Vikan


Vikan - 30.05.1991, Qupperneq 27

Vikan - 30.05.1991, Qupperneq 27
##Viðskiptavinir þessa hamborgara- staðar hafa víst aldrei séð neitt þessu líkt, fyrr eða síðar, því strákarn- ir tóku fram hljóðfœrin sín og fóru að syngja úti á bílastœðinu og brátt bœttist Marianne Faithful í hópinn.## Olga og Sigrún dóttir hennar á sveita- balli í Ameríku. Lengst til vinstri á myndinni er sóló- gítarleik- ari The Ventur- ers. A 4 rrSvo eignaðist ég íslenska vin- konu. Hún var alltaf að reyna að draga mig inn á þessa country- klúbba. En almáttugur, þvílík músík! Ég hélt ég myndi deyja.## laust að bóka hótelherbergi því þá var bara keyrt megnið af nóttinni og næsta dag til að komast á milli áfangastaða. Það er miklu rólegra að sitja við símann í miðri viku, enda voru símareikningarnir ógur- legir. Ég hugsa að ég gæti keypt mér Bessastaöi fyrir það sem ég hef borgað í þá (hlær), en það kemur líka mikið í kassann í staðinn. - Svo fórstu út í fasteigna- miðlun. Hvers vegna? - Árið 1980 flutti ég til Se- attle í Washington. Þar tók ég það rólega um tíma og settist á skólabekk til að taka próf í fasteignasölu, fasteignalögum og svo framvegis. Þetta er svolítið strangt og allt öðruvísi en hérna. Leiguhúsnæði er líka allt öðruvísi. Þarna eru kannski byggðar fimm hundr- uð íbúða einingar í svo og svo mörgum blokkum og í miðj- unni á hverfinu er svokallað klúbbhús. Þar er til dæmis skrifstofan, sérstök dagstofa, heiti potturinn, sána og jafnvel fleira. Svo er sundlaug úti, tennisvöllur og svoleiðis. Og til að sjá um þetta þarf sérstak- an framkvæmdastjóra. Hann hefur aðstoðarmann og leigu- miðlara á sínum snærum, auk þess viðgerðarmann, húsvörð og garðyrkjumann. Ég fór að vinna við þetta, fyrst sem leigumiðlari við að sýna fólki íbúðir en vann mig upp í aö verða framkvæmdastjóri. Fjór- um árum seinna fékk ég vinnu hjá öðru fyrirtæki sem aðstoð- areignastjóri. - Hvað er það eiginlega? - Eignastjóri (property manager) hefuröll nauðsynleg próf til að geta selt fasteignir. Þá er maður kominn í lögin og heildarfjármálin. Hann getur séð um nokkra tugi íbúða- hverfa og hefur marga fram- kvæmdastjóra undir sér. Stór fyrirtæki, eins og til dæmis IBM, eru með eignastjóra vegna þess að þau eiga eignir um allan heim. Ef maður vinn- ur fyrir svo stórt fyrirtæki getur maður þurft að fljúga heimsálf- anna á milli. En þegar ég hafði verið aðstoðareignastjóri í stuttan tíma bauðst mér vinna sem eignastjóri við fyrirtæki sem var að mestu leyti með stór einbýlishús og ég tók því strax. - Þú ert þá með marga í vinnu? - Vonandi ekkert allt of marga. Ég er með skrifstofu- fólk, aðstoðarmenn, húsverði í blokkunum og stúlkur sem sýna íbúðir. En ég sérhæfði mig í stórum einbýlishúsum sem eru dýr í leigu. Meðalverð er kannski um 1800 dollara á mánuði, sundlaug og allt inni- falið. Það er sérstakur maður yfir þessum dýru húsum og sérstök ögrun að finna leigj- endur fyrir þau. Og til að geta fyllt þessi hús, því ég var á prósentum, þá fór ég til dæmis að hafa samband við Boeing- skrifstofurnar. Þannig gat ég fengið ýmsa sérfræðinga sem vinna kannski á hverjum