aldrei get- að þolað lyftur. Ég gekk því upp alla stigana. - Hvar fékkstu lykla? - Ég stal lyklunum þínum dag nokkurn þeg- ar þú varst að synda í vatninu. Síöan lét ég smíða eftir þeim. - Allt í lagi, góði, allt í lagi. Og hvað er þér svo á höndum? Hann bar ekki minnstu virðingu fyrir mér og mér þótti það gott. Það mundi gera mér auð- veldara að hrinda í framkvæmd því sem ég hafði ákveðið að gera. - Ég ætla að koma þér fyrir kattarnef, sagði ég. Hann lét sér hvergi bregða. Hann stóð á fæt- ur og gekk að barnum í einu horni stofunnar. Hann greip flösku og spurði um leið og hann hellti í glas: - Hvers vegna? - Af því að þú ert einskis virði og enginn mun sakna þín. Pabbi réð þig í sína þjónustu til að sjá um bókasafnið. Ég veit vel hvað fór á milli ykkar Súsönnu þegar hann sá ekki til. Og nú leikur þú sama leikinn með Kathryn, þegar Súsanna sér ekki til. Þér er sama hvort mér er annt um Súsönnu eða ekki því þú álítur að ég mun ekki aðhafast neitt; hafi ekki kjark til eins eða neins. En þar skjátlast þér. Hann gekk fast upp að mér og sagði með fyrirlitningu: - Ef þú hefur þig ekki hægan tek ég í hnakkadrambið á þér og fleygi þér inn í lyft- una. Hann tók sem sagt ekkert mark á mér, eins og ég hafði búist við. Hann var hrokafullur og ósvífinn eins og ævinlega. - Það er óþarfi fyrir þig að ógna mér, Mark. Ég veit að Kathryn var hér í kvöld og ég hef oft séð hana koma hingað. Þú verður að hætta að vera með henni. Að öðrum kosti framkvæmi ég ætlunarverk mitt. - Við Súsanna erum bæði samþykk því að slíta samvistum okkar og skilja aö skiptum. Hún veit aö ég elska Kathryn og ætla að kvæn- ast henni. Við ræddum þessi mál í gærkvöldi í fullri vináttu og bróðerni. Það er þess vegna ráðlegast fyrir þig að koma þér heim og vera þægur. - Ég hef enga löngun til að vera þægur. Mér hefur alltaf verið í nöp við þig. Ég hef lengi vitað að þú mundir gera Súsönnu óhamingju- sama. Ég er fyrir löngu orðinn leiður á að láta þig segja mér fyrir verkum og koma fram við mig eins og ég sé núll og nix. Ég tók byssuna upp úr vasanum. Þá fyrst varð Mark Ijóst að alvara var á ferðum. Hann varð skyndilega óstyrkur og virtist ekki vita hvað hann ætti að taka til bragðs. Hann hörfaði aftur á bak og sagði: - Svo að þér er þá alvara, strákur? Hann hélt á glasi í annarri hendinni, fleygði því í áttina að höfði mínu en hitti ekki. [ einu vetfangi réðst hann leiftursnöggt á mig. Hönd mín titraði og skalf. Mér var fullkunnugt um hversu skapmikill hann var. Hann var ekkert lamb að leika við þegar hann reiddist. Ég skaut einu skoti en það stöðvaði hann ekki. Ég skaut aftur og aftur og varð skyndilega gripinn þeirri skelfilegu hugsun að ef til vill mundi mér ekki Frh. á næstu opnu 15TBL.1990 VIKAN 43

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.