Vikan


Vikan - 09.07.1992, Blaðsíða 39

Vikan - 09.07.1992, Blaðsíða 39
AAAÁAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAA ÆVINTÝRI VERULEIKANS TTTTTTTTTTTTTTTTTTTTTTTTT „Út í búð" og f leiri sögur Stundum þegar ég síst á von á lendi ég í hinum æsilegustu ævintýrum. Ef til vill er ekkert sem heitir aö lenda i einhverju heldur er maður fús til aö fást viö eitt- hvaö spennandi og þá koma tækifærin svo aö segja upp í fangið á manni. „So to speak,“ eins og Kristján sálugi Ólafs- son heföi sagt. Það veit sá sem allt veit aö ég sakna hans mikið og þoli ekki aö hann sé horfinn af sjónarsviöinu. Ef gert yrði myndband meö hon- um myndi ég kaupa mér ein- tak og liggja yfir því dögum saman og hlæja og hlæja. Mér finnst hann svo fyndinn og einnig hef ég svo gaman af aö heyra slett útlensku. Ein uppáhaldssetningin min úr dönsku er höfö eftir danskri konu sem var í fyrrverandi tengdafjölskyldu minni, þess- ari þar sem allir taka svo vel til, ryksuga svo mikiö, þurrka svo mikiö af og ég hafði ekki gæfu aö bera til aö vera jafnhreinleg og þau. Já, danska konan sagði aö þaö væri svo gott aö búa ( klíðerne. Lauslega þýtt að það væri svo gott aö búa í hlíðunum. Ég elska svona setningar. Nú fara lesendur aö spyrja hvaða ævintýri hún ætli aö tala um og man ég þaö vel. Fyrst ætla ég samt aö segja ykkur frá konunni sem fékk gest í kaffi kvöld nokkurt fyrir mörg- um árum. Þetta er sönn saga utan af landi. Ekkert kaffi var til á heimilinu en heldur engir peningar. Gesturinn var vinur húsbóndans og heimavanur svo hann lét konuna fá pen- inga fyrir kaffipakka, heldur ríf- lega og hún fór út í búö. Líður svo tíminn og ekkert bólar á kerlu í eina þrjá tíma. Loksins kemur hún heim alveg himinlif- andi og sýnir félögunum kaffi- lausu hvaö hún haföi keypt fyr- ir peningana. Tvær skjaldbök- ur sem hún haföi í lófanum. Hún haföi fallið fyrir þeim á leiöinni út í búö, gat ekki staö- ist þær. Æsilegustu ævintýrin segir maður aldrei neinum. Þau eru heilög en lífið er svo fullt af ævintýrum. Um daginn kynntist ég í fyrsta sinni blökkukonum. Þær eru bandarískir rithöfund- ar og hitti ég þær í boöi hjá Rit- höfundasambandinu. Þær voru svo fallegar, hvor á sinn hátt. Daginn eftir fórum viö saman í búðir. Önnur þeirra lék leikrit í hverri fataverslun þegar hún var aö máta. Róm- eó og Júlía eða Hamlet eftir því hvaö passaði. Viö hlógum og skemmtum okkur konung- lega og ég hugsaði aö þaö heföi verið mál til komiö fyrir mig aö kynnast konum af öör- um litarhætti, 43 ára konuna sem vildi að heimurinn væri án landamæra, svo langt sem hugur nemur. EF VIÐ V/ERUM SPURÐ Ef við værum spurð hvort við vildum elska gætum við svarað með því að segja já eða nei en við erum ekki spurð aðeins gefinn möguleikinn. Við samþykkjum hann og vöxum eða flýjum og reynum að lifa með missi okkar og söknuði. > oo oo o 70 co o S' 70 co T^. 22 ~n > 70 THE ONLY WAYTO TAN ZANCASTER Sun Cosmeti.cs
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.