Vikan - 14.05.1992, Page 86
STTÖRNUSPÁ
ja
HRÚTURINN
21. mars - 19. apríl
Seinni hluti maímánað-
ar byrjar ekki vel hjá þér. Tungl-
ið verður fullt 16. maí og þá er
ekki góður tími hvað kynlíf og
rómantík varðar. Deilur gætu
jafnvel blossað upp. Eftir þann
20. batnar ástandið. Tjáskiptin
verða liprari og síðustu dagar
mánaðarins lofa góðu.
(hjh NAUTIÐ
^ 20. apríl - 20. maí
Fjármál þín halda áfram
að vera jákvæð næstu daga. Þú
virðist vera í þeirri ákjósanlegu
aðstöðu að geta bæði keypt og
sparað samtímis. Forðastu
samt þrjósku ef þú vilt koma
þínu I gegn þann 21. í rauninni
ertu með pálmann í höndunum
og þú færð þitt í gegn með
lipurð.
TVÍBURARNIR
21. maí - 21. júní
Þú hefur sterka, já-
kvæða útgeislun þessa dagana.
Tilfinningar þínar komast þó í
uppnám 20. maí, sennilega
varðandi kynlíf eða hugsanlega
fjármál nema hvort tveggja sé.
Daginn eftir þarftu að sýna hátt-
vísi ef þú vilt fá þitt fram. Seinni
hluti mánaðarins verður sveiflu-
kenndur.
KRABBINN
\Cl/ 22. júní - 22. júlf
Áhugamál þín skipta þig
miklu um miðjan mánuð. Þegar
tunglið fyllist, 16. maí, gætu ris-
ið upp deilur við ástvin vegna
tíma sem þú eyðir með öðrum.
Seinni hluta mánaðarins virðistu
bjóða tilfinningalegum vanda-
málum heim, en þú tekst á við
þau eins vel og þú getur.
LJÓNIÐ
23. júlí - 23. ágúst
Forðastu deilur við for-
eldra þína eða sambýlisfólk
þegar tunglið verður fullt, 16.
maí. Kvöld sama dags gæti hins
vegar orðið mjög hagstætt fyrir
rómantík. Eftir 21. maí gætirðu
haft mikið að gera en verkefnin
eru þér áhugaverð og þú nýtur
þeirra. Brostu framan í heiminn.
MEYJAN
24. ágúst - 23. sept.
Sýndu ennþá svolitla
þolinmæði, að minnsta kosti
fram yfir 16. maí. Eftir þann dag
fara máiin að snúast þér í hag
þannig að seinni hluti mánaðar-
ins verður eftirminnilegur. Vorið
er að vísu árstíð rómantíkurinn-
ar en hún er ekki alltaf öll þar
sem hún er séð. Varkárni sakar
ekki.
VOGIN
24. sept. - 23. okt.
Þú virðist vera upptek-
in(n) af ákveðnu, nánu sam-
bandi. Fulla tunglið 16. maí virk-
ar vel á þig enda liggur róm-
antíkin í loftinu. Beittu háttvísi
21. maí. Það mun koma sér vel
fyrir þig síðar. Þú færð nýtt
áhugamál eftir 26. maí en færð
seinna tíma til að sinna því.
SPORÐDREKINN
24. okt. - 21. nóv.
w Viss persónuleg sam-
bönd eru þér mjög hugleikin um
þessar mundir. Eftir 26. maí
fara hugsanir þínar að snúast
um fjármál og kynlíf. Reyndu að
láta tilfinningarnar ekki stjórna
þér um of. Forðastu ónauðsyn-
leg ferðalög síðustu viku mán-
aðarins. Líttu þér frekar nær.
BOGMAÐURINN
22. nóv. - 21. des.
Vorið gerir þig ástíðu-
fulla(n) og þig langar venju
fremur að njóta lystisemda
lífsins. Þetta veitir þér jákvæða
útgeislun og eftir 26. maí hugs-
arðu meira um aðra en sjálfan
þig. Þetta er eiginlega tvískipt
ástand tilfinningahita og af-
slöppunar.
STEINGEITIN
22. des. - 19. janúar
Víðsýni þín er með
mesta móti. Áhrif vorsins láta
ekki margt fara fram hjá athygli
þinni. Þetta gerir þig stórhuga
og þig langar að takast á við
eitthvað nýtt. Hagnýttu þér
þessa orku fordómalaust til að
koma ár þinni vel fyrir borð, til
dæmis varðandi starf þitt og
stöðu.
VATNSBERINN
j, 20. janúar -18. febrúar
' ^ Þér virðist líða best
heima við næstu daga. Þar
færðu góðar hugmyndir sem þú
nýtur að þróa með þér. Sam-
skipti þin út á við verða hins
vegar fremur hversdagsleg
seinni hluta mánaðarins. Það
virðist þó ekki angra þig og þú
bíður ævintýra sumarsins í
rólegheitum.
FISKARNIR
19. febrúar - 20. mars
Þú virðist vera í fjáröfl-
unarhugleiðingum en ferð vel
með það. Óþolinmæði verður
vart hjá þér 16. maí (fullt tungl)
enda finnst þér hlutirnir ganga
hægt. Síðari hluti mánaðarins
verður frekar tíðindalítill - ein-
mitt þegar þig langar í svolitla
tilbreytingu.
McPherson, sem var auðugur
viskíframleiðandi, þurfti eitt sinn
að ganga undir vandasaman
uppskurð. Aðgerðin tókst ágæt-
lega og skömmu síðar fékk
McPherson reikning frá lækninum
upp á tíu þúsund krónur. Sem
góðum Skota þótti McPherson
reikningurinn nokkuð hár. Hann
hugsaði ráö sitt og gekk síðan á
fund læknisins:
- Er yður Ijóst, kæri læknir, að
með núverandi skattafyrirkomu-
lagi verð ég að greiða fjögur
hundruð þúsund krónur til þess
að geta greitt yöur tíu þúsund
krónur.
Læknirinn varð að viðurkenna
aö þetta væri rétt og McPherson
hélt áfram:
- Þér, sem þekktur læknir,
hljótið að vera hátekjumaður. Hve
mikið haldið þér að verði eftir
handa yður af þessum tíu þúsund
krónum?
Læknirinn fór nú að reikna og
komst að þeirri niðurstöðu að
hann mundi halda eftir um sex
hundruð krónum.
m/c
|i|i„líí!iiii|iii||i
- Með öðrum orðuum, sagði
McPherson, - til þess að borga
yður sex hundruð krónur verð ég
aö græða fjögur hundruð þúsund
krónur. Mér finnst þetta fráleitur
bissniss fyrir okkur báða og þess
vegna geri ég yður tilboð um aö
við jöfnum reikninga okkar með
24 flöskum af viskíi á 50 krónur
stykkið, þar meö fáið þér 1200
krónur.
Læknirinn, sem einnig var
Skoti, tók tilboðinu.
Skynsamur maður lærir fljótt
það sem er krafist í hjónaband-
inu á meðan sá heimski er alltaf
að þrátta við konuna.
FINNDU 6 VILLUR
Finnið sex villur eða fleiri á milli mynda
•%ce nu jnpuais nupnHs e 'Qe>(uu!LU jnjeg jeuunuo>i jnpeL| ‘jæu
bj9a isjuAs e>|sje(j i jrnjeuj 'e jnpisg uuungewnisgiejBje wes eunssniq
e jbjuba jewje ‘qia jsæq jnjeq |6Bn|6 'wnijA>|s je Qipoq ejeq jnpueu
86 VIKAN 10. TBL, 1992