Vikan


Vikan - 14.05.1992, Blaðsíða 8

Vikan - 14.05.1992, Blaðsíða 8
nema maður sé tilbúinn að fórna því frelsi og þægindum sem peningarnir gefa.“ Dizzy Gillespie sagði einhvern tíma að hann liti svo á að lögin sem hann semdi hefðu alltaf verið til og hann þyrfti bara að detta inn í sveifl- una. Hvert sækir þú innblásturinn? „Það fer eftir því um hvernig tónlist er að ræða. Ef verið er að semja fyrir kvikmynd er náttúrlega unnið út frá andrúmslofti myndar- innar. Allir listamenn þurfa að hafa þann eigin- leika að geta túlkað hugmyndir og áreiti úr eig- in reynsluheimi með þeim miðli sem þeim er kærastur þó listin sé ein. Sumir sjá liti þegar þeir hlusta á tónlist og aðrir heyra músíkina í málverkinu. Mikið af djassspunanum kemurfrá undirmeðvitundinni og það er kannski það sem er ekki hægt að kenna öðrum að spila með. Ég get alveg verið sammála Dizzy því við erum alltaf að spila sömu tólf nóturnar sem er bara raðað á mismunandi hátt. Það getur vel verið að það hafi eitthvað meö persónu og skapgerð tónlistarmanna að gera að við eigum auðveldara en annað fólk með að setja okkur inn á sameiginlega bylgjulengd, en það sem mér finnst yndislegast við músík er þegar nokkrir einstaklingar eru að spila saman og detta inn á þessa sveiflu. Það er eins og þeir séu allir að hugsa það sama á sama augnablikinu. Þetta er eins og rafmagn, ég man til dæmis eftir svona upplifun þegar ég var að spila með Previn en hann er frábær undir- leikari, hann vissi stundum nákvæmlega hvert ég ætlaði næst í spunanum og það var gagnkvæmt. Það er eins og það sé E.S.P. eða hugarorka á ferðinni, alveg furðulegur hlutur og á sér aðeins örsjaldan stað á ferli tónlistar- manns. Það verður fullkomin samsömun á milli manna og maður veit að þetta samband er ei- líft. Stjórnendur, sem kunna sitt fag eins og Bar- birolli, eru eins og sendistöð. Þeir senda frá sér geisla eða hugsanir frá pallinum og hljómsveit- in er öll á sömu bylgjulengd. Það er ótrúlegt en þetta er hægt og sérstaklega gaman að því í djassi. Möguleikarnir á að þetta gerist eru þó hverfandi því að leiðirnar eru svo margar í spuna." Það hefur verið mikið um tækninýjungar í tónlistarheiminum undanfarin ár. Hvernig snýr það að þér? „Það er svo skrítið að þegar ég byrjaði í stúd- íóunum í Hollywood spilaði ég að mestu leyti á rafmagnsbassa en núna eru 99 prósent af vinnunni á kontrabassa. Því var spáð að strengjahljóðfæri eins og bassi, fiðla og selló myndu detta út með komu tölvutengdra hljómborða en sú hefur ekki orðið raunin. Þessi tæki ná engan veginn hljóðunum sem eru í strengjunum á gömlu hljóðfærunum. Eins er það með saxófón, það er ekki nokkur leið að ná saxófónhljóðum úr synthesizer. Þó tækin séu óneitanlega skemmtileg og bjóði upp á Frh. á bls. 82 Árni og Dorette fyrir utan heimili sitt í Los Angeles. ■ Djass getur verið flókinn í uppbyggingu og menn þurfa að vera þokkalegum gáfum gæddir til að spila djass. Það er mikil sköpun í djassi sem krefst mikils ímyndunarafls og sá sem spil- ar djass hefur möguleika á því að túlka tilfinningar sínar ... hljómsveitarinnar í Huston. André Previn var arftaki hans þar og við stofnuðum saman djasstríó við þriðja mann. André er snilldar djasspíanisti þó hann sé frægastur sem klass- ískur stjórnandi. Við ferðuðumst víða og héld- um djasskonserta, þar á meðal lékum viö á Listahátíð í Reykjavík 1974. Árið 1969 ákvað ég síðan að reyna fyrir mér í Los Angeles og hef búið í borg kvikmyndanna síðan." Það er vel við hæfi að Dorette kemur að þeim orðum maeltum og færir okkur poppkorn og gosdrykki. Ég spyr Árna hvað það sé við djassinn sem fyrir hann gefur meira aðdráttarafl en aðrar tónlistarstefnur og hverjir séu helstu eiginleikar sem góður djassleikari þarf að hafa. „Djass getur verið flókinn í uppbyggingu og menn þurfa að vera þokkalegum gáfum gædd- ir til að spila djass. Það er mikil sköpun í djassi sem krefst ríks ímyndunarafls og sá sem spilar djass hefur möguleika á að túlka tilfinningar sínar á þann veg sem ekki gefst innan annarra gerða tónlistar. Það er hægt að læra að spila klassíska músík á svipaöan hátt og að moka skurð og margir spila hana þannig. Djass er hins vegar ekki hægt að kenna nema tækni- lega séð upp að vissu marki. Það er ekki hægt að kenna hugarflug nema innan ákveðinna forsenda, svipað og það er ekki hægt að kenna manni að verða listmálari þó hann geti lært að blanda liti. Restin er bara einhver vitfirr- ing,“ segir Árni og skellir upp úr. „Djasstónlistarmaðurinn verður að vera ag- aður og á sama tíma meðvitaður um hvernig hann getur flogið innan þess ramma sem verið er að vinna með hverju sínni. Þetta er abstrakt tónlist sem býður upp á margbreytileika og það er sennilega það sem heillar mig mest við hana. Djass er konsertónlist að mínu mati og mér leiðist þetta klúbbasystem. Það dregur einnig úr áhuga mínum aö það er mjög illa greitt fyrir að spila djass og nær óhugsandi að vera með fjölskyldu og spila eingöngu djass 8 VIKAN 10. TBL.1992
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.