Vikan - 14.05.1992, Page 62
á röngum athöfnum sinum og alltot oft I einhvers
konar tilgangsleysi.
SJÁLFSVÍG OG LÍF AÐ LOKNU ÞESSU
Hvaö varðar hugmynd þína um aö fremja sjálfs-
morð er þetta aö segja: Það breytir hreint engu,
elsku drengurinn minn. Þvert á móti eykur það á
kvöl þína og áhyggjur. Þú lifir líkamsdauðann og
verður því eins og við hin, hvort sem þú ert hér eöa
hinum megin grafar, að taka öllum afleiðingum af
gjörðum þínum. Það mun aldrei á endanum verða
verk neins nema þín.
Þú refsar þér sjálfur með öllum ákvörðunum og
framkvæmdum sem eru í eðli sínu rangar. Við tök-
um ekki líf okkar sjálf af þvi að þaö er ekki til neins,
auk þess sem þannig framkvæmd er óguðleg og
siðferðislega röng. Þaö benda allar rannsóknir vís-
indanna i sömu átt þegar kemur að möguleikum á
að við lifum líkamsdauðann. Hugur okkar er ekki
efniskenndur og hann lifir þrátt fyrir að efnislegir
þættir persónu okkar deyi. Persónuleiki okkar og
vilji, auk hugsana okkar lifa eftir dauðann. Það þýðir
að draumar okkar og þrár gera það líka ásamt nátt-
úrlega öllu þvi sem viðkemur dulminni okkar. Svo
þú sérð að lausn þinna mála er ekki svokallaður
dauði. Aftur á móti verður þér aldrei refsað fyrir það
sem þú hefur sjálfur sæst á að taka afleiðingum af
hér á jörðinni og fylgt hefur refsikerfi mannanna og
þeim dómum sem þeir láta falla hver við annan af
alvarlega gefnu tilefni refsiverðs athæfis.
Ef við, eins og áður sagði, iðrumst og förum í
gegnum þá refsingu sem mennirnir hafa með hinum
ýmsu lagasetningum ákvarðað fyrir hvern annan,
þegar þeir setja meðal annars lagaákvæði sem fela
í sér refsingu í formi fangelsisvistar eða fjárútláta
vegna brota á hegningarlögunum, er það náttúrlega
sú refsing sem við tökum út hér og nú. Aftur á móti
er engin ástæða til að ætla að yfir okkur vaki refs-
andi guð heldur gilda bara þau lögmál báðum meg-
in grafar að sá sem flýr og felur brot sin sleppur ekki
við að taka afleiðingunum af þeim þó að hann hverfi
úr líkamanum. Við eigum ekki að ákveða sjálf okkar
skapadægur, þaö gerir Guö einn fyrir okkur. Annað
er alrangt atferli og óréttlætanlegt og það veldur
jafnframt öllum þeim sem eftir lifa og elska okkur
kvöl og pinu sektarkenndar og vonleysis.
PERSÓNULEG UPPBYGGING
JAKVÆTT MARKMIÐ
Það er afar hyggilegt hjá þér að sækja AA fundi og
ekkert sem mælir því mót. Hitt er alveg rétt ályktað
hjá þér að það er og verður alltaf rétt að fara nokkuð
ólíkar og umfram allt jákvæðar leiðir að sjálfstyrk-
ingu. Það er sennilega athugandi fyrir þig að fá um
tíma uppbyggingu hjá góðum og skilningsríkum sál-
fræðingi eða félagsráðgjafa.
Eins myndi ég kynna mér flestar þær sjálfstyrkj-
andi bækur sem verslanir bjóða upp á núna í seinni
tíð. Þær geta, ef þú lest þær hægt og veltir innihaldi
orðanna vel fyrir þér, hjálpað þér mikið. Eins er að
það eru og hafa verið starfandi alls konar félaga-
samtök fólks sem vill deila áhugamálum sínum og
lífsviðhorfum með öðrum. Líknarfélög eru oft góð
leið til að byggja sig upp i gegnum bæöi félagslega
og andlega, láta sem sagt eitthvað gott af sér leiða
um leið og við fáum ágætis félagsskap út úr störfun-
um líka.
Hægt er að kynna sér störf hinna ýmsu trúfélaga
sem bjóða fólki bæði stuðning og biblíutengda
fræðslu sem virkar oftast ákaflega vel þegar við vilj-
um byggja okkur upp i gegnum aðra og með öðrum
andlega og félagslega, með þá góðu tilfinningu að
Jesús Kristur sé nálægur manni. Það er mjög já-
kvætt að skiptast á skoðunum og deila reynslu með
öðrum og getur bara ekki verið annað vegna þess
að þegar þannig sjónarmið ríkja erum við bæði að
vinna á sem manneskjur og styrkja það góða í
okkur, á sama tíma sem við erum að uppræta það
sem miður kann að vera í okkar ágætu persónu.
