Vikan


Vikan - 14.05.1992, Page 19

Vikan - 14.05.1992, Page 19
r Aþessu sumri freistar eðlilega margrar fjölskyldunnar að komast í sumarfrínu til Parísar, þeirrar hrífandi borgar sem nú státar af hinum nýja skemmtigarði Euro Disney til viðbótar við allt annað ágæti, sem er einmitt fjallað um hér á síðunum á eftir. Vikan, Flugleiðir og Euro Disney efna nú til léttrar og skemmtilegrar ferðagetraunar í tveim tölublöðum þar sem verðlaunin eru ferð fyrir fjögurra manna fjölskyldu í alla dýrðina í sumar. Að sjáifsögðu verður flogið með glæsilegum farkosti Flugleiða til Parísar og gist á nýju og vel búnu hóteli í skemmtigarðinum sjálfum, Euro Disney, í heila viku. Spurt er fimm spurninga í hvoru blaði og skulu svörin færð inn á svarseðilinn hér í opnunni og hann sendur ásamt svarseðlinum sem fylgir næsta tölublaði fyrir 15. júní næstkomandi. Og við minnum á að svarseðlarnir verða ekki teknir gildir nema lesendakönnunin á bakhlið seðilsins sé einnig útfyllt. K

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.