Vikan - 30.05.1991, Blaðsíða 2
EFNI ÞESSARAR VIKU
58 RISAROKKIÐ
Ó FRAMHJÁHALD
Vikan ræðir við tvær konur sem eiga
það sameiginlegt að hafa haldið við
gifta menn. Önnur þeirra er í dag gift
þeim manni sem átti í hlut. Þá ræðir
Vikan jafnframt við sálfræðing um
framhjáhald.
1 3 ÖMMURNAR
Já, hvað er orðið um gömlu góðu
ömmurnar? Nokkuð sem vert er að
velta fyrir sér.
1 4 MIÐILUNN
Núna er það tvíburamerkið sem við
skoðum sérstaklega og ráeðum af því
tilefni við tvíburann gamansama Órn
Árnason Spaugstofumann.
22 VÍKINGAR KOMA
Frá Jóni Björgvinssyni í Sviss barst
Vikunni viðvörun þess efnis að vík-
ingarnir séu á leiðinni til okkar. Hann
segir hér vera um að ræða stærsta
strandhögg síðan Tyrkjaránið átti sér
stað...
51 PEYSUUPPSKRIFT
Uppskrift að einlitri heilsárspeysu úr
Mayflowergarni fyrir kvenmann.
52 KVIKMYNDIR
Vikan kannaði hvaða kvikmyndir
draumasmiðjurnar í Hollywood sendu
frá sér til sýninga í maímánuði. Á
blaðsíðu 57 er svo fjallað um kvik-
myndina Millers Crossing sem farið er
að sýna hér á landi en bræðumir, sem
hana gerðu, hlutu einmitt verðlaun nýaf-
staðinnar kvikmyndahátíðar í Cannes í
Frakklandi fyrir nýjustu mynd sina.
63 SKÍTT MEÐ ÞAÐ!
Gamla ráðið að telja upp að tíu áður
en maður sleppir sér er vel nothæft
ennþá ... Það má líka segja sem svo,
að fátt sé svo með öllu illt...
64 VÍKINGAVEISLA
Nýstárlegur garðskáli er nýrisinn við
hlið Fjörukrárinnar í Hafnarfirði og þar
verða í sumar haldnar hraustlegar
veislur að hætti gömlu víkinganna.
VIKAN segir frá erlendu hljómsveitun-
um fjórum sem hingað koma i júní til
að spila myljandi þungarokk fyrir is-
lenska aðdáendur sina.
Einar Bjarnason heitir ungur maður
sem vakið hefur vaxandi athygli fyrir
aðstoð sem hann hefur veitt á sviði
huglækninga.
1 8 TVÍBURAMERKIÐ
24 OLGA DÍS
Hún er hávaxin, með mikið rautt hár
og það sópar af henni. Hún er ekkert
gefin fyrir vol og væl og bauð Banda-
ríkjunum birginn. Söngkonan Hafdís
Olga Emilsdóttir er í ársleyfi frá skraut-
legum ferli vestra þar sem hún er
eignastjóri og umboðsmaður frægra
hljómsveita.
33 SÝNIR
Framhaldssaga Vikunnar hefur vakið
mikla hrifningu enda skrifuð af
spennusagnasnillingnum Stephen
King sem er einn tekjuhæsti hroli-
vekjuhöfundur dagsins í dag. Þú getur
auðveldlega hafið lesturinn í þessu
tölublaði - og þú verður ekki fyrir von-
brigðum, því getum við lofað þér!
39 STJÖRNUSPÁIN
42 STÓRBROTIN SAMKEPPNI
Söngkonan vinsæla Paula Abdul kem-
ur til með að afhenda vegleg verðlaun
í umhverfisvemdarsamkeppni sem
snyrtivörufyrirtækið Sebastian efnir til.
Jafnvirði rúmrar einnar milljónar króna
skiptist á milli fjögurra bama - og að
auki hlýtur hvert barnanna ferð með
foreldrum sínum um Amazon.
45 NÍÐINGSVERK
„Ekki sleppa pabba úr fangelsinu,"
grátbiður ungurdrengur. Faðirinn hellti
yfir hann bensíni árið 1983 og kveikti í
til að hefna sín á eiginkonunni.
46 JÓNA RÚNA KVARAN
Að þessu sinni svarar miðillinn bréfi frá
sautján ára strák sem segist hafa það
á tilfinningunni að engum þyki vænt
um sig.
48 KROSSGÁTA
50 ÞUNGUR SVEINN
Við segjum frá heimsins þyngsta
tveggja ára barni.
LEIÐRÉTTING
( myndatextum í 9. tölublaði Vik-
unnar misrituðust nöfn tveggja
starfsmanna Aðalstöðvarinnar.
Voru það nöfn Péturs Valgeirs-
sonar dagskrárgerðarmanns og
Jóhannesar Kristjánssonar, sem
var tæknitröll stöðvarinnar. Hann
hefur nú flutt sig yfir á Stjörnuna.
Er beðist velvirðingar á misritun
nafnanna.
2 VIKAN ll.TBL. 1991