Vikan - 30.05.1991, Side 41
VIÐSKIPTAKORT LESENDA VIKUNNAR:
„Nei, ekkert sérstaklega," sagði Weizak. „Hann
heidur að þú sért að gabba okkur, að af einhverj-
um ástæðum sé þetta uppspuni. Kannski til að fá
athygli. Ékki dæma hann eingöngu eftir því. Upp-
lag hans gerir honum ókleift að halda annað.
Reyndu að finna til samúðar með honum. Hann er
snjall maður og hann mun ná langt. Hann er þeg-
ar búinn að fá tilboð og hann á eftir að fara til
Houston eða Hawaii eða jafnvel til Parísar. En
hann er furðulega takmarkaður. Hann er heilavél-
virki. Hann hefur skorið heila í smábúta með
skurðhnífnum en ekki fundið neina sál. Þess
vegna er engin sál til. Eins og rússnesku geimfar-
arnir sem fóru kringum jörðina og sáu ekki Guð.
Það er raunhyggja vélvirkjans og vélvirki er að-
eins barn með afburða hreyfistjórn. Þú mátt aldrei
segja honum að ég hafi sagt þetta."
„Nei.“
„Og nú verðurðu að hvíla þig. Það er langur
dagur fram undan á morgun."
* 2 *
Allt og sumt sem Johnny sá af hinum heimsfræga
Ruopp lækni meðan á aðgerðinni stóð voru þykk
gleraugu og stórt kýli vinstra megin á enni
mannsins. Það sem eftir var af honum var með
húfu, í slopp og með hanska.
Johnny hafði fengið tvær sprautur fyrir aðgerð-
ina svo hann var hátt uppi og hress þegar honum
var rúllað inn á skurðstofuna. Svæfingalæknirinn
nálgaðist með stærstu sþrautu sem Johnny hafði
á ævi sinni séð. Hann vænti þess að stungan yrði
sár og hann hafði ekki rangt fyrir sér. Hann var
sprautaður á milli L4 og L5, fjórða og fimmta
lendaliðs, nógu hátt uppi til að forðast mænutagl-
ið, taugaknippið neðst í hryggnum sem minnir lítil-
lega á tagl á hesti.
Johnny lá á maganum og beit í handiegginn til
að öskra ekki.
Eftir óratíma fór sársaukinn að dvína og hann
fann aðeins fyrir vægum þrýstingi. Að öðru leyti
var neðri hluti líkama hans algerlega horfinn.
Andlit Ruopps sveif fyrir ofan hann. Græni
bófinn, hugsaði Johnny. Jesse James með gler-
augu. Peningana eða lífið.
„Fer vel um þig, herra Srnith?" spurði Ruopp.
„Já. En mig langar ekkert til að endurtaka
þetta."
„Þú mátt lesa tímarit ef þú vilt. Þú mátt líka fylgj-
ast með í speglinum ef þú telur þig þola það.“
„Allt í lagi.“
„Hver er blóðþrýstingur hans, hjúkrunarkona?"
„Hundrað og tuttugu yfir sjötíu og sex, læknir.“
„Það er fínt. Eigum við að byrja, gott fólk."
„Skiljið eftir læri handa mér,“ sagði Johnny
veiklulega og kom hjartanlegur hláturinn á óvart.
Ruopp klappaði á öxl hans með hanskaklæddri
hönd sinni.
Hánn horfði á Ruopp velja skurðhníf og hverfa
aftur fyrir grænu gardínuna sem hékk í járnhring
fyrir ofan Johnny. Spegillinn var kúptur svo
Johnny sá allt svæðið í honum.
„Ó, já,“ sagði Ruopp. „Ó, já, dí-dí-dí... hérna
var það ... jamm og já ... allt í lagi... klemmu,
í guðanna bænum reyndu að vakna, hjúkrunar-
kona ... já... nú held ég að ég vilji fá eina ...
nei, bíddu ... ekki fá mér það sem ég bið um,
fáðu mér það sem ég þarfnast... já, allt í lagi.
Bindi, takk.“
Með töngum rétti hjúkrunarkonan Ruoþþ eitt-
hvað sem leit út eins og knippi af samansnúnum
vírum. Ruopp tók varlega á móti þeim með sára-
töng.
Eins og ítalskur kvöldverður, hugsaði Johnny,
og sjáið alla þessa spaghetti-sósu. Það var hún
sem olli honum vanlíðan og hann leit undan. Fyrir
ofan hann, á svölunum, horfðu hinir í bófaflokkn-
um niður til hans. Augu þeirra virtust Ijós, misk-
unnarlaus og skelfileg. Þá tók hann eftir Weiz-
ak, þriðja frá hægri, með úrið snyrtilega nælt fram-
an á sloppinn.
Johnny kinkaði koll.
