Vikan


Vikan - 30.05.1991, Blaðsíða 58

Vikan - 30.05.1991, Blaðsíða 58
TEXTI: ÞORSTEINN EGGERTSSON HEIMSROKK í HAFNARFIRÐI PEIRHÁMAÍSIG HHA OG SPÚA ELM Erlendu hljómsveitirnar, sem eiga að spila á Kapla- krikavelli í Hafnarfirði 16. júní, hafa verið gaumgæfi- lega valdar til þess enda er reiknað með að flugvélar flykkist hingað til lands með erlenda áhorfendur. Hverjar eru svo þessar erlendu hljómsveitir? Við skulum kynna okkur málið. Haft er fyrir satt að máttur og dýrð The Who, The Faces, Bad Company og Led Zeppe- lin séu saman komin í hljóm- sveitinni Thunder. Hér er því á ferðinni endurfæddur sá mesti kraftur sem enskt þungarokk hefur nokkurn tíma boðið upp á. Við seljum það ekki dýrarar en við keyptum þaö en breskir poppskríbentar virðast sam- mála um þetta. Stofnendur hljómsveitarinn- ar, gítarleikarinn Luke Morley og söngvarinn Danny Bowes, báðir frá suðurhluta Lundúna, voru áður i hljómsveitinni Terraplane sem átti ekki langa lífdaga, enda var sagt að hún væri einhver hallærislegasta hljómsveit sem nokkurn tíma hefði spilað á plötu á Bret- landseyjum. Þegar hún komst á samning hjá Epic sendi hún frá sér lagið I Survive (1984) og nokkrum mánuðum síðar albúmið Black and White. Hvorugt fékk mikla umfjöllun. Þá lagöi umboösmaður hljóm- sveitarinnar alla áherslu á að gera plötu sem fengi spilun á BBC1 sem er eins konar gufu- radíó breskra músíkhlust- enda. Þetta var albúmið Mov- ing Target (1987), eins konar kurteisislegt þungarokk, kaf- fært í skrautlegum strengja- útsetningum fyrir hljóðgervla. Strákarnir voru hundóánægðir með árangurinn enda seldist platan ekkert. Ekki var heldur samið um fleiri plötur og hljóm- sveitin var leyst upp. Danny og Luke fóru til Ameríku til að fá hugmyndir og góð ráð. Þeir hlustuðu og horfðu á margar hljómsveitir og töluðu við plötuframleið- endur. Þegar þeir höfðu fengið nóg af New York og Los Ange- les sneru þeir heim til Englands, staðráðnir I að endurvekja breskt þungarokk og snúa baki við því sem þeir höfðu gert áður. Þeir fundu þrjá hljóðfæraleikara sunnan Thames í London. Það voru trommuleikarinn Gary James, sem einhverra hluta vegna er oftast kallaður Harry, gítar- leikarinn Ben Mathews sem líka spilar á hljómborð og trommuleikarinn Snake. Sá síðastnefndi heitir að vísu Mark Luckhurst en er aldrei kallaður annað en Snake. Þeir stofnuðu hljómsveitina Thund- er og lögðust undir feld til að semja nýtt, ferskt efni. Nú var látið til skarar skríöa og vinur þeirra, Andy Taylor, sem spilaði með Duran Duran á sínum tíma, bauðst til að stjórna upptökum fyrir þá. Hann útvegaði þeim líka plötu- samning við EMI og starf sem upphitunarhljómsveit fyrir Aerosmith. Það runnu tvær grímur á forsprakka þeirrar stórsveitar þegar þeir heyrðu strákana spila en það hafði aldrei gerst fyrr. Enda var gagnrýni popptímaritanna eftir því. Allir hældu þessari nýju hljómsveit á hvert reipi. Þegar fyrsta plata Thunder, She’s so Fine, kom út I febrúar 1990 fékk hún frábærar viðtökur og tímaritið RAW setti lagið næst efst á lista yfir bestu lög ársins. Fyrir réttu ári kom fyrsta alb- úm Thunder út. Það heitir Backstreet Symphony og hef- ur alls staðar fengið frábæra dóma enda eru lögin á plöt- unni hvert með sínu móti þótt heildarsvipurinn sé sterkur. Helstu lögin eru She’s so Fine, Love Walked in, Englishman on Holiday og Until My Dying Day. □ Eru máttur og dýrð gömlu stórstirn- anna í þungarokk- inu samankomin í Thunder? 58 VIKAN ll.TBL. 1991
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.