Vikan - 09.07.1992, Blaðsíða 35
ekki sjálfsagt aö öörum þyki
vænt um þig eöa elski þig
heldur finnst þér að þú þurfir
aö vinna fyrir þvi meö því aö
vera góö og elskuleg viö aðra.
Þess vegna er mjög erfitt fyrir
þig að segja nei þegar þig
langar aö segja nei. Þess
vegna er líka mjög erfitt aö
segja eða gera eitthvað sem
getur vakið reiði eöa andstöðu
hjá öörum eða gefið öðrum í
skyn að þú standir þig ekki á
einhverju sviöi. Þetta er samt
þaö sem þú verður aö gera.
Þú veröur að fara að æfa þig í
að segja hug þinn, þora aö
gera þaö sem þig langar, vera
þú sjálf. Muna aö öðrum þykir
vænt um þig vegna þess sem
þú ert en ekki vegna þess sem
þú gætir hugsanlega verið ef
þú lékir nógu vel.
Aðrir einfaldir hlutir en
minna sársaukafullir og ekki
eins áhrifarikir, nema framan-
greint fylgi meö, eru hlutir eins
og það aö hrósa sjálfri þér,
vera ánægö meö þaö sem þú
gerir, taka hrósi meö þakklæti
en ekki eyða því eöa „fara í
kerfi". Vera góð við sjálfa þig
og gera þaö sem þig langar aö
gera. (Þú gerir fullt fyrir aðra.
Hvaö gerirðu fyrir þig?) Æfa
þig í aö líta í spegil og vera
ánægö meö þaö sem þú sérö.
Breyta því sem þú ert óánægö
meö og læra aö hætta aö fela
þann hluta af þér sem þú held-
ur aö aðrir vilji ekki sjá. Vera
góö viö líkama þinn og við-
halda honum með þjálfun og
vellíöan. Vera góö viö sálina
þína meö því að leyfa þér aö
hafa tilfinningar, skoöun,
viðhorf, löngun og svo fram-
vegis, án þess að skammast
þín. Leyfa þér að leita til ann-
arra þegar þér líöur illa í staö
þess aö gera þig eina.
Allt þetta er erfitt. Það kostar
mikil átök og erfitt er aö standa
einn/ein í því. Þess vegna get-
ur verið gott aö vera í sam-
bandi við sálfræðing eöa annan
slíkan aöila á meöan á breyt-
ingarátökum stendur.
Gangi þér vel og ekki gefast
upp, þó þetta verði erfitt,
Sigtryggur.
Bréf til Sigtryggs geta snúist um samskipti kynjanna, samskipti
barna og foreldra, samskipti milli hjóna, kynlíf og annað það sem
lýtur að sálfræði og sálfræðilegum vandamálum. Bréfin mega vera
nafnlaus eða undir dulnefni.
Utanáskriftin er:
Sigtryggur Jónsson sálfræðingur,
Álftamýri 3, 108 Reykjavík.
I4. TBL. 1992 VIKAN 35