Vikan


Vikan - 14.05.1992, Blaðsíða 83

Vikan - 14.05.1992, Blaðsíða 83
aldrei sama staðinn á nótnaborðinu tvisvar," segir Árni og hlær. „Þannig gerðum við fyrstu plötuna hans, þetta var allt improviserað. í kvikmyndunum eru verkin skrifuð og í gær var ég til dæmis að vinna við mynd sem heitir Alien 3. Það er svona „avant gard nútíma klassísk músík“ með alls konar hljóðeffectum.'ekki ólíkt tónlist Johns Cage. Skömmu áður var ég að spila við óskarsverðlaunaafhendinguna og þá allt öðruvisi hljómlist eftir John Williams í myndinni Far and Away með Tom Cruise. Þetta er ekki ósvipað því og að vera í sinfóníu- hljómsveit nema hvað tónlistin er fjölbreyttari og það eru engar æfingar heldur spilað beint inn á upptöku. Þessi bransi hefur breyst töluvert á undan- förnum árum því áður fyrr var mikil vinna fyrir sjónvarp. Þegar hljómsveitirnar eru eins stórar og þær eru við kvikmyndir um þessar mundir ræður hljómsveitarstjórinn aðeins leiðandi hljóðfæraleikara á hverju hljóðfæri, þann sem mestu ábyrgðina hefur og þetta verður meira eins og stór og óþersónulegur vinnustaður. Við gerðum nýja músík fyrir Dallas og Dinasty í hverri viku í meira en tíu ár og það var smærri og samhentari hópur sem gerði það efni. Tón- listin var skrifuð með það í huga hverjir voru í hljómsveitinni og það var tekið tillit til hæfileika og getu þeirra sem tónlistarmanna. Þá var oft hringt í mann og maður spurður um hugsan- lega möguleika fyrir ákvðiö hljóðfæri og þannig var um að ræða meiri beina þátttöku í sköpuninni. Nú er sama sem engin hljómsveit- artónlist gerð fyrir sjónvarp. Vinsælustu þætt- irnir eru stuttir grínþættir og sú litla tónlist sem notuð er er spiluð á synthesizer. Mér sýnist efnisvalið ganga I bylgjum en svona er staðan. Myndbönd hafa breytt upptökuháttum tón- listar fyrir kvikmyndir. Áður fyrr horfði hljóm- sveitin á myndina á tjaldi og spilaði undir en nú er það aðeins hljómsveitarstjórinn sem sér myndina á sjónvarpsskermi. Stundum er ég þakklátur fyrir að þurfa ekki að horfa á mynd- irnar en yfirleitt þykir mér ekki nærri því eins gaman að spila og ella. Sum tónskáldanna eru Glefsur úr gagnrýni vegna útkomu geisladisksins Fascinating Voyage í bandarískum tónlistartímaritum: „Fascinating Voyage sameinar tvo menn sem báðir eru fullkomnir lista- menn, fullkomnir tónlistarmenn og fullkomnir bassaleikarar ... Sam- eining Egilssonar á frábærri klassískri bassatækni og frjálsu flugi sjálfvakinnar listar, að spila af fingrum fram, er aðeins á færi frá- bærs djasslistamanns og er um leið eitthvað nýtt.“ (John Bany: International Society of Bassists, Magazine) „Bassi Árna er sífellt skínandi. Hann spilar í undursamlega nánu og fjað- urmögnuðu samspili við félaga sína, Pete Jolly, Jimmy Smith og Ray Brown . . . “ sammála mér í því að svo einkennilegt sem þaö kann að viröast þá spilar hljómsveitin bet- ur ef hún sér myndina um leið og hún spilar. John Williams og Jerry Goldsmith taka af þessum sökum upp alla sína músík á gamla mátann. I fyrra vann ég að um það bil 45 myndum," segir Árni og lætur mig fá lista yfir þær. Þar gefur að líta flestar af stærri kvik- myndum síðasta árs eins og JFK, Hook, Robin Hood, Addams fjölskylduna, Freejack, Americ- an-Tale 2, City Slickers og Prince of Tides svo fáeinar séu nefndar. Hver eru afskipti þín af tónlist fyrir utan stúdíóvinnuna og hvað er á döfinni hjá þér á þeim vettvangi? „Ég sem þó ég haldi því mest prívat. Ég sem fyrir kvikmyndir og leikrit. Konan mín er leik- stjóri og ég hef samið fyrir nokkur af þeim verk- um sem hún hefur verið að setja upp. Ég er með verk sem verður flutt af Sinfóníuhljóm- sveit íslands í nóvember. Þetta er 11 mínútna verk í einum þætti og heitir Reflections eöa Ihugun. Síðan er ég með tvö ný djasslög sem verða frumflutt á djasshátíð ríkisútvarpsins um miðjan maí. Valdimar Leifsson er að gera kvikmynd um Nínu Sæmundsson en ég samdi músíkina við hana og það er mér mjög kært verkefni. Því miður gefst lítill tími frá vinnunni til að spila djass en ég fór þó í fyrra og spilaöi aðeins í Þýskalandi. Mér var boðið þangað til fyrir- lestrahalds og kennslu og það var mjög skemmtilegt. Ég ætla að fara að hægja á mér innan kvik- myndaveranna á næstu árum og sinna meira kennslu og persónulegri viðfangsefnum. Ég hlakka mikið til að koma heim og spila á djass- hátíðinni í maí en þá verður djammað með gömlum félögum sem ég hef ekki spilað með lengi, Pétri Östlund og fleirum. Eins vona ég að mér gefist tækifæri til að skoða landið betur en það á alltaf ótrúlega mikið í manni þó ég hafi verið í burtu svona lengi." Árni leysir mig út með gjöfum og ég flýti mér til borgarinnar því hann hvíslaði að mér að á heimaslóöum sínum væru ekki bara litlar sæt- ar eðlur heldur krökkt af skröltormum villta vestursins. □ UMBOÐSMENN UM LAND ALLT HF NÝBÝLAVEGI 2,KÓPAV0GI, SÍMI (91)42600 HJ#LV4L HF SÍMI 91-642605 SMUR', BÓN- OG DEKKJAÞJÓNUSTAN HÓLDUR SF. HJÓLBARÐAVERKSTÆDI TRYGGVAGÖTU 15 • REYKJAVÍK TRYGGVABRAUT 12 • AKUREYRI S(MI 91-626066 SÍMI 96-21715 HJÓLBARDAVERKSTÆÐIGRINDAVÍKUR VÍKURBRAUT 17 • GRINDAVÍK SlMI 92-68397 10. TBL. 1992 VIKAN 83
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.