staö í svona eitt ár. Mikið af þessu fólki á kannski heimili og er ekki að kaupa sér nýtt hús heldur leigir það til lengri eða skemmri tíma. Maður verður því að vera fljótur að þefa uppi stórfyrirtæki sem planta fólk- inu sínu niður út um allt. - Svo fórstu að selja fast- eignir. - Já, já. Það var sjálfsögð þróun vegna þess að ef eig- endur vildu selja húsin var eðlilegt að láta mig um það. Ég þekki þau betur en einhver annar fasteignasali. - Varstu þá búin að snúa baki við skemmtanabrans- anum? - Þegar hér var komið hafði ég smám saman dottið út úr honum, þótt ég hafi alltaf hald- ið sambandi við kunningja mína þar. Ég hafði ekki sungið opinberlega sjálf árum saman heldur gutlaöi bara á gítarinn fyrir sjálfa mig heima. En þetta blundaði alltaf í mér. Þegar ég komst út úr húsi þá var ég komin niður í klúbb til að dansa og hlusta á músik. Svo eignaðist ég íslenska vinkonu. Hún var alltaf að reyna að draga mig inn á þessa coun- try-klúbba. En almáttugur, þvílík músíkiÉ.g hélt ég myndi deyja. Fyrsta skiptið sem ég fór með henni fór ég í bílnum hennar. Ég gerði það aldrei aftur því ég varð að hanga yfir þessu í fjóra klukkutíma. Næst fórum við á tveim bílum. Þá sat ég í tuttugu mínútur, stóð upp og sagði: Ég er að verða veik, ég er farin, bless. Svo gerðist það einn daginn. Ég var orðin leið á öllum þessum útvarpsstöðvum svo ég fór að snúa takkanum. Þá kemur allt í einu lag sem er al- veg hoppandi fjörugt. Svo ég var komin upp um alla veggi áður en ég vissi af. Þá var þetta Country & Western stöð og lagið var með hljómsveit Charlie Daniels, sem gerði lagið The Devil Went Down to Georgia. Þetta lag hét hins vegar Drinking My Baby Good-bye, fjörugt og skemmti- legt. Svo ég hugsa: Ja, ég gæti nú vel hlustað á meira af þessu. Og næst þegar ég fór út með vinkonu minni fór ég að hlusta á þetta með allt öðru eyra. Ekki rokkeyranu. Þar- næst fór ég ein. Og út frá þessu fór ég að tala við strák- ana í hljómsveitinni. Seinna var ég kynnt fyrir country- dansara sem kenndi mér að dansa þetta. Ég fór þangað ein á sunnudagskvöldi og þá er þar „Open Mike“ (opinn hljóðnemi) sem þýðir að gestir hússins mega troða upp. Ég kunni nú engin country lög en mér fannst ég samt verða að reyna þetta. Þá mundi ég eftir laginu Singin’ the Blues sem ég kunni. Þetta gekk bara vel og ég gerði þetta oftar. Þá var elsta dóttir mín, Sigrún, nýbúin í hernum en við höfðum oft sungið saman og skemmt okkur. Hún fer að vinna á þessum stað sem barþjónn þangað til hún fengi aðra vinnu. Um sama leyti ætla þeir að setja upp country-sjó. Þetta átti að vera keppni sem fólst í því að syngja, líta út og haga sér eins og uppáhalds coun- try-stjörnurnar manns. Ég átti mér nú engar uppáhalds- stjörnur í þessu ennþá en ein- hver úr hljómsveitinni kom til mín og spurði hvort við mæðg- urnar værum ekki til í að taka þátt í keppninni sem The Judds; afskaplega frægar co- untry-stjörnur í Bandaríkjun- um, mæðgur. Ja, ég skal tala um þetta við hana dóttur mina en hvorug okkar er mikið inni í Frh. á bls. 50 H.TBL1991 VIKAN 27
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.