Vikan - 14.05.1992, Side 75
Frh. af bls. 23
Hér er eitthvað í gangi allan
ársins hring.
Kvöldskemmtan af öðru
tagi, eins og heimsókn í
diskótek og nætuklúbba, er
ríkulega hægt að veita sér sé
áhugi fyrir slíku. Á þessu sviði
er París líka sögð ótæmandi.
Nægir ef til vill að nefna vin-
sæla næturklúbba og
skemmtistaði á borð við Crazy
Horse, Apocalypse, Régines,
Castel og Lldó. Skoðunarferð
að kvöldlagi um Latínuhverfið
með heimsókn I djasskjallara
og lítið veitingahús á dag-
skránni er llka tilvalin kvöld-
skemmtan sem kostar ekki
mikið.
gluggana eru borð við borð og
er stólunum ávallt raðaö þann-
ig að gestir geti virt fyrir sér líf-
ið fyrir utan. Þessa iðju stunda
margir innfæddir og ekki síður
ferðamenn sem ánetjast hafa
borgarmenningunni. Ganga
um miðbæinn, meðfram
Signubökkum og um Latínu-
hverfið að kvöldi sem degi er
ógleymanleg dægradvöl fyrir
Frónbúann því margt ber fyrir
augu og eyru.
Það er líka tilvalið fyrir þá
sem vilja kynnast París örlítið
frá skemmtilegu sjónarhorni
að fara I siglingu um Signu
með einum hinna fjölmörgu
fljótabáta. Ferð I Eiffel-turninn
er einnig nauðsynleg bæði til
þess að sjá eitt af undrum ver-
aldar og til .þess að geta notið
útsýnisins yfir borgina í góðu
veðri. Útsýnið ofan úr Sigur-
boganum er líka aldeilis frá-
bært í sæmilegu skyggni.
Menningarlíf I heimsborg-
inni París er svo mikið og
margslungið að ógjörningur
væri að ætla að gera því ein-
hver skil I stuttri grein. Aö
þessu leyti er borgin einnig
ótæmandi. Söfnin skipta tug-
um og jafnvel hundruöum, óp-
eruhús eru nokkur, unnt er að
velja á milli óteljandi leikhúsa,
tónlistarhalla og kvikmynda-
húsa og svo mætti lengi telja.
Það er tilvalið að snæða kvöldverð á veitingastaðnum Jules Verne
í miðjum Eiffelturninum í Ijósaskiptunum. Maturinn þar er ákaflega
góður en í dýrari kantinum. Á meðan matarins er notið má svo virða
fyrir sér stórfenglegt útsýnið yfir borgina. Sé farið i kvöldverð á
staðnum má sjá borgina í björtu og síðan upplýsta af borgarljósun-
um þegar kemur að eftirréttinum. Nauðsynlegt er að panta borð
með góðum fyrirvara - helst áður en lagt er af stað heiman frá
Fróni...
Séð yfir borgina úr veitingasal Jules Verne. Það er marmarakirkjan sem stelur senunni, en hún stendur
við hlið listamannahverfisins vinsæla á Montmartre-hæðinni. ljösm.: þjm
borginni er krökkt af fólki alls
staðar og bregður íslendingi
svolítið í brún, vanur fámenni
og miklu andrými.
Að lokum verður hér vitnað í
inngangsorð Jónasar Kristj-
ánssonar í kveri sínu, París -
heimsins höfuðprýði, en hann
kann að koma orðum að
hlutunum og fer ekki í grafgöt-
ur með skoðanir sínar.
„Hvergi sjá ferðamenn fólk,
sem ber sig betur á gangstétt-
um úti eða er betur klætt en
einmitt Parísarbúar. Gildir það
jafnt um vinstri bakka Signu
sem hægri bakkann, þótt fötin
geti verið dýrari hægra megin.
Þetta stingur í stúf við fremur
ræfilslegt útlit fólks í borgum
annarra Vesturlanda. Til
dæmis ganga Parísarbúar lítið
í gallabuxum.
Parísarbúar eru afar stoltir
og sjálfum sér nógir. Þeir geta
því haft kuldaleg áhrif á ferða-
menn, sérstaklega þá sem
ekki hafa komið sér upp ein-
hverri kunnáttu í franskri
tungu. Óbeit þeirra á ensku
hefur þó minnkað töluvert á
síðustu árum, einkum á þeim
stöðum, þar sem ferðamanna
er helst von, svo sem á hótel-
um og í veitingahúsum.
Ferðamenn geta komist langt
á þeirri frönskukunnáttu einni
að geta stautað sig fram úr
frönskum matseðlum."
Til þess að koma sér upp al-
gjörum lágmarks orðaforða og
geta flett upp á orðum þegar í
nauðir rekur, til dæmis á veit-
ingahúsum, er fólki ráðlagt að
verða sér úti um litla franska-
(slenska/íslenska-franska
orðabók. Þess má svo geta að
í Berlitz-ferðakverinu er að
finna svolítinn orðalista. □
MEÐ BÖRNIN í PARÍS
Fólk þarf ekki að óttast að
börnunum þurfi að leiðast í
Parísarferðinni. Af nógu er að
taka bæði í borginni sjálfri og í
nágrenni hennar. Unnt er að
ferðast með lestum ýmist ofan-
eða neðanjarðar á skammri
stundu til allra þeirra staða
sem til greina gætu komið eins
og til dæmis í hinn nýja Euro
Disney ævintýragarð sem
opnaður var í apríl síðastliðn-
um og í Asterix-garðinn sem
er börnum ekki minni ævin-
týraheimur, þó á evrópska
vísu sé. Með neðanjarðarlest
er heldur ekki mikið mál að
komast í dýragarðinn (í Bois
de Vincennes) þannig að unnt
er að gera börnunum dvölina
ógleymanlega - svo fremi að
gert sé ráð fyrir þeim í ferðaá-
ætluninni. Börnin hafa að sjálf-
sögðu gaman af að fara upp í
Eiffel-turninn og siglingin um
Signu ætti þeim heldur ekki að
þykja langdregin. Þar að auki
ættu þau að geta komist í
nána snertingu við menningu
og listir þó heimsóknir á söfn
séu kannski ekki á óskalista
þeirra. í Pompidou-listasafn-
inu er opin vinnustofu fyrir
börn á miðvikudögum og laug-
ardögum og þar geta þau
teiknaö og málað að vild.
„FÖGUR OG
FRJÁLSLEG"
París er glaðleg borg og íbúar
hennar virðast kátir og ham-
ingjusamir. Götulífið er því
hressandi og skemmtilegt fyrir
Frónbúann. Borgin er stór og
geysiþéttbýl - með ólíkindum
er oft og tíðum hve má laga
sig að miklum þrengslum. í
PARÍS
10. TBL. 1992 VIKAN 75