Vikan - 30.05.1991, Síða 43
Hún ætlar að rita greinar til stuðnings þessu
málefni f fréttablaðið Planet Power. Einnig
mun hún gefa þeim sem taka þátt í þessari
samkeppni aðgöngumiða og leyfi til að koma
baksviðs á komandi hljómleikaferð hennar um
heiminn.
Fjöldi stórfyrirtækja hefur ákveðið að taka
þátt f fjármögnun samkeppninnar ásamt
Sebastian fyrirtækinu. Má meðal annars nefna
hina þekktu Smithsonian stofnun sem býður
þessu unga fólki að semja texta sem hvetja til
umhverfisverndunar, semja eitthvað af anda-
gift um þessi málefni, hvort sem er f formi
smásagna, Ijóða, gáta, söngtexta, leikrita,
auglýsinga eða einhvers annars, tvö hundruð
og fimmtíu orð eða færri. Einnig eru málverk,
pennateikningar, vaxlitamyndir, Ijósmyndir,
vatnslitamyndir eða myndir unnar með annarri
tækni vel þegnar, séu þær á endurunnum
pappír og ekki stærri en 40 sinnum 50 sentí-
metrar.
Önnur fyrirtæki og stofnanir sem styðja
þessa samkeppni eru, svo einhver séu nefnd,
Warner Center Marriott hótelin, Sameinað
skólasvæði Los Angeles, Barnasafn Los
Angeles, hin frægu MCA-kvikmyndaver,
Vatns- og orkudeild Los Angeles, Rockwell
International-Rockedyne deildin, Suður-Kali-
forníu gassamsteypan og TransWorld
bankinn.
Þátttökurétt öðlast þeir sem hafa aflaö sér
gagna á næstu Sebastian hársnyrtistofu og
þær eru hvorki fleiri né færri en eitt hundrað og
fjörutíu þúsund um heim allan.
Því miður geta íslensk börn ekki tekið þátt í
þessari samkeppni þetta árið sökum þess
hversu nýlega þessu hefur verið hleypt af
stokkunum. En vonast er til þess að ísland og
flest önnur Evrópulönd komi inn í myndina
sem fyrst.
Að sjálfsögðu voru eigendur Kristu hf. og
umboðsmenn Sebastian á (slandi viðstaddir
þegar þessi samkeppni var kynnt nú í byrjun
ársins. Þeir voru staddir í Los Angeles á um-
boðsmannafundi ásamt flestum öðrum um-
boðsmönnum frá öllum heimshornum og voru
að fylgjast með mikilli sýningu á nýjungum í
hárgreiðslu og vörum Sebastian fyrirtækisins.
Kynningin á samkeppninni kom flestum
nokkuö á óvart þótt þeir hefðu fregnað að þetta
væri í bígerð.
Sveinn Grétar Jónsson, forstjóri Sebastian á
íslandi, segir svo frá: „Við sátum þarna
grandalausir þegar Ijósin voru allt í einu slökkt
og sterku kastljósi var beint að hinni frægu
söngkonu og dansahöfundi Paulu Abdul sem
sat svo til við hlið mér. Hún gekk á sviðið þar
sem John Sebastian, forstjóri Sebastian Inter-
national, afhenti henni veggspjald sem sýnir
hana og teiknimyndafígúru haldast f hendur,
standandi á hnettinum. Þessi mynd mun
hanga uppi á öllum hársnyrtistofum sem vinna
með eða selja Sebastian vörur og á hún að
auglýsa þessa barnasamkeppni.
Eftir að athöfnin hafði farið fram fóru margir
þeirra sem þarna voru samankomnir, aðallega
fulltrúar stuðningsaðila samkeppninnar og fjöl-
miðlafólk, yfir í nærliggjandi grunnskóla til að
fylgjast með leikriti og öðrum uppákomum sem
nemendur skólans stóðu fyrir.
Umboðsmannafundurinn og sýningin sem
var í tengslum við hann hélt áfram eftir að við
höfðum fengið í hendur öll gögn um þessa
Paula Abdul
gengur fram á
sviðið í Los
Angeles
ásamt einum
af lífvörðum
sinum. Ef
grannt er
skoðað má
sjá Svein
Grétar
Jónsson,
umboðsmann
Sebastian á
íslandi, fyrir
aftan lifvörð-
inn.
það er notað af fjölda fólks út um allan heim.
Efnasamsetningu þess hefur verið lítillega
breytt til að koma í veg fyrir vanda þeirra fáu
sem eru með óvenju viðkvæma húð.
AFTUR Á NÚLLIÐ
Sebastian kynnir nú nýja hárskurðarlínu sem
þeir vilja kalla Aftur á núllið eða „Back to zero“
á frummálinu.
