Vikan - 14.05.1992, Blaðsíða 90
VÉLMENNALÖGGA
NÚMER 3
Nú er brynjaöa löggan aftur
komin á hvíta tjaldið en í þetta
sinn íklæðist Peter Weller
ekki brynjunni heldur sjón-
varpsleikarinn Robert Burke.
Leikstjóri er Fred Dekker en
hann hefur gert tvær vel
heppnaöar hrollvekjur, Night
of the Creeps og The Monst-
er Squad. í Robocop 3 þarf
hetjan að berjast fyrir rétti allra
íbúa Detroitborgar þvi stór-
fyrirtækissamsteypan OCP
hyggst eyðileggja Detroit og
reisa nýja borg úr rústunum.
Þar skal borg framtíðarinnar
rísa. Vélmennalöggan líður
þetta ekki og gerist málsvari
íbúa Detroitborgar. í þessu
þriðja framhaldi er ekki eins
mikið ofbeldi og I númer tvö
þar sem ekki varð þverfótað
fyrir ofbeldi.
NÝ BLÓÐSUGUMYND
UM DRAKÚLA GREIFA
Francis Ford Coppola hefur
nýlokið við að gera kvikmynd-
ina Bram Stokers Dracula
sem er byggð á hinni víðfrægu
skáldsögu Drakúla eftir Bram
Stoker sem út kom I fyrsta
skipti áriö 1898. i myndinni
leikur úrvalslið eins og Win-
ona Ryder (Mermaids), Gary
Oldman (JFK), Keanu Re-
eves (Point Break), Anthony
Hopkins (Silence of the
Lambs), Richard E. Grant,
Gary Elvers og Tom Waits.
Myndin gerist I Lundúnaborg í
lok 19. aldar og fjallar um leit
Drakúla greifa að ástmey sinni
I þokukenndri borginni.
HERMENN ALHEIMSINS
B-mynda leikararnir Jean-
Claude Van Damme og
Dolph Lundgren leiða saman
hesta sína I vísindaskáld-
sögutryllinum Universal Sold-
ier. Er þetta hátæknispennu-
mynd eins og þær gerast
bestar. Myndin er undir stjórn
þýska leikstjórans Rolands
Emmerich.
▼ Leik-
stjórinn
John Singl-
eton með
nýja mynd
i fórum
sínum,
Poetic
Justice.
ÆVI BLÖKKUMANNA
John Singieton, leikstjórinn
sem gerði Boyz n the Hood,
er kominn með nýja kvikmynd.
Hún heitir Poetic Justice eða
Ljóðrænt réttlæti og fjallar um
erfiðan lífsins gang hjá blökku-
mönnum í Los Angeles.
▲ Robo-
cop-mynd í
þriðja sinn.
T Hetjan
Dustin
Hoffman i
myndinni
Hero.
HETJAN
Dustin Hoffman leikur í gam-
anmyndinni Hero. Auk hans
leika þar toppleikarar eins og
Andy Garcia (Godfather III,
Internal Affairs, Black Rain) og
Geena Davis (Thelma and
Louise). Breski leikstjórinn
Stephen Frears er við stjórn-
völinn en hann leikstýrði mynd-
unum The Grifters og Dang-
erous Liasions. Myndin
greinir frá hetjudraumum
þrjóts og fréttaritara.
SÚRKRÁS
◄ Winona
Ryder er
blóðþyrst í
mynd
Francis
Ford Copp-
ola, Drac-
ula.
Danny Aiello (Hudson
Hawke) og Shelly Winters
leika í gamanmyndinni The
Pickle sem greinir frá mikils-
metnum leikstjóra sem snýr til
heimabyggða. Paul Maxur-
sky er leikstjóri.
► Svip-
mynd úr út-
burðartryll-
inum Single
White Female
sem er með
þeim Jenni-
fer Jason
Leigh og
Bridget
Fonda.
◄ Danny
Aiello sem
nafntogað-
ur leikstjóri
í myndinni
The Pickle.
FÁEINIR GÓÐIR MENN
Tom Cruise leikur í myndinni
A Few Good Men sem er
réttarhaldsdrama. Myndin er
byggð á víöfrægu Broadway-
leikriti sem fjallar um sjóliöa-
lögfræðing sem leitar að hin-
um gullna sannleika í réttar-
salnum. í myndinni leika auk
Cruise Jack Nicholson, Demi
Moore (Ghost), Kiefer Suth-
erland og Kevin Bacon. Leik-
stjóri er hinn virti Barry Levin-
son sem leikstýrði myndunum
Diner, Rainman, Avalon og
Bugsy.
NÝR ÚTBU RÐARTRYLLIR
Kvikmyndin Single White
Female sver sig í ætt við
spennumynd Johns Schles-
inger sem sýnd var í fyrra,
Pacific Heights. Nýja myndin
greinir frá myndarlegri konu
sem auglýsir eftir leigjanda.
Sá reynist síðan stórhættuleg-
ur. í Single White Female leika
öndvegisleikkonurnar Jennif-
er Jason Leith (Rush, Miami
Blues, Last Exit to Brooklyn)
og Bridget Fonda (Scandal,
Godfather III). Myndin er undir
stjórn þýska leikstjórans Bar-
bet Schröder sem leikstýrði
hinni eftirminnilegu mynd Re-
versal of Fortune sem færði
Jeremy Irons óskarinn i fyrra.
VILLT ÁST
Wilder Naplam greinir frá
tveimur samheldnum bræör-
um sem falla fyrir sömu döm-
unni. Úr því fer eindrægnin
minnkandi.
Tom Cruise í nýjustu mynd
sinni, A Few Good Men.
ÞRUMUHJARTAÐ
Spennumyndin Thunderheart
greinir frá dularfullu morðmáli
á verndarsvæði indíána í Suð-
ur-Dakota. Val Kilmer (Top
Secret, Kill Me Again, The
Doors), Sam Shephard og
Graham Greene (Dances
with Wolves) leika í þessari
mynd og leikstjórinn er
breskur, Michael Apted. Þess
má geta að myndin er fram-
leidd af meistaraleikaranum
Robert De Niro og þykir fersk
og ótrúlega spennandi.
HVAR VERÐA ÞESSAR
KVIKMYNDIR SÍÐAN
SÝNDAR?
Kvikmyndirnar A Few Good
Men, Hero, Wilder Naplam,
Poetic Justice, Sleepwalk-
ers, Thunderheart, Dracula,
Single White Female, The
Inner Circle, Radio Flyer, A
League of Their Own, Mo
Money og Gladiator verða
allar sýndar í Stjörnubíói.
Kvikmyndirnar Blue Sky,
Shadows and Fog, Clifford,
Article 99, Robocop 3 og
Married to It verða allar sýnd-
ar i Háskólabíói.
90 VIKAN 10. TBL.1992