Vikan - 09.07.1992, Blaðsíða 29
Ég kom mér þægilega fyrir í stól á
efstu hæð eins glæsihótelsins í Cann-
es og setti upp þann fábrotna tækja-
búnað sem ég hafði meðferðis. Ætl-
unin var að taka viðtai við Jenne
Tripplehorn sem leikur doktor Beth
Garner lögreglusálfræðing í
myndinni Basic Instinct á móti
Michael Douglas.
Hlutverk hennar er mjög veigamikið
í myndinni og slagar hátt upp í
hlutverk Stone. Þessi stúlka vakti
verðskuldaða athygli fyrir leik sinn
í myndinni og er það skoðun
undirritaðs að hún hafi síst leikið lakar en
Stone en þar sem ástaratriði hennar og Dougl-
as eru heldur minna krassandi hafi hún ekki
fengið eins mikla athygli.
Hún er fædd og uþþalin í Tulsa í Oklahoma
en fluttist til New York þar sem hún útskrifaðist
úr Juliard leiklistarskólanum. Strax eftir það
fékk hún hlutverk á móti Jason Robards og
Cambell Scott í The Perfect Tribute sem ABC
valdi kvikmynd vikunnar. Fljótlega á eftir lék
hún í hinu þekkta leikriti eftir John Patrick
Stanley, The Big Funk, í New York Festival
Public Theater. Leikferill hennar i kvikmyndum
er því ekki ýkja víðfeömur miðað við þá þrosk-
uðu konu sem maður sér í Basic Instinct.
Þarna birtist hún með dökkt, slegið hárið, í
frekar síðum, flegnum bláum kjól og sest í stól-
inn við hliö mér. Það veröur að segjast eins og
er að mér brá nokkuð þegar ég sá hana því ég
átti eiginlega von á mun eldri konu. Hún leit
ekki út fyrir að vera eldri en liðlega tvítug. Svo
þetta er konan sem átti að hafa vit fyrir Michael
Douglas í myndinni, rúmlega tuttugu árum
yngri! hugsaði ég með mér.
Við tókumst í hendur og greinilega var Je-
anne í mjög góðu skaþi en virtist hálfringluð
eftir atburði síðustu sólarhringa, sem er ekki
að undra þegar haft er í huga að þetta er ung
og reynslulítil leikkona á hraðri leið upþ
stjörnuhimininn. Hún er, satt best að segja,
komin þangað vel með annan fótinn.
Ég byrjaði á að sþyrja hana hvernig hún
hefði það.
„Ég hef það bara nokkuð gott. Þakka þér
fyrir," svaraði hún. „Mér líður mun betur en í
gær því þá var ég mjög taugaóstyrk, jafnvel
fullmikið."
Ég spurði Sharon Stone að því í viðtali, sem
ég átti nýlega við hana, hvernig henni hefði lið-
ið að fara í bíó með fjölskyldunni, vinum og
öllu þessa fræga og jafnframt ókunnuga fólki
og horfa á sjálfa sig í ástríðufullum senum á
hvíta tjaldinu. Hvernig leið þér?
„Það fyllti gjörsam-
lega mælinn hjá mér,
þegar ég var sem
sþenntust var eins
og ég heyrði smell og heilinn í mér hoppaði út
á gólf. Ég þurfti að kæla mig niður eins og
kjarnorkuofn sem hafði brunnið yfir. Sharon
sagði við mig skipandi röddu: Taktu heilann
upp af gólfinu og settu hann aftur inn í höfuðið
á þér!“
VILDU GANGA ÚR SKUGGA
UM AÐ HÚN VÆRI EKKI GEÐVEIK
Hvernig fékkstu þetta hlutverk?
„Ég fór í eina hljóðprufu. Eftir það fór ég í
prufuupptöku og það var allt og sumt. Mér var
síðan tjáð eftir um það bil mánuð að ég fengi
'hlutverkið.
Ég fór út að borða með Michael Douglas því
þeir vildu ganga úr skugga um að ég væri ekki
geðveik. Þeir vissu ekkert um mig. Okkur
samdi vel en þeir vildu einnig vita hvort ég
þassaði inn í hlutverkið á móti Chatherine
þannig að þeir settu mig í bið í um það bil einn
mánuð. Ég vissi samt að ég fengi hlutverkiö að
því tilskildu að þeir réðu ekki einhverja sem
væri miklu eldri en ég.“
Hver er bakgrunnur þinn?
„Ég byrjaði að leika þegar ég var fimmtán
ára í Tulsa í Oklahoma. Ég hafði mótast mikið
þegar ég yfirgaf Tulsa og flutti til New York. Ég
var með mína eigin morgunútvarþsþætti og
hafði verið með í gerð fimm mismunandi sjón-
varpsþátta og leikið allar mögulegar mann-
gerðir. Ég var einnig með minn eigin grínþátt í
sjónvarpi ásamt því að leika á sviði."
Þú ert kannski meira fyrir grínleik en alvarleg
hlutverk?
„Já, það má segja þaö. Öllum sem þekkja
mig finnst mjög fyndið að ég skuli leika í þess-
ari mynd, Basic Instinct, því þetta hlutverk er
svo gjörólíkt minni eigin persónu. Þeim finnst
fáránlegt að þetta skuli vera fyrsta alvörukvik-
myndin sem ég leik í.“
Áttu eitthvað sameiginlegt með dr. Beth
Garner?
„Nei, það get ég ekki sagt.“
Hver er munurinn á ykkur?
„Ég er mun léttari og ekki eins rosalega
uþþtekin af að hafa fullkomna stjórn á hlutun-
um og hún. Það fer ekki mikið fyrir mér dags
daglega, ég er auðveld í umgengni og það er
ekki hægt að rekja slóðina
á eftir mér.“
TEXTIOG LJÓSM,: PORSTEINN ERLINGSSON