LÆRDÓMUR EYKUR ÝMSA MÖGULEIKA
Það væri reglulega sniðugt fyrir þig að drifa þig á
skólabekk við fyrsta tækifæri og velja þér til lær-
dóms fag sem sameinar sem flesta hæfileika þína
og jafnframt býður upp á að sú erfiða persónulega
reynsla sem þú býrð yfir gagnist þér líka. Vissulega
mun það breyta ýmsu í lífi þínu ef þú tekur þá ákvörð-
un að bæta úr þekkingarskorti þínum með námi
sem getur svo síðar meir gefið þér starfsréttindi.
Þú getur aldrei tapað á að mennta þig, hvorki
manneskjulega eða peningalega. Hvað varðar
sjálfstraust og almenna sigurvissu þér til handa þá
er alveg Ijóst að hvort tveggja mun vaxa við hverja
þá þraut og dáð sem þú drýgir sjálfum þér til fram-
dráttar, hvort heldur það er í nýju lífshlutverki tengdu
starfslegum framgangi þínum eða einfaldlega því
sem gerir tiltrú þína á eigið ágæti manngildislega
séð að auknu keppikefli. Langi þig til að læra þá
gerðu það.
SAKAMENN EIGA SINN RÉTT
Auðvitað er ekki loku fyrir það skotiö að fyrrverandi
sakamenn eigi möguleika á annars konar og ögn
jákvæðara lifi en þvi sem dregur dilk vandræða á
eftir sér. Sá sem af einlægni ákveður að breyta lífi
sínu og snúa frá villu síns vegar er og verður alltaf
á mjög athyglisverða máta eftirtektarverður og öðr-
um og óverulegri stórgóð fyrirmynd. Það er fárán-
legt að hafna fólki einungis af því að það hefur um
tíma farið út af sporinu. Fyrrverandi afbrotamenn
geta orðið fyrirmyndarmenn hvað sem öllum fyrri
mistökum og öðrum almennum axarsköftum líður,
bara ef þeir vilja og nenna að setja sér þannig
keppikefli sjálfir og fá að auki rétta aðhlynningu
þeirra sem eru bæði umburðarlyndir og víðsýnir.
Betra er aö hafa i huga að það er, satt best að
segja, ekki útilokað að syndir annarra geti einmitt
orðið þær syndir sem við eigum eftir að drýgja, þó
fátt eða ekkert bendi til þess eins og málum okkar er
háttað í dag. Við erum, þegar grannt er skoðað,
flest á mismunandi máta eitthvað breysk og í sjálfu
sér ekkert athugavert við það. Aftur á móti eigum
við ekki að þurfa að gera sömu mistökin nema einu
sinni. Það er nefnilega enginn sem kýs aö vera af-
brotamaður og öðrum mönnum aumari í mannvirð-
ingu og tækifærum.
Það er bara svo misjafnt hvað við erum staðföst í
mótlæti og meðvituö um rétt og rangt. Þau okkar
sem telja sig með heilbrigða hugarstarfsemi og
siðprúð verða vonandi aldrei til þess að fara með
þeim hætti út af sporinu að það verði vart aftur tekið.
Það sem við eigum aö meta og meta réttlátlega er
þegar sá sem er aflagaöur ákveður að snúa frá villu
síns vegar, meinar það og tekst það jafnframt.
Það er ekki til neins, þegar búið er að taka af-
leiðingum af syndum sínum og brotum, aö vera að
velta sér upp úr fortíðartengdum hlutum sem við
höfum nú þegar unnið okkur frá og tekið út okkar
refsingu fyrir, þó þeir séu og hafi verið í eðli sínu
bæði slæmir og vart réttlætanlegir. Við ættum aldrei
að gera þeim sem hefur kosið að breyta lífi sínu til
hins betra ókleift að gera það með sífelldum áminn-
ingum um að fortíö þeirra hafi verið bæði dökk og
aflöguð ef nútíð þeirra og hugsanleg framtíð er ekki
líkleg til aö innihalda neitt annað en góða og gagn-
lega breytni og þó nokkuð af sólskinsköflum fyrir
okkur sjálf og aðra okkur nálæga.
SAGA ÞÍN ATHYGLISVERÐ
Ég vil að lokum þakka þér innilega það hugrekki að
skrifa mér og gefa öðrum um leið hlutdeild í erfiðri
og brokkgengri reynslu þinni. Það er alveg vist, eins
og þú spyrð mig um sjálfur, að þín saga er ágæt
áminning um það sem betur má fara i samskiptum
okkar hvert við annað. Við vitum eftir að þú hefur
upplýst okkur um gang mála í ævisögu þinni að það
er svo sannarlega ekki röð af tilviljunum sem veldur
því að svo fór sem fór.
