Vikan - 09.07.1992, Blaðsíða 19
Sigrúnu. „Ég er ekki hérna,"
segir hann og viö tökum mark
á því. Hann er gleymdur og
grafinn í bili, þaö eina sem
minnir á jarðneska tilvist hans
eru smellirnir í myndavélinni.
Hvaö um söngkonuna Sig-
rúnu Evu. Ætlar hún í
söngnám? „Það veit ég ekki.
Þaö væri náttúrlega mjög
gaman og er freistandi en
núna hef ég bara ekki tima til
þess. Síðan er ekki mælt meö
söngnámi fyrir starfandi söng-
konur í poppinu þannig aö
þetta er ekki á stefnuskránni í
augnablikinu."
Hvernig var Eurovision?
„Þetta var eins og aö fara í
ferðalag meö góöum hópi en
þaö fór rosalega mikill timi i
þetta. Á sama tíma vorum viö
aö æfa meö nýju hljómsveit-
ekki vera aö hugsa um kvíð-
ann og við höfum nokkrar
brellur til aö losa okkur viö
hann, tala um eitthvað annaö
þangað til allt í einu á að fara
að syngja. Öllu máli skipti aö
viö vorum mjög vel undir þetta
búin.“ Hélstu aö þiö mynduð
vinna? „Nei, ég fann þaö vel
úti aö viö vorum ekki vinnings-
liö. Þaö var miklu meira pælt í
þessum austurríska meö
stolna Tom Jones lagiö, til
dæmis."
FLUGFREYJUSTARF VAR
ÆTLUNIN
Teið hennar Sigrúnar er búiö.
Hún drakk einn bolla og ætlar
greinilega ekki aö fá sér
annan. Viö erum búin aö
spjalla um alla heima og geima,
Á sviði með Þúsund andlitum, hljómsveitinnl sem Sigrún Eva og
Birgir hafa komið á legg með ærinni fyrirhöfn.
inni. Ég er eiginlega búin aö
vera að syngja upp á hvern
einasta dag í tvo mánuði, að
minnsta kosti. Enda rám
núna,“ segir Sigrún og skellir
upp úr.
Fannst þér öðruvísi að
syngja á sviðinu í Svíþjóð
heldur en í félagsheimilinu á
Ólafsfiröi, til dæmis? „Ég var
ekkert aö spá í þaö og ég var
lítið stressuö, mest þó rétt
áöur en viö fórum upp á sviö.
Þegar þangað kom var svo
mikið af flóöljósum þannig aö
maður sá ekki fólkið í salnum
og ég var ekkert aö hugsa um
fólkið sem var aö horfa á sjón-
varpið. Viö Sigga vorum líka !
því að peppa hvor aöra upp,
sögöum grófa brandara og
svona. Við fórum skellihlæj-
andi upp á sviö. Maður má
vitt og breitt, en tómstundir
hafa oröiö útundan. Hún seg-
ist horfa mikið á myndbönd og
fara i bíó. „Núna er söngurinn
helsta áhugamáliö og þaö
kemst fátt annað að,“ segir
hún.
„Mér finnst gott aö slappa af
og fara í heimsóknir til vina
minna því mér líkar vel innan
um margt fólk. Síðan bara ...
svefn!,“ segir hún og hlær inni-
lega. En hún meinar þaö. „Já,
ég hef gaman af því. Og nýju
hljómsveitinni. Á vetrum hefur
skólinn verið eitt aöaláhuga-
máliö en nú er hann búinn í bili
aö minnsta kosti.“
Sökum mikils ferðaáhuga
telur Sigrún námiö geta nýst
sér á ýmsum sviðum ferða-
mála. Hún telur ekki útilokað
aö hún eigi eftir aö starfa á
þeim vettvangi einhvern tím-
ann í framtíðinni. En framtíðin
gæti boriö annað starf fyrir
Sigrúnu Evu Ármannsdóttur í
skauti sér. „Ég ætlaði mér allt-
af að veröa flugfreyja en nú
veit ég ekki hvort af því
verður,“ segir hún hlæjandi,
hress og kát. „Eöa leiðsögu-
maöur, mig langar líka til
þess.“
FERLEG FREKJA
„Ég ætlaöi heldur aldrei aö
veröa söngkona en því held
ég áfram svo lengi sem ein-
hver vill heyra í mér. Mig lang-
ar til aö gera svo margt,“ segir
hún, svolítið stelpulega eins
og hún sé aö reyna aö finna
eitthvað skemmtilegt til aö
gera þegar hún verður stór. í
þaö minnsta eiga rútufarþegar
framtíðarinnar von á góðu ef
hún verður leiösögumaöur. Þá
gæti íslensk fjallafegurö allt
eins oröiö aö tálsýn sem Sig-
rún Eva syngur um í hljóö-
nemann.
„Ég er ferleg frekja og mér
er sagt aö ég sé mjög
stjórnsöm. Bróöir minn orðaði
þetta einhvern tímann þannig
að mér tækist að vfá mínu
framgengt án þess aö fólk
gerði sér grein fyrir því,“ segir
hún og bætir viö aö kannski sé
svolítið hallærislegt aö vera aö
segja þetta. Lýsingin er góö og
ágætur botn I skemmtilegt
samtal. Og viö förum út í júní-
sól og sumarkulda til að leyfa
Binna aö taka fleiri myndir. □
Á Og
henni
finnst gott
að sofa.
Það er
áhugamál.
HAFNARSTRÆTI 15
REYKJAVÍK ■ SÍMI 13340
14. TBL. 1992 VIKAN 19