Vikan


Vikan - 14.05.1992, Síða 48

Vikan - 14.05.1992, Síða 48
LÍNEY LAXDAL ÞÝDDI LARin Sophia Loren er 57 ára, ein skærasta stjarnan eftir síöari heimsstyrj- öldina. Þegar hin árlegu ósk- arsverðlaun voru afhent fékk hún heiðursóskar. í raun er hennar eigið líf skrautlegra en nokkur bíómynd. Hún óx upp I sárri fátækt, barðist fyrir stóru ástinni sinni, átti í erfiðleikum með að eignast börn og þar fram eftir götunum. Meðan á öllu þessu stóð biðu aðdáendur hennar I löng- ER FAÐIR SONA MINNA, MÍN ÁST, MITT LÍF -segir leikk onan Sophia Loren um röðum eftir að fá að berja hana augum. Þeirfylgdu henni hvert sem hún fór. Sophia stóð samt báðum fótum á jörðinni. Hún er „donna popolana", kona fólksins. Þegar Sophia talar um ást- ina í lífi sinu fyllast augu henn- ar hlýju og hún segir: Ég þarf ekki á öörum manni en Carlo að halda, hvað sem slúður- dálkarnir segja. Ég hef ekki staðið í stööugum ástarævin- týrum. Mitt líf er að vera móðir sona okkar. Það jafnast ekkert í þessum heimi á við þaö að vera móðir og eiga góða fjöl- skyldu eins og ég á. Ponti-fjölskyldan býr á bú- garði sem kallast Þúsund eikur og þangað er klukkustundar akstur frá Los Angeles. Soph- ia var heiðruð sérstaklega við óskarsverðlaunaafhendingu sem ein af dýrmætustu stjörn- um bíómyndanna. Hún þakkar fyrir sig meö nýjustu mynd sinni, Laugardagur, sunn- udagur, mánudagur, sem gerð er í Hollywood og leikstjóri er eiginmaður hennar, Carlo Ponti, sem nú er 77 ára gamall. Synirnir, Carlo yngri og Edo- ardo, eru í skóla. Carlo er nú 23ja ára og líkist móður sinni. Hann spilar á píanó og vill verða píanóleikari. Edoardo er 18 ára og líkist bróður sínum lítið. Hann vill verða rithöfund- ur eða leikari og hefur nú þeg- ar sent frá sér fyrstu skáld- söguna. Mér líður vel þegar sonum mínum gengur vel, segir Sophia. Mér líður eins og 15 ára unglingi í návist mannsins mins, ég elska hann og dái út af lífinu. Sá sem vill fræðast um fjöl- skyldulíf þeirra ætti að horfa á nýjustu mynd hennar. Edo- ardo segir þá mynd lýsa heim- ilislífinu vel, bara ögn yfirdrifiö! Þar leikur Sophia móður sem hrífur karlmenn með kvenleika sínum. Og ekki var það Carlo sem kenndi henni. Nei, það gerði móðir hennar, Romilda. Sjálf vildi hún verða kvik- myndastjarna en þegar henni tókst það ekki kenndi hún dótt- ur sinni allt sem hún kunni í kvikmyndaleik. Móðir Sophiu ólst upp í litl- um ítölskum hafnarbæ, Pozz- uli. Þrátt fyrir mikla fátækt tókst henni að eignast píanó og hún hélt að hún væri fræg þegar hún var stopþuð á götu til að gefa eiginhandaráritanir. Það var þó af annarri ástæðu. Romilda tók þátt í keppni um hver líktist mest Gretu Garbo og vann. Verðlaunin voru ferð til Bandaríkjanna og reynslu- upptaka. Fyrir Romildu var þetta sem himnasending en hún fékk ekki aö fara. Amma hennar, sem var „padrone" fjölskyldunnar, sagði þvert nei. Bandaríkin voru ekki rétti stað- urinn fyrir unga stúlku. Millivegurinn varö sá að Romilda fékk aö fara til Rómar í reynslutöku hjá Cinecitta- stúdíóinu sem var líkt þeim „réttu" í Hollywood. Romilda komst þó aldrei þangað. Á leiöinni hitti hún mann sem kynnti sig sem Riccardo Scicolone. Hann sagðist vera kvikmyndaframleiðandi en það reyndist eftir allt saman plat. Tveim mánuðum seinna uppgötvaði Romilda að hún var ófrísk. Scicolone neitaði að giftast henni og Romilda þorði ekki heim af ótta við við- brögð fjölskyldunnar. Þann 20. september 1934 leit Sophia dagsins Ijós á fæð- ingarheimili fyrir ógiftar mæður. Hún var veiklulegur krakki og eftir þrjá mánuði neyddist Romilda til að fara til baka til Pozzuli með hana. Það var ekki mikið hold á barn- Það er engu líkara en að hér syngi Carlo Ponti italska aríu við fálegar undirtektir konu sinnar. En að öllu gamni slepptu: Hjónin saman á góðri stund. inu, fæturnir stóðu eins og spýtur út úr bleiunni, augun voru líflaus og húðin grá. Romilda haföi gleymt að hugsa út í ítölsku fjölskyldu- tengslin. Amma hennar útveg- aði peninga eftir krókaleiðum og hafði uppi á brjóstmóður handa Sophiu. Scicolone við- urkenndi Sophiu sem sitt barn og í gleði sinni yfir því varð Romilda ófrísk að öðru barni hans. í það skiptið neitaði hann öllu staðfastlega. I fæð- ingarvottorði Mariu, systur Sophiu, stendur að faðir sé óþekktur en í Sophiu fæðing- arvottorði stendur „figlio natur- ale" eða fædd utan hjóna- bands. í uppvextinum var Sophia ekki fallegt barn. Hún þorði varla að fara í skólann því strákarnir kölluðu hana bauna- spíru og lauslætiskróga. Hún fór ekki að þroskast fyrr en um 14 ára aldur en það telst seint fyrir ítalska stúlku. Loksins þegar það gerðist breyttist hún í nýútsprungna rós. Þá byrj- uöu strákarnir að blístra og leikfimikennarinn hennar bað hana að giftast sér. Sophia sagði honum að spyrja mömmu sína en svar Romildu var á þann veg að hann ætti að fara heim í kalt bað! Hún hafði aðrar ' áætlanir dóttur sinni til handa. Romilda las í blaði um feg- urðarsamkeppnina drottning hafsins og sendi inn umsókn fyrir Sophiu. Þrátt fyrir að al- menningur hefði aðra skoöun lenti Sophia í öðru sæti. Verð- laun hennar voru veggfóðurs- rúlla og dúkur með sex serví- ettum. Fólk dreif Sophiu niður að sjó, dýfði henni þrisvar í vatnið og bað guð að blessa drottningu hafsins. Sophia hefði verið alsæl meö að gifta sig og eignast fimm „bambíni" með manni sínum en það vildi Romilda ekki. Hún tók Sophiu með sér í Cinecitta-stúdíóið í Róm þar sem óskað hafði verið eftir 30 þúsund aukaleikurum í mynd- ina Quo Vadis. Sophia og Romilda léku þræla. Sophia fékk fleiri smáhlutverk og hún geislaði af ánægju og lífsgleði. Þegar þær fengu laun dags- 48 VIKAN 10. TBL.1992
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.