Við skulum bara gera okkur grein fyrir því að í
fyrstunni byrja aðstæður þínar allar mjög óhöndug-
lega. Ekki síst eru foreldrar þinir, sem eru og hafa
verið í hvers kyns klúðri í sinu lífi, töluvert sekir
gagnvart þér og systkinum þínum. Þau hafa því
miður flutt ákveðið magn eigin vanda yfir á börn sin
með þeim hætti að þessi börn - samanber þig -
hafa átt í erfiðleikum með að stjórna liti sinu
skynsamlega. Fólk á gjarnan erfitt uppdráttar ef
byrjun lífs er böguleg. Ekki hefur auk þessa bætt úr
skák afleiddur félagsskapur þér eldri og lífsreyndari
einstaklinga sem því miður reyndust ekki fremur en
foreldrar þínir heppilegar fyrirmyndir fyrir ómótaðan
og siðferðislega ófullkominn barnshuga þinn á árum
áður.
TÍMABUNDNIR KROSSAR
Hvað um það, þú ert að átta þig og rólega að af-
tengja þig rugli fortíðarinnar. Það er vissulega að-
dáunarvert hvað sem öllum hroka annarra líður. Ég
á ekki von á að kærastan þín yfirgefi þig, ef hún
bara áttar sig á góðum markmiðum þínum tengdum
framtíð ykkar, þrátt fyrir að þú komist vart hjá að
taka afleiðingum þeirra dóma sem þú átt ennþá eftir
að sitja af þér. Auðvitað verður erfitt fyrir hana eins
og þig að bera þá krossa tímabundið sem röngu líf-
erni þínu áður fyrr óneitanlega fylgja enn um sinn.
Hún þarf eins og þú að átta sig kirfilega á því að við
getum sem betur fer valið okkur lífssýn eftir geð-
þótta ef við óskum þess og vinnum kertisbundið að
því að gefa henni líf á jákvæðri forsendu.
Hitt er svo annað mál að það hefur varla fariö
framhjá henni að þú vilt annars konar og heilbrigð-
ara lif og engin sérstök ástæða til að efa að sá góði
vilji þinn sé raunverulegur. Það kemur fram í athöfn-
um þínum síðustu tvö árin þar sem þú hefur vissu-
lega staðið þig frábærlega vel. Ef ég væri sem þú
myndi ég sýna henni þessi svör mín og um leið
segja henni frá ótta þinum og áhyggjum í sambandi
við framhald á ykkar samvistum.
Það borgar sig alltaf að vera heiðarlegur og taka
í því sambandi smávegis áhættu. Eða eins og gamli
puttinn sagöi einu sinni þegar hann var að rifja upp
fortíð sína, þá níræður: „Elskurnar minar, þegar
ég var yngri gerði ég eitt og annað rangt, en eftir
að ég eltist sá ég að það borgaði sig bara alls
ekki. Málið er nefnilega að það koma svo miklar
og erfiðar afleiðingar af öllum þeim athöfnum
okkar sem eru vanhugsaðar og sjálfmiðaðar að
það hálfa væri reyndar nóg. Ég ákvað bara að
taka mig þessu líka takinu og hef eiginlega verið
nokkurn veginn hálfheilagur siðan eftir seinna
stríð góðra breytinga. í dag gengur mér vel og
er bæði sáttur við mig, guð og menn enda geri
ég ekki hrossaflugu mein þó hún valdi mér bæði
svefnleysi og öðrum álíka óþægindum. Svona
hef ég nú breyst og það var ekkert mál þegar frá
leið að greiða úr flækjum fortíðar sem var væg-
ast sagt bágborin siðferðislega og telur maður
þá ekki ótæpilegt kvennafar með eða þannig."
Guð gefi þér tiltrú á eigið ágæti og gangi þér virki-
lega vel að rétta endanlega úr þinum áhugaverða
og sérstaka kút góðs manngildis.
Með vinsemd, Jóna Rúna.
LAUSN SÍÐUSTU GÁTU
+ + + + + + + + H A + + + + s + + +
+ + + + + + + B ó K A R 7 N N + s F
+ + + + + + + A G K + A L 'T’ E I 'f A
+ + + + + + + K V I K 'T' + B I Ð A N
+ + + + + + + S Æ L L A + + S K u T<
+ + + + + + + + R E I D E 1 + A T A
+ + + + + + G u Ð S F I R D A p + R
+ i G U L K E K + A + + + N B + S +
+ + E L i A S + í R S K A + E L t 3
+ B I L T + D S + H E I Ð + L t T A
H 0 L U R + 0 T S Æ R Ð + R + K A L
+ L + R A K R I + L 1 F G A + A R A
A T A + + ö + K A L A R E F U M + M
+ A L p A I? + K K + + A F + U S S A
E L D I N G + o K E S T A + K Æ N N
+ E 1 N D + K R A F A + + L 0 F 1 Jj
+ I N N I + R u N A G R E 1 N Ð R
+ K N 1 P c I F E S T I N G + N + A
+ + + + L Á N A S T + S + G A G A +
+ M Ý M ö R G + + + S + Þ U L A N +
+ E L •f N A + F L I N K T R + R t S
+ D + M + + L E Y S I N G + B + S K
+ + B ó K H A L D S G ö G N I N + E
S N ö S + H U L D + L R j A L A Ð I
H É L A + H N 0 A + A R A , R A rr + N
i 5 L E N D I N G A B ó K 1 + R 0 L A
62 VIKAN 10. TBL. 1992