Vikan - 26.07.1990, Qupperneq 60
TEXTI:
GUÐMUNDUR S,
JÓNASSON
Mannkynið hefur kannað heim-
inn allt um kring og þegar stig-
ið fyrstu skrefin við könnun
geimsins en til skamms tíma
var öll skoðun á sálarlífi
mannsins sjálfs yfirleitt takmörkuð við klíníska
sálarfræði og geðlækningar. Þar er öll úr-
vinnsla miðuð við að um sé að ræða skerta
eða sýkta lífsstarfsemi. Fyrir stuttu var sjálfs-
skoöun eitthvað sem menn settu i samband
við eitthvað dularfullt og austurlenskt, gjarnan
furðulegar stellingar og andlega jafnt sem
líkamlega naflaskoðun. Á síðustu tveimur
áratugum hefur það hins vegar gerst að menn
hafa æ meir farið aö sjá innan sálfræðinnar og
vissra heimspekistefna upphaf nýrra fræða
sem taka mið af því heilbrigða og jákvæða í
manninum. Vaxandi hópur fólks á Vesturlönd-
um gefur sig nú að eigin hugar- og sálarlífi.
Áhersla á innri gæði og áhugi á nýjum valkost-
um til eflingar heilsu og vaxandi lífsfyllingar
hefur aukist. Tugir milljóna manna, einkum í
Bandaríkjunum og Evrópu, hafa tekið þátt í
fjölbreytilegustu gerðum námskeiða sem miða
að vitundaropnun og sálrænum þroska.
VITUNDARBYLTINGIN Á ÍSLANDI
íslendingar hafa ekki farið varhluta* af vitundar-
byltingunni sem svo er nefnd og sumir telja að
eigi eftir aö valda grundvallarbreytingum á vit-
undarlífi mannsins og samskiptum hans við
jörðina. Aörir staðhæfa að hér sé eingöngu um
loftbólu eða tískustraum að ræða. Gísli Gunn-
/
K
\7' ll'* gEii í^j
Juj u\
Hinn nýi lífsskilningur, „nýaldarhreyfingin", er undir miklum áhrifum frá austrænum hugmyndakerf-
um. Margir telja að hún boði það besta i vestrænni og austrænni menningu.
arsson, sagnfræðiprófessor við Háskóla
íslands, telur nýaldarhreyfinguna dæmi um ör-
væntingarfullan flótta kynslóðar sem stendur
ráðþrota gagnvart vistfræðilegum, félagsleg-
um og efnahagslegum vandamálum samtím-
ans. Hvaö sem því líður er alveg fullvíst að
sálvaxtarnámskeið af ýmsu tagi eru mjög vin-
sæl hér á landi og hefur framboð þeirra farið
vaxandi að undanförnu. Mikil gróska er í þess-
um málefnum. Þegar þett.a er ritaö eru starf-
andi þrjár miðstöðvar sem eiga það sameigin-
legt að vilja efla andlega og líkamlega heilsu
meö aðferðum heildrænnar heilsufræði.
Mýgrútur félaga og hópa eru með starfsemi
og þjónustu á þessu sviði. Þar má nefna dag-
heimili, veitingahús, nokkrar matvöru- og
heilsuverslanir, nuddstofur, leshringi og bæna-
hópa. Aðrir leita leiðsagnar í leynireglum, til
dæmis Ftósakrossreglunni eða í fræðum Frí-
múrara í leit aö skilningi á leyndardómum
lífsins. Zen-hugleiðing, dáleiðsla, nornafræði,
nálarstungur, miðilsfundir, smáskammtalækn-
ingar, lífefli, rafsegulsviðsmeðferö og sjúk-
dómsgreining á lithimnu augans eru dæmi um
aðferðir sem njóta vinsælda. Það væri að æra
óstöðugan að útskýra og telja upp allar þær
fjölmörgu og ólíku aðferðir sem finnast á vett-
vangi mannræktar hérlendis. Árlega eru haldin
sérstök mót, Snæfellsás, fyrir þá sem vilja
kynna sér það sem er á boöstólum hverju
sinni. Ríkissjónvarpið hyggst bráðlega sýna
þáttaröö um nýaldarhreyfinguna og ýmislegt er
varðar yfirskilvitleg og dulræn fyrirbæri. Á út-
varpsstöðvunum eru reglulega þættir um and-
leg málefni, tímaritin keppast um að birta
greinar um þessi fyrirbæri og mikil aukning
hefur orðið í útgáfu bóka um sjálfsrækt og
ýmis afbrigði náttúrulækninga. Áætlað er að í
kringum 230 aðilar á íslandi starfi meira eða
minna við heildrænar aðferðir.
Það sem er kannski merkilegast við nýaldar-
hreyfinguna er að hér er ekki á ferðinni enn eitt
heimspekikerfið eða ný trúarbrögð sem aðhyll-
ast einhvern stórasannleik. Miklu frekar má
skoða hana sem vettvang fyrir hvers konar sál-
ræna og andlega iðkun. Þessi vettvangur virö-
ist ekki skilja neinn þátt vitundarlífsins útundan
né binda sig við afmörkuö rannsóknarsvið.
Líkaminn, tilfinningar, skynjanir, vitsmunalegir
þættir, ímyndunaraflið, kynlíf og fjarlægari vit-
undarsvið hugans, allt er þetta inni í myndinni.
Að sjálfsögöu geta námskeiðin, sem bæöi inn-
lendir og erlendir aðilar bjóða upp á, verið æöi
misjöfn að gæðum. Þess eru dæmi aö leiö-
beinendur gefi sig út fyrir að vera meira en þeir
eru. Sumir skreyta sig meö ólögmætum titlum
eða þykjast geta séð framtíö manna alla;
hjónaskilnað og jafnvel dauðsföll í kaffikorgi
eða línum lófans. Erlendis þiggja margir ríf-
lega þóknun fyrir að lesa árur af Ijósmyndum!
Ýmsir meðlimir biblíutrúarmanna segja að
nýaldarreglan sé mafía, samsæri djöfulsins til
þess að ná yfirráðum yfir heiminum. Aðrir
60 VIKAN 15TBL. 1990