Vikan - 09.07.1992, Blaðsíða 51
símtöl berast þeim Jóni og
Gulla og bréfsiminn malar í
sífellu, dælir út úr sér pappír
með milljónum blekpunkta
sem oft eru innlegg í hádeg-
isverðarpottinn, þar sem dreg-
ið er út eitt símbréf daglega,
eða sem hrekkur við einhvern
saklausan vesaling úti í bæ.
KÖRT UM KÖRT FRÁ
KÖRTUM TIL KARTA
I því er blaðamaður var aö
koma sér þögull fyrir eins og
fluga á vegg bárust tíðindi af
því að morgunþátturinn frá því
daginn áður hefði verið
endurfluttur um nóttina. Blaða-
maður, sem er annálað
stærðfræðiséní, sat þögull
enn um sinn en gat svo ekki
MEÐ
setið lengur á sér og varð að
leyfa þeim Jóni og Gulla að
njóta með sér: „Strákar, þið
eruð komnir með fjórðung alls
útsendingartíma á Bylgjunni!"
Viti menn, í þetta sinn hafði
gamli stærðfræðifallistinn úr
Verslunarskólanum rétt fyrir
sér.
„Við verðum að fá kaup-
hækkun," ályktaði Jón Axel og
stóð á fætur eins og hann ætl-
aði að vaða inn á skrifstofu
forstjórans með hnefann á
lofti. Sú varð þó ekki raunin.
Klukkan var orðin níu, Bylgju-
fréttir að hefjast og aðeins ör-
fáar mínútur í útsendingu á
vinsælasta útvarpsþættinum í
sumar, Tveim með öllu. Jón
Axel dröslaði á undan sér litl-
um vagni troðfullum af tor-
kennilegum hlutum sem í fjar-
lægð minntu á kassettur.
„Þetta eru kört,“ fræddu at-
vinnumennirnir mig á. Inn í
stúdíó var förinni heitið þar
sem Sigursteinn Másson var
að Ijúka þætti sínum. Við tóku
fréttamennirnir íris Erlingsdótt-
ir og Óli Tynes með glóðvolgar
fróttir.
Eftir fáar mínútur í útsend-
ingu áttaði blaðamaður sig á
að kart (um kart frá karti til
karts; kört um kört frá körtum
til karta) er eins konar kassetta
og gríðarlega mikið notaö í út-
varpi nútímans. Á körtunum
eru allra handa stef og hljóð
sem nota má í útsendingu. Til
dæmis má nefna að auglýs-
ingarnar eru allar á körtum,
símtölin frá hinni óborganlegu
Bibbu eru á körtum, öll ný lög,
sem ekki eru komin út á plötu,
eru á útvarpsstöðvunum á
körtum og stöku sinnum eru
fréttir á körtum. Þess má geta
fyrir íslenskuáhugamenn að
orðskrípið „kart“ er hljóðgerv-
ing af enska orðinu „cart-
ridge). Menn geta svo dundað
við að smíða nýyrði yfir þetta
orð og sent þau á faxi, ég
meina símbréfi, ég meina
myndsendi, upp á Bylgju. Ekki
er að undra að manni verði
fótaskortur á lyklaborðinu þeg-
ar kemur að orðinu fax. í
þættinum Tveir með öllu er
uppi viss deila um hvort beri
að segja fax, myndsími, bréf-
sími, símbréf eða eitthvaö
annað. Greinarhöfundur og
málfarsráðunautar hans styðja
orðiö símbréf og þar af leið-
andi bréfsíma yfir tækið sjálft.
► Gulli Helga.
Jóhannes eftir-
herma lék lag-
lega á hann um
daginn.
▼ Jón Axel
Ólafsson.
Að undirlagi
Gulla hringdi
Jóhannes síðan
í hann sem
Ólafur Ragnar.
EGILS -
AÐ SJÁLFSÖGÐU
Þegar Gulli Helga var búinn
aö koma sér notalega fyrir á
bak við græjustæðuna og Óli
Tynes var búinn að lesa síð-
ustu fréttina byrjaði loksins
ballið. Þriggja tíma útsending
var fram undan eftir tólf tíma
undirbúningsvinnu. Jón Axel
sat ótrúlega afslappaður við
kringlótt borð og virtist kippa
sér lítið upp við að maður
kæmi inn og skildi eftir heilan
Framh. á bls. 53
14.TBL. 1992 VIKAN 51
TEXTI OG MYNDIR: KARL PÉTUR JÓNSSON