Vikan - 30.05.1991, Blaðsíða 13
HVAR ERU GÖMLU GÓÐU
ÖMMURNAR?
að er liðin tíð að amma
sé með nýstraujaða
svuntu og beri aðeins á
sig ilmvatn við sérstök tækifæri.
Ömmur em í æ meira mæli úti á
vinnumarkaðnum. Þær ferðast
um allan heim, eru í eróbikk og
kökurnar kaupa þær í bakaríi!
Víst þykir þeim vænt um barna-
börnin og börnin sín en þær lifa
sjálfar skemmtilegu lífi sem
þær vilja halda í. Líf þeirra
minnir lítið á hana gömlu góðu
ömmu!
Ég ætla að skreppa til ömmu,
sögðum við og hentum skóla-
töskunni inn í forstofu. Amma
bjó á næsta horni og átti alltaf
nýbakað brauð, heitt kakó og
haföi nógan tíma til að segja
okkur sögur eða leika við okkur.
Hún setti plástur á sár sem sá-
ust ekki nema í smásjá, var
með blómamunstraða svuntu
og það var alltaf gott að skríða
upp í kjöltu hennar. Hún hafði
líka óendanlegan tíma...
Amma mín hafði svo góðan
tíma - og þolinmæði - að ég
fékk að leika hárgreiðslukonu
tímunum saman. Árangurinn
voru þúsund krullur sem stóðu í
allar áttir en amma sagðist vera
svo fín að hún gæti farið á ball.
Og ég varð afar stolt! Þessa
klukkutíma hefði amma senni-
lega getað notað til skynsam-
legri hluta en hún vildi vera með
mér. Seinna um daginn gátum
við skroppið upp á háaloft og
mátað gömul föt. Það tók einnig
sinn tíma. Það var gaman í
gamla daga.
Ein þekkt amma hefur eigin
skrifstofu og ef hún er ekki þar
er hún á ferðalögum um allan
heim eða á „hemaðarlega"
mikilvægum fundum. Það eru
ekki öll börn sem geta sagt að
amma þeirra sé forsætisráð-
herra. Fólk myndi álíta þau
Ijúga. En þetta geta barnabörn
Gro Harlem Brundtland sagt.
Ég er viss um að henni þykir
mjög vænt um barnabömin sín
en ég get ekki ímyndað mér að
hún hafi mikinn tíma til að sinna
þeim.
Ekki geta allar ömmur verið
forsætisráðherrar en það emb-
ætti þarf ekki til, til að konur taki
starf sitt alvarlega. Stööugt fleiri
konur fara í framhaldsnám og
fá vinnu í samræmi við það.
Þegar þessar konur verða
ömmur hætta þær ekki að
vinna fyrir það!
Ömmur okkar eru unglegar.
Það eru bara langömmur sem
eru gráhærðar og staulast um í
popplínkápu. Amma hefur
nefnilega uppgötvað París og
London og tískuna þar. Hún er
vel klædd, gengur í aðskorinni
dragt og litar hárið kastaníu-
brúnt. (jólagjöf fær hún stress-
tösku og dömurakvél í stað
nokkurra tegunda af ilmvatni.
Og amma hugsar vel um lík-
ama sinn með alls kyns leikfimi-
æfingum. Það gerðu ömmurnar
ekki hér áður fyrr. Þá þótti alveg
ágætt að hafa nokkur aukakíló
á maga og mjöðmum. Það var
svo mjúkt að skríða upp í fang-
ið á henni ömmu þá og heyra
sögur af henni frá því að hún
var lítil. Nú eru heilsustúdíóin
full af ömmum. Þær sippa,
hoppa, svitna og afþakka
rjómatertusneið eða pönnsur
þegar þær eru í heimsókn.
Á isskápnum hennar ömmu
hangir kaloríutafla og hún borð-
ar gulrætur milli mála því hún er
á kúr. Hún verður að líta vel út
í vinnunni, á fundunum og öll-
um ferðalögunum. Andlitsfarð-
inn er í stíl við klæðnaðinn og
þegar aldurinn verður sýnilegur
er vandalaust að láta fjarlægja
hrukkur hér og þar.
Staðreyndin er sú aö ömmur
nútímans vilja ekki eiga sín síð-
ustu ár bara með börnum og
barnabörnum heldur vilja þær
líka eiga sitt eigið líf, vini, sinn
eigin frama og áhugamál. Þær
dýrka barnabörnin og vilja gefa
þeim hitt og þetta, líka brot af
dýrmætum tíma sínum - en
ekki lengi í senn. Þær kasta
ekki frá sér því sem þær eru að
gera til þess eins aö passa
barnabörnin meðan foreldrarnir
fara í bíó. Amma ætlar nefni-
lega líka sjálf í bíó! Þær eru
ekki heima að bíða eftir að
deigið lyfti sér eða barnabörnin
komi heim úr skólanum.
Reyndar búa barnabörnin
ekki endilega í næsta nágrenni
þannig að sambandsleysið er
ekki alltaf ömmu að kenna. Það
má skella skuldinni á breytta
lífshætti og margt fleira. Það
vantar ekki umhyggjusemi, síð-
ur en svo. Amma kann aö meta
öll smáatvik og smáhluti sem
börnin gefa henni. Litið visið
blóm, sem tveggja ára puttar
hafa slitið upp, gleður ömmu.
Það er bara heimurinn sem
breytist og við með.
Það er ekki langt í aö gam-
aldags ömmur séu bara til f
ævintýrum. Er þetta leiðinlegt?
Kannski. En hver okkar sem nú
erum ungar vill láta setja sig á
bás þegar hún verður amma -
af því hún verður amma? Nei,
við viljum vinna, fara út að
trimma, fara í fínum fötum á
árshátíð og umfram allt eiga
gott ástarlíf - þrátt fyrir að við
séum ömmur! Við spillum
barnabörnunum okkar með
sælgæti úr fríhöfninni og leik-
föngum úr síðustu ferð til
London. Við viljum ekki láta
nota okkur sem ókeypis barna-
píu í tíma og ótíma. Við eigum
okkar líf og það er ekki nóg að
hringja meö fimm mínútna fyrir-
vara til að spyrja hvort við get-
um passað. Við viljum gjarnan
passa barnabörnin en við gæt-
um verið búnar að ákveða eitt-
hvað annað fyrir kvöldiö. Við
viljum heldur ekki láta kalla okk-
ur egóista af því að við þurftum
nauðsynlega að fara í við-
skiptaferð daginn sem Lilli varð
fjögurra ára. Á jólunum erum
við samt alltaf til staðar - ef við
erum ekki á Hawaii að slappa
af! □
11. TBL 1991 VIKAN 13
LÍNEY LAXDAL ÞÝDDI