Þungamiðja hártísku Sebastian fyrir vorið er
hreint afturhvarf til þeirrar hártísku sem var
rfkjandi á sjötta og sjöunda áratugnum en með
yfirbragði nútímans.
Þegar spurt er hvernig hárgreiðslufagfólk
eigi að byrja aftur á byrjuninni, fara aftur á
núllið, þá svarar Geri Cusenza, hárgreiðslu-
hönnuður Sebastian, því til að hún vilji bæta
stolt og metnað fagfólks fyrir einfaldleika í hár-
greiðslu. „Það er þess vegna sem við höfum
horfið til hreinna og afgerandi hárlína," segir
hún. „Einnig að hárgreiöslufólk verði að full-
komna kunnáttu sína í meðferð krullujárna
samhliða nútíma tækjum og framleiösluvörum
til að bæta upprúllun og aðra mótun hársins.
Til að gera þetta af nákvæmni þarf fagfólkið aö
öðlast trú á það sem það er að gera og hana
fær það ekki nema með því að leggja eitthvað
á sig.“ Því segir hún: „Metiö á ný þaö sem felst
í orðinu hárgreiðslufagmaður."
samkeppni, sem fyrirtækið telur mjög mikil-
væga.“
NÝR ÚÐI
Ýmsar nýjungar voru kynntar á þessum fundi.
Hið þekkta efni Molding
Mud hefur nú verið
endurbætt með þarfir
þeirra í huga sem eru
með óvenju viðkvæman
hársvörð.
LIQUID SHAPER
PLUS, arftaki
Liquid Shaper, er
mun öflugra og
hentugra efni en
forveri þess sem
þykir enn í hæsta
gæðaflokki. Þetta
er efni sem hefur
bæði eiginleika
fljótandi, mótandi
gels og úða sem
festir hárið.
Lögð var fram sú spurning hvort hægt væri
að blanda saman fljótandi, mótandi geli og úða
sem festi vel hárið. Já, var svarið. Slík vara er
komin á markaðinn frá Sebastian og nefnist
hún Liquid Shaper Plus. Það er efni sem gerir
vinnu fagmannsins auðveldari en ella, fullnæg-
ir kröfum um náttúruvernd og er ætlað til nota
í ýmsum tilgangi.
Þetta er úði sem festir hárið vel og er með
þeim eiginleikum að sé hann notaður er mjög
auðvelt að móta hárið eins og ef gel væri
notað. Efnið er í byltingarkenndum umbúðum
þar sem ekkert óheilnæmt þrýstiloft er notað til
að koma þvi út.
Það er nokkuð frábrugðið forvera sfnum
Liquid Shaper sem margir þekkja. í fyrsta lagi
hefur virkni efnisins aukist verulega þótt hún
væri góð fyrir, það hefur mun meiri styrk til að
halda þurru hári í því formi sem það hefur
verið lagt og mun meiri möguleikar eru á að
móta blautt hár.
Eftir að meðhöndlun lýkur á hárgreiðslustof-
unni er ekkert í veginum að úða efninu yfir einu
sinni enn til endanlegrar mótunar og hún mun
haldast svo lengi sem óskað er.
Molding Mud þarf vart að kynna þar sem
HÆGT AÐ DREKKA HÁRLITINN
Nýlega hefur verið tilkynnt að hætt muni verða
að framleiða það sem kallast hundrað prósent
hárlitir vegna þess að efni hafa fundist í þeim
sem ekki eru talin umhverfisvæn. Það sem
boðið veröur upp á í staðinn eru svokallaðir
náttúrulitir, eingöngu unnir úr náttúrulegum
efnum. Engin skaðvænleg efni eru í þeim og
fullyrða forsvarsmenn fyrirtækisins að óhætt
sé fyrir fólk að drekka þá þótt þeir mæli ekki
með því, þó ekki sé nema vegna bragðsins!
Þessir litir hafa þann eiginleika aö gefa hár-
inu fallegan gljáa og dofna smám saman án
þess að mynda rót eins og gerist þegar hundr-
að prósent litir eru að vaxa úr.
Þess má einnig geta að hætt hefur verið að
framleiða nokkrar tegundir permanents sem
ekki hafa þótt nógu umhverfisvænar, en þrátt
fyrir það er úrval permanentefna frá Sebastian
mikið.
Það er því keppt ötullega að því hjá fyrirtæk-
inu að engar vörur þess séu á nokkurn hátt
skaðlegar umhverfinu jafnframt því að hafa
þær áfram í hæsta gæðaflokki. □
ll.TBL. 1991 VIKAN 43