Vikan


Vikan - 14.05.1992, Blaðsíða 69

Vikan - 14.05.1992, Blaðsíða 69
Á bak við myndavélarnar standa mennirnir sem skila þvi sem við sjáum til okkar heim í stofu. Þetta er Þorvarður Björgúlfsson, „kamerumaður" eins og það er kallað. ekki gengiö hrakfallalaust fyrir sig og gildir það einna helst um flókin tól tækni og vísinda sem hafa víst verið með af- brigðum stríðin. Ljósaborðið fór ( óvænt veikindafrí og kap- all í eina myndavélina sagði skilið við hlutverk sitt. Þetta hefur að vonum vakið upp töluverða spennu meðal tæknimanna stöðvarinnar, spennu og stress sem ef til vill hefur verið svo bráðsmitandi að meira að segja líflaus raf- magnstækin gáfu upp öndina í hita leiksins. En nokkrum mln- útum áður en útsending hefst hefur öllu verið kippt I liðfnn, að því er virðist, og Sigurður Jakobsson, stjórnandi útsend- ingar, skipar öllum á sinn staö. Þá leggur sminkan lokahönd á hendur og varir Eddu og ein- mitt meðan varirnar eru í með- ferð birtist Pétur Kristjánsson tónlistarmaður. Edda heilsar honum og vegna þess að hún má ekki hreyfa varirnar verður það sem á eftir hæ-inu kemur illskiljanlegt, nema þá helst ef vera skyldi að tannlæknar greindu orðaskil. Pétur virðist þó öllu vanur, hann jánkar og neitar og virðist í það minnsta hafa skilið nóg. Gestir kvöldsins taka að streyma I salinn og Edda tekur sér stöðu við innganginn baksviðs. Töluverður kliður í salnum kemur í veg fyrir að greina megi orðaskil en varir Eddu bærast ákveðið þegar hún fer yfir upphafskynning- una í síðasta skipti. Eitthvert ósýnilegt merki verður til þess að gera allt vitlaust. Edda gengur í salinn, hún nýtur greinilega hylli þeirra sem eru gestir hennar þetta síðasta kvöld hennar í stúdiói þennan vetur og það er engu líkara en að hún hafi gert úrslita-., mark í landsleik beint úr auka- kasti þegar tíminn var runn- inn út. LJÓSAMAÐUR Á NÁLAPÚÐA Á bak við sviðið situr Ijósa- maðurinn eins og á nálapúða. Skyndilega gellur við orð sem varla er hafandi eftir og á tölvuskjá stjórntækisins blikka einhver tækniorð á útlensku. Þetta er greinilega ekkert of velkomið á þessari stundu en Ijósamaðurinn bíður átekta þangað til sýnishorn af segul- bandi kemur í stað beinu út- sendingarinnar úr myndverinu og þegar það gerist fer allt á fullt í örfáar sekúndur. Einhver er greinilega ekkert allt of ánægður með framvind- una, það má heyra langar leið- ir í gegnum heyrnartól Ijósa- mannsins og með rólyndistón svarar hann þeim sem fyrr hafði hrópað, með orðunum: „Borðiö fraus svo ég varð að rísetta það ... “ Þannig varð málunum bjargað og greinilegt hve mikilvægt er í útsending- um sem þessum að menn viti upp á hár hvað þeir eru að gera, hvað þeir þurfa að gera og hvenær og framkvæmi sið- an á hárréttu augnabliki allt sem gera þarf til að flókinn oáttur i beinni útsendingu fari hreinlega ekki i vaskinn, af tæknilegum orsökum. Eftir Detta varð enginn var við neitt vesen af neinu tagi svo merkj- anlegt væri, að minnsta kosti hefur enginn látið sér bregða svo neinu hafi numið. ÁLÚTUR ÆÐIR UM ALLT Fjölmargir skemmtikraftar, sumir löngu landsfrægir en aðrir nýfrægir eftir skemmtileg tilþrif í fyrri Óskastundum, bíða inni á fréttastofu eftir því að röðin komi að þeim. Sumir sitja í rólegheitum og horfa á sjónvarpið, flestir reyndar nema einn sem æðir um alla ganga, álútur í lillabláum jakka, prýddur gleraugum og sjónvarpsfarða. Hann á greini- lega að koma fram í beinni út- sendingu og virðist ekki lítast neitt alltof vel á það. Þetta er munnhörpuleikarinn frá Húsa- vík, Stefán Helgason. Ungu söngkonurnar þrjár, Hafnfirð- ingurinn Gyða Pálsdóttir, Bryndís Ólafsdóttir frá Vest- mannaeyjum og Margrét Sig- urðardóttir úr Garðabæ, virð- ast rólegri yfirbragðs en undir niðri kraumar spennan, lítt bærileg að öllum líkindum. Spaugararnir þrír frá ísafirði eru þögulir í kjólfötunum sín- um og nú er sennilega gott að hafa bangsann til að halda utan um. Og meðan kvöldið rennur að því er virðist átakalítið í gegnum myndavélarnar, kapl- ana, sjónvarpsbílinn og endur- varpsstöðvarnar allttil sjáaldra þorra þjóðarinnar standa þessir þátttakendur í krafta- keppni Stöðvar 2 á sviðinu og sýna það og sanna hve við fs- lendingar erum ríkir af hæfi- leikafólki sem alltof lítið ber á í hversdagslífinu, svo ekki sé nú talað um helgarnar. Braggablúsinn, Black Velvet, Vetrarsól, Bluesette og Manamanamm að hætti Prúðuleikaranna eru lög sem í náinni framtíð eiga eftir að tengjast upprennandi listafólki og ef til vill ekki síður tæki- færagefendunum Eddu og Óskastund. Dómnefndin var skipuð Svavari Gests, Pétri Kristjáns og Andreu Gylfadótt- ur en þeim var sett það erfiða verkefni fyrir aö velja eitt af þessum fimm skemmtiatriðum I sem eiginlega spönnuðu þrjú 10. TBL. 1992 VIKAN 69 TEXTI: JÓHANN GUONI REYNISSON / LJÓSM.: BINNI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.