Vikan


Vikan - 30.05.1991, Side 26

Vikan - 30.05.1991, Side 26
Mæðgurnar Olga Dís og Sigrún í country-múnderingu fyrir hæfileikakeppni í Oregon. ##Ég ráðskaðist með Coasters en var líka með bókanir fyrir Drifters, Platters, Jewel Akins, Venturers og The Ink Spots, sem meðal annars gerðu frœgt lagið You Al- ways Hurt the One You Love. Ég bókaði þessa síðastnefndu bara einu sinni og það var dramatískt.## kraftarnir séu komnir á svæöið og séu að gera sig klára. Á meðan keyrum við hring eftir hring í bænum og finnum ekki neitt fyrr en við erum bókstaf- lega lóðsuð inn á svæðið. Co- asters höfðu átt að verða fyrst- ir og Platters síðastir en þetta fór þannig að Platters byrjuðu og svo varð Jewel Akins að verða næstur. Hann reyndi auðvitað að teygja atriðið sitt og tengja það með sögum um Coasters. Enginn hafði heyrt neitt frá okkur því þetta er ekki eins og næturklúbbur sem er hægt að hringja í til að segja að maður sé týndur niðri í bæ. En þetta endaði með því að það var búið að hita svo vel upp fyrir Coasters að það varð allt vitlaust og á endanum slógust Jewel Akins og Platt- ers ( hópinn í lokaatriðinu. - Þú varst með fleiri skemmtikrafta. - Jájá. Ég ráðskaðist með Costers en var líka með bókanir fyrir Drifters, Platters, Jewel Akins, Venturers og The Ink Spots, sem meðal annars gerðu frægt lagið You Always Hurt the One You Love. Ég bókaði þessa síðastnefndu bara einu sinni og það var dramatískt. Ég komst í sam- band við þá í Kaliforníu. Ég var með skemmtilegan staö í Klamath Falls í Oregon sem ég var búin að setja Drifters og Coasters inn á. Mértókst að fá Ink Spots í klúbbinn þessa umbeðnu helgi. En ég vissi það ekki fyrr en seinna aö aðalsöngvari þeirra var nýbú- inn að gangast undir hjarta- uppskurð og hann var sá eini sem eftir var af upphaflegu Ink Spots. Læknarnir voru búnir að segja honum að hann mætti alls ekkert gera strax. En þetta er náttúrlega í blóð- inu hjá þessu fólki. Það getur ekki hætt. Honum fannst hann vera alveg nógu hraustur til að syngja. Og þeir fljúga frá Kali- forníu til Klamath Falls. Ég var í símasambandi við flugvöllinn því ég komst ekki þangað sjálf. Þeir lenda og allt í fína lagi. Þegar aðalsöngvarinn var kominn út úrflugvélinni hringdi hann í konuna sína til að segja henni að ferðin hefði gengið vel. Svo kveður hann hana, leggur tólið á, snýr sér við - og dettur niður dauður. - Hvað gastu gert? - Það var ekkert hægt að gera. Þeir sem eftir voru héldu sína skemmtun á áætlun og gerðu það í minningu söngv- arans. Það var mjög sérstakt og fór vel. - Ég hélt að svona nokk- uð gerðist bara í bíómynd- um. Hvernig komstu þér í öll þessi sambönd? - Þegar ég hafði kynnst Coasters var ég komin inn í hringinn; inn fyrir þennan ó- sýnilega vegg sem er utan um þetta fólk. Þegar það gerist er eins og hurð lokist aftan frá og maður getur náð ( hvern sem er, því að þetta fólk hefur sam- band sín á milli. Nokie Edwards, aðalgítarleikari The Venturers, hringdi ( mig um daginn með fyrirspurn um sjó á íslandi. Hvað finnst þér? Svo lengi sem ég hef rétt síma- númer get ég alltaf náð í rétt fólk. Sumt af því er með einka- umboðsmann og marga auka- umboðsmenn. Ég hringi stundum í umboösmenn ef ég er beðin um ákveðna skemmtikrafta, alveg eins og menn hringdu í mig þegar ég ráðskaðist meö Coasters. Svo eru skemmtanaskrifstofur sem sjá um klúbbana eða það sem skemmtikraftarnir kalla „the rooms" eða herbergin. Leiðin- legir klúbbar eru aftur á móti kallaðir „klósett". Það eru staðir sem fæstir vilja troða upp á aftur, jafnvel þótt vel sé borgað. Menn frá þessum skrifstofum hringja stundum í mig ef einhverjir af klúbbunum þeirra vilja fá eitthvað af fólk- inu sem er á mlnum snærum. - Þú hefur ekki gert neitt annað á meðan? - Þetta var aukavinna til að byrja með en svo fór það út í það að ég gerði ekkert annað þegar ég var á ferðinni. Þetta er vel borgað og getur verið skemmtilegt. Sérstaklega þeg- ar eitthvað gerist óvænt. Einu sinni fór ég með Coasters upp í Salem og Drifters voru í bænum. Coasters vildu fá að sjá þá svo ég fór með þá ( klúbbinn, en þeir voru í galla- buxum svo þeir stóðu bara upp við vegg í myrkrinu. Svo um eittleytið, þegar sjóið var að enda og það var kominn galsi í fólkið, byrjaði einn af Coasters að syngja milliradd- ir, hátt og skýrt og hinir tóku undir. Fólkið í salnum heyrði þá einhvern söng koma eins og í stereo, sitt hvorum megin úr salnum. Og Drifters taka náttúrlega eftir þessu. Þá slökktu þeir á hljóðnemunum og það varð bara söngur, fram og til baka, þeirra á milli, enda fór ekkert á milli mála hverjir þetta voru. Fólkið í salnum var farið að standa upp og klappa á milli laga. Á endanum varð allt brjálað. Daginn eftir áttum við Coasters samleið meö Drifters suöur eftir Oregon og fórum á tveim rútum. Á leiðinni stopp- uðum við hjá hamborgara- sjoppu við þjóðveginn til að fá okkur að borða. Þá er þar fyrir ein hljómsveitarrúta. Og það kom upp úr kafinu að í henni er Marianne Faithful ásamt hljómsveit á leiöinni norður. Viðskiptavinir þessa hamborg- arastaðar hafa víst aldrei séð neitt þessu líkt, fyrr eöa síðar, því strákarnir tóku fram hljóð- færin sín og fóru aö syngja úti á bílastæðinu og brátt bættist Marianne Faithful ( hópinn. Þessir fínu hljómleikar um há- bjartan dag í sólskini; níu söngvarar og einir sjö eða átta hljóðfæraleikarar. Þarna voru nokkur útiborð og fólkið færði sig þangaö og starði. Fyrst spurði það: Hverjir eru þetta? Og þegar það komst á hreint sögðu sumir: Guð minn góður! Þetta eru Coasters! Drifters! Marianne Faithful! Þarna voru sungnir gamlir negrasálmar, gamalt og nýtt rokk og svo endaði allt á allsherjar blús. Síðan var pakkað saman og allir fóru sína leið. Stundum, þegar ég hugsa til þessa fólks sem hefur kannski sagt frá ævintýri sínu á skyndibita- staðnum við þjóðveginn og enginn hefur trúað, þá finn ég hvað lífið getur verið ótrúlegt. - En var þetta ekki stund- um erfitt? - Það erfiðasta í þessu eru ferðalögin því fjarlægðirnar eru svo ótrúlegar í Bandaríkj- unum. Stundum var tilgangs- 26 VIKAN 11.TBL1991

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.