Vikan - 14.05.1992, Page 53
VtÐSKIPTAKORT LESENDA VIKUNNAR:
HUGARORAR HALLGERÐAR
ÞAÐ FEITA SVIN
Eins og sjái ekki allir í
gegnum svona rosalega
spillt gengi eins og þetta
lið sem ég sit uppi með hérna
í Hrafnanesinu. Pælið í því.
Mamma er bara í því að
súmma með myndavélinni á
Bubba bróður í meiri háttar
von um að þetta metralanga,
holdmikla níutíu og fimm kílóa
litla kvikindi sé eitthvað að
grennast eða eitthvað. Það sjá
allir að það er borin von hjá
gömlu ryksugunni ef henni
dettur i hug að hægt verði að
komast hjá því bráðlega að
klippa utan af honum fötin, svo
svakalega þéttist kubburinn á
hverjum degi.
Eitt kvöldið fékk mútta hið
fullkomna geðsýkiskast vegna
þess að það kom bara heilt
gengi úr skólanum til að rukka
Bubba bróður um stórfé vegna
gæslu i skólanum. Stubburinn
hefur þá borgað skólasystkin-
um sínum fyrir að vernda sig á
skólalóðinni. Glæta. Guttinn
varð svo hræddur þegar liðið
kom að rukka að hann skellti
sér undir rúmið hjá mér og ég
bara fann allt í einu að ég rak
svona rosalega nefið í loftljós-
ið þegar hann og 95 kílóin lyftu
mér upp með það sama og ég
skall svo bara á gólfið. Pælið í
því.
Ég ætla sko að afneita öllum
tengslum við hann. Ég finn svo
innilega hvað hann er eitthvað
tæpur. Aftur á móti má segja
að mamma elski að dekra
þetta litla lúmska „red head“.
Það sjá allir aö hann deyr einn
daginn hægum dauðdaga úr
offitu enda blæs guttinn út
stanslaust. Það má segja aö
ég fái frekar lítið að borða.
Pælið í því ég passa ennþá
nokkurn veginn i skírnarkjól-
Pabbi segir að Bubbi sé
meiri háttar feitur og bauðst til
að lána honum lífstykkið
hennar ömmu sem hann not-
ar reglulega. Geitin varð aö
leggja gamla gaurinn á gólfið
og hálfpartinn að þjappa hon-
um saman til að magabeltið
passaði siðast þegar þau fóru
út, svo manni finnst að hann
ætti ekkert að vera að breiða úr
sér þó Bubbi sé nokkurn veg-
inn eins og sæmilega stórt
háhýsi á þverveginn. Ég aftur
á móti kom með ferlega fína
lausn fyrir báða og það má
segja að allt hafi orðið brjálað
á eftir. Ég bara gaf konunni í
næsta húsi allt matarkyns um
helgina til að hjálpa þessum
pöddum að ná mittismálinu
niður.
Bubbi trylltist og týndist í
sólarhring. Hann fannst í fang-
inu á Tótu frænku, mitt í henn-
ar hundrað og þrjátíu kílóum
og hún var að dæla í hann
drasli úr kistunni. Pabbi smellti
sér aftur á móti með það sama
heim til ömmu gömlu sem er
enn þá tveim dögum seinna
að troða puttann út. Mamma
er í kasti og segir að ég eigi
við geðræn vandamál aö
stríða.
Við skulum bara athuga það
að þegar ég ráðlagöi Jóu vin-
konu að selja á basar allt mat-
arkyns heima, einmitt þegar
allir sáu að pabbi hennar náði
næstum að heiman og yfir í
næsta garð með aukakílóin,
þá gekk allt svakalega vel uþp.
Gellan, sem átti garðinn, sá
hvað guttinn var svangur og
gaf hlunknum 30 kíló af gulrót-
um. Hann þarf ekkert meiri
mat til jóla og 70 kílóa fram-
parturinn á honum hvarf úr
garði perunnar fljótlega. Von-
andi verö ég uppgötvuð fljót-
LITUN, STRÍPUR,
KLIPPING
Gnoðarvogi 44-46 • 104 Reykjavík
sími: 39990
Elín Jónsdóttir, hárgreiðslumeistari,
Ásta K. Árnadóttir, Elva B. Ævarsdóttir,
Halla R. Ólafsdóttir.
CRi
os
c
Snyrlislofa A- snyrlirörnrcrslnn
Engihjalla X (hús Kaupgarðs)
200 Kópavogi
s: 40744
Alhliða snyrting - Litgrcining
Katrín Karlsdóttir fótaaðgerða- og snyrtifræðingur
HÁRSNYRTISTOFAN
s
QRAnDAVCGI47 0 626162
Hársnyrting fyrir dömur og herra
Veitum
10% afslátt
við afhendingu
þessa korts!
OPID A LAUGARDÖQUM
SfeRSTAKT VT.RD FYRIR CLLILlPT.YRlSÞECiA
Mrafnhildur Konrádsdóttir hárgreidslumeistari
Helena Hólm hárgreidslumeistari
Asgerdur FelLxdóttir hárgreidslunemi
m/733M
X
RAKARA- éc HARÍjRE/ÐSLöfSTVFA
HVERFISGÖTU 62 101 REYKJAVlK
10. TBL. 1992 VIKAN 53