Vikan - 09.07.1992, Blaðsíða 41
VIÐSKIPTAKORT LESENDA VIKUNNAR:
HUGARORAR HALLGERÐAR
EKKIAFTUR A NY
í sama vinnudæmið
Þetta er ekkert smáskrýt-
ið lið hérna í Hrafna-
nesinu. Pælið í því.
Eins og maður megi ekki hvíla
sig smá eftir svona geðveikan
vetur. Ég meina, það á bara
að troða manni í vinnu meö
það sama. Ég fer ekki fet eitt
árið í röð í sama vinnudæmið.
Eins og það sé eitthvað eðli-
legt að slíta manni hægt og
hægt út við að passa einhverja
krakkaorma sem eru stans-
laust með hor og sígrenjandi.
Ég læt sko afa á Grandanum
koma mér til hjálpar.
Ég verð að komast til
Spánar, það sjá allir. Málið er
að ég grenjaði smá inn á
segulband í vor og spila það
bara stöðugt fyrir liðið. Eitt og
eitt ekkasog og smástunur
blandast við á þetta tíu mín-
útna fresti. Ég bara verð að
losna við að fara í þessa
þrælavinnu og krakkakjaftæði.
Ég bað afa á Grandanum að
hringja á hálftíma fresti og
spyrja um mig eins og hann
fyndi eitthvað á sér eða eitt-
hvað.
Mamma er að flippa og
pabbi er svakalega stressaður
eins og alltaf. Álagið hér
heima er þannig að við verð-
um sennilega að fara bara til
Spánar fljótlega ef allir eiga
ekki að deyja hægum dauð-
daga eða eitthvað. Það má
segja að það sé eiginlega nóg
fyrir mig að vinna í því aö
naga á mér neglurnar og
hreinsa eyrun kannski þetta
sex sinnum í sumar, ef ég á
ekki að tapast endanlega má
segja.
Þegar afi á Grandanum var
lítill var honum slitið svo rosa-
lega aö hann hefur ekkert
stækkað síðan hann var fjög-
urra ára. Alla vega er hann
alltaf mjög þreyttur og finnur
svo innilega til með öllum sem
þurfa að vinna. Hann hefur
líka ekkert getað unnið síðan
hann var tólf. Það má segja að
hann hafi vart litið glaðan dag
síðan þá og öllum er sama.
Hann rétt getur farið þetta
tvisvar til fjórum sinnum í viku
á bingó. Hann spilar með
herkjum Ólsa fjórum sinnum í
viku og rétt getur dröslað sér í
dans þetta þrisvar í viku.
Fólk áttar sig ekki á því fyrr
en hann er dáinn hvað maður-
inn er búinn að lifa rosalega
erfiðu lífi. Hann rétt getur
skriðið á fjórum fótum, má
segja, til að ná sér í smáhress-
ingu í Ríkinu frekar seint eftir
hádegi alla virka daga.
Liðið hérna á Nesinu er ekk-
ert eðlilega Jóakimstengt.
Glæta. Eins og þetta lið geti
ekki séð fyrir manni eitt sumar.
Hef ég nokkurn tíma litið glað-
an dag síðan þau neyddu mig
í vetur til að selja stelpunni í
næsta húsi hundrað dúkku
barbísafnið mitt í einu frekju-
kastinu? Nei og þá meina ég
að þetta er meiri háttar áfall.
Ég er öreigi og úrvinda eftir
veturinn og það þýðir ekki að
ræða vinnu við mig. Sénsinn.
Ég gæti ekki einu sinni gengið
hjálþarlaust út úr húsinu og
það sjá allir.
Við skulum bara athuga það
að þegar ég ráðlagði Jóu vin-
konu hvernig hún ætti að
slepþa við vinnuna geröist
ekkert nema gott. Hún bara fór
að ganga um húsið sofandi og
gargaði stanslaust: „Ég vinn
svo mikið," þannig að liðið sá
bara að það borgaði sig ekki
að leggja meira á hana. Það
má segja að hún sofi bara í allt
sumar og hafi það næs. Von-
andi verö ég uppgötvuð fljót-
lega. □
Jiársnyrtistofan
Xlipphnsid sf.
BlLDSHÖFÐA 18-112 REYKJAVlK
^ 672044
hAkskerameistarar
KARÓLfNA WALDERHAUG
SIGRÚN R. SKÚLADÓTTIR
Erna Guðmundsdóttir
Þorgerður Pálsdóttir
Kristín Kristjánsdóttir
HÁ RGREIÐSLUSTOFAN GRESIKA
Raudarárstíg 27-29, 2. hæð
Sími22430
REYKJAVÍKURVEGI 64 - HAFNARFIRÐI ■ SÍMI 652620 • HEIMASÍMI 52030
Hreinsum allan venjulegan fatnað með bestu vélum sem
fáanlegar eru i dag. Tökum í þvott fyrir fyrirtæki. Hreinsum
einnig gluggatjöld, svefnpoka, gólfmottur, tjöld o.fl.
hArsnyrtistofan
s
GRAMDAVEQI 47 0 626162
Hársnyrting fyrir dömur og herra
Veitum
10% afslatt
viö afhendingu
þessa korts!
Stripur í óllum litum — hárlitur —
permanent fyrir allar hárgerðir.
Úrvals hársnyrtivörur.
Opið á laugardögum.
Hrafnhildur Konrádsdóttir hárgreidslumeistari
Þuriður liildur Halldórsdóttir hársnyrtir
S/M/133M
X
RA/CARA- & HÁRqRE/ÐS/MSTDFA
HVERFISGÖTU 62-101 REYKJAVÍK
14. TBL. 1992 VIKAN 41