Vikan - 26.07.1990, Side 58
PFAFF
Borgartúni 20 Sími: 626788
Og umboðsmenn okkar um land allt.
EIGINMAÐUR I
ELDHÚSVERKUM
Frh. af bls. 56
tilbúningnum um kvöldið. Það nægir að skýra
frá því að börnin fengu steikt egg og brauð
ásamt niðursoðnum ávöxtum úr dós.
Síðan fór ég að koma þeim yngstu í rúmið
og eftir það fór ég að taka saman fötin þeirra,
skolaði úr utanyfirfötunum mestu óhreinindin
og hengdi upp, vaskaði upp ílátin, skammaði
eldri strákana og fékk þá loks til að taka saman
dótið (ég fann það allt seinna um kvöldið undir
rúmi). Það nægir að skýra frá því að þau voru
öll komin í rúmið og sofnuð milli tíu og ellefu.
Klukkan ellefu fórnaði ég höndum, lét allt
eiga sig sem eftir var að gera - og fór að hátta
og sofa.
Ég skal segja ykkur eins og er að ég var
hálfsvekktur um kvöldið en ég huggaði mig við
að þetta hlyti að vera versti dagurinn því ég
væri óvanur þessu. Það mundi lagast. Þar að
auki væri þetta hátíðisdagur og börnin kæmust
ekki í leikskóla eða á róluvöllinn um daginn.
Daginn eftir vorum við boðin í mat til mágkonu
minnar og þá þyrfti ég engar áhyggjur að hafa
af hádegisverðinum.
En þessi von brást eins og sápukúla.
Það var ekki minni barningur að finna spari-
fötin handa þeim daginn eftir og koma þeim
þokkalegum af stað enda komum við ekki í
matinn fyrr en um klukkan eitt og þið hefðuð átt
að sjá hvernig við skildum við húsið heima.
Mér gafst enginn tími til að taka til.
Mágkona mín fræddi mig svo á því að lík-
lega væri telpan í fötunum af bróður sínum -
og öfugt. Stærri strákarnir voru í fötum sem
þeir máttu aðeins nota á stórhátíðum og inni-
skóm.
Nei, fyrsti dagurinn var besti dagurinn.
Konan hafði fyllt allt af matföngum og hrein-
um fötum. Eftir því sem á leið minnkaði í búr-
inu og fötin óhreinkuðust. Ryk safnaðist á alla
hluti og teppi urðu að vera óryksuguö. Ég hafði
aldrei tíma til að þrífa, ryksuga né þurrka af.
Ég gat aldrei tekið til í húsinu, aldrei þvegið föt
að ráði, aldrei stoppað í sokka, aldrei saumað
föt á krakkana, aldrei skroppið í bæinn, aldrei
farið i búðir, aldrei. .
Nei, það er tilgangslaust að telja upp það
sem ég aldrei gat gert. Þetta fór sæmilega vel
allt saman. Börnin þrifust og döfnuðu og ég
léttist ekkert að ráði - en það var líka það eina
góða við þetta allt.
Ég komst aldrei í rúmið fyrr en um miðnætti
en var vakinn um sjöleytið, ef vel var.
Á þessum hálfa mánuði bilaði síminn,
bíllinn, útvarpið, dyrabjallan, þvottavélin og
eldavélin.
Við vorum öll að stagla harðfisk og éta
grænar baunir þegar konan kom innúr dyrun-
um einum degi áður en hennar var von.
Ég held ég hafi
aldrei á ævi minni ver-
ið eins feginn - nema
ef vera skyldi daginn
eftir þegar ég loks
fékk frí... og komst í
vinnuna.
Síðan eru liðnir þrír
dagar og konan hefur
verið að hreinsa, taka
til, þvo þvott, kaupa
inn og geravið eins og
konur dunda oft við i
frístundum. Ég hringdi
heim áðan og spurði
hvernig gengi.
„Þetta gengur allt
ágætlega," sagði hún.
„Hvað ertu að gera
núna?“ spurði ég.
„Gera ... ? Hreint
ekki neitt. Ég sit hérna
og er að drekka kaffi
og fá mér sígarettu."
„Ertu búin með hús-
verkin? Ertu búin að
öllu sem þú þurftir aö
gera?
„Já, elskan mín.
Það var ekki svo
slæmt. Þetta kemst
upp í vana ... Eigum
við kannski aö fara í
bíó í kvöld?“
Já. Ég er aö hugsa
um að fara í bíó með
konunni minni í kvöld.
Ég er líka hættur við
að nota minn helming
samningsins, um að
fara einn í sumarfrí.
Ég er búinn að sjá það
rækilega að ég er
hreint alltaf í sumarfríi
- samanborið við kon-
una mína. Og saman-
borið við þúsundir
húsmæðra, bæði hér
og annars staðar.
------.—
STORKOSTLEG NYIUNG!
ítalskur glæsileiki og notagildi í fyrirrúmi =
Nýjasta heimilistækið
frá Clíuutif/ er alveg einstakt í
sinni röð.
Hvaða annar heimilistækja
framleiðandi getur boðið upp á
eftirfarandi:
Eldavél, bökunarofn með
grillteini og uppþvottavél,
og það allt í sama tækinu.
^ULfUÍl/ TRÍÓ er alveg tilvalið í
lítil eldhús og snilldarlausn
í hinn fullkomna sumarbústað.
Já þetta er snjöll útfærsla,
3 tæki í einu og stærðin er sú sama
og á venjulegri eldavél eða:
HxBxD = 85x60x60.
Og ekki spillir verðið fyrir aðeins
kr. 94.000,- eða
staðgr. kr. 89.300,-
58 VIKAN 15TBL.1990