Weizak kinkaði kolli á móti.
Það bætti svolítið úr skák.
* 3 *
Ruopp lauk við tengingarnar milli hnjánna og kálf-
anna og Johnny var snúið við. Þetta hélt áfram.
Svæfingalæknirinn spurði hann hvort honum liði
vel. Johnny svaraði að hann héldi að sér liði eins
vel og hægt væri við þessar aðstæður. Honum
var boðið að hlusta á spólu og tók því með
þökkum. Andartaki síðar ómaði tær rödd Joan
Baez um skurðstofuna. Ruopp vann áfram.
Johnny syfjaði og hann blundaði. Þegar hann
vaknaði var aðgerðin enn i gangi. Weizak var enn
á staðnum. Johnny lyfti annarri hendinni til að
gefa til kynna að hann vissi af honum og Weizak
kinkaði aftur kolli.
* 4 *
Klukkutíma síðar var því lokið. Honum var rúllað
inn í herbergi þar sem hjúkrunarkona spurði hann
aftur og aftur hvort hann gæti sagt henni hve
margar af tám hans hún væri að snerta. Johnny
gat það eftir skamma stund.
Ruoþp kom inn, bófagríman hangandi til ann-
arrar hliðar.
„Allt í lagi?“ spurði hann.
„Já.“
„Þetta gekk mjög vel,“ sagði Ruopp. „Ég er
bjartsýnn."
„Gott.“
„Þetta verður sárt,“ sagði Ruopp. „Jafnvel mjög
sárt. Sjálf meðferðin verður sár í fyrstu. Reyndu
að halda það út.“
„Halda það út,“ tautaði Johnny.
„Vertu sæll,“ sagði Ruopp og fór. Líklega,
hugsaði Johnny, til að leika níu holur á golfvellin-
um í grenndinni áður en yrði of dimmt.
* 5 *
Mjög sárt.
Klukkan níu um kvöldið gætti staðdeyfingarinn-
ar ekki lengur og Johnny var sárþjáður. Honum
var bannað að færa fæturna nema með hjálp
tveggja hjúkrunarkvenna. Það var eins og nagla-
beltum hefði verið vafið um hnén og þau síðan
hert grimmilega fast. Tíminn hægði á sér. Hann
leit af og til á úrið sitt, þess fullviss að klukkutími
væri liðinn síðan hann leit á það síðast og sá þess
í stað að aðeins voru liðnar fjórar mínútur. Hann
varð þess fullviss að hann þyldi ekki sársaukann í
mínútu í viðbót, svo leið mínútan og hann varð
þess fullviss að hann þyldi ekki við í aðra mínútu.
Hann hugsaði um allar mínúturnar sem staflað-
ar voru upp fram undan eins og smámynt og
svartasta þunglyndi sem hann hafði kynnst helltist
yfir hann og tók hann niður með sér. Þeir ætluðu
að pynta hann til dauða. Aðgerðir á olnbogum
hans, lærum, hálsi. Meðferð. Göngugrindur,
hjólastólar, göngustafir.
Þetta verður sárt... haltu það út.
Nei, haltu það út sjálfur, hugsaði Johnny. Láttu
mig bara i friði. Komdu ekki nálægt mér aftur með
slátrarahnifinn. Ef þetta er ykkar hugmynd um
hjálp vil ég ekki sjá hana.
Stöðugur sársauki skarst inn í hold hans.
Hlýja á maganum, lekandi.
Hann var búinn að pissa á sig.
Johnny Smith sneri andlitinu upp að vegg og
grét.
FRAMHALD í NÆSTU VIKU
Á ÞITT
VIÐSKIPTAKORT
HEIMA HÉR?
EF PÚ TELUR
AÐ SVO SÉ
HRINGIR ÞÚ í
SÍMA 83122
OG TALAR VIÐ
HELGU BEN,
Höfum opnað nýja fatahreinsun með öllum nýjustu og bestu
vélum sem fáanlegar eru í dag. Hreinsum allan venjulegan
fatnað. Tökum í þvott fyrir fyrirtæki. Hreinsum einnig gluggatjöld,
sængur, kodda, svefnpoka, gólfmottur, tjöld o.fl.
HÁRSrtYRTISTOPAN
GRAHDAVEQl 47 <2 626162
Hársnyrting fyrir dömur og herra
OPIÐ A LAUGARDÖGUN
SÉRSTAKT VERÐ PYRIR ELLILlPEYRISPEGA
Mrafnhildur Konráðsdóttir hárgreiðslumeistari
Helena Hólm hárgreiðslumeistari
Ásgerður Felixdóttir hárgreiðslunemi
RA/CARA- & mqtf/ÐSMZTVFA
HVERFISGÖTU 62 ■ 101 REYKJAVlK
11. TBL. 1991 VIKAN 41