Vikan


Vikan - 15.07.1993, Page 41

Vikan - 15.07.1993, Page 41
HERTZ BÍLALEIGAN í LÚXEMBORG: ALLTAF NYIR BILAR OG íslensk AFGREIÐSLA Bílaleiga Flugleiða hefur umboð fyrir hina kunnu bílaleigu Hertz sem teygir arma sína víða um lönd. Þegar blaðamaður Vik- unnar þurfti að bregöa sér bæjarleið og sinna nokkrum erindum í Þýskalandi flaug hann til Lúxemborgar. Hann vissi sem var að á flugvellin- um biði hans rennilegt farar- tæki og splunkunýtt, sem ætti eftir að bera hann þá þúsund kílómetra eða svo sem hann þyrfti að leggja að baki áður en hann sneri aftur heimleiðis nokkrum dögum síðar. Það hefur komið mörgum á óvart, jafnvel spánskt fyrir sjónir, að sá starfsmaður sem jafnan tekur á móti íslensku farþegunum, sem ætla að notfæra sér sömu þjónustu og undirritaður, er íslensk kona, Bergdís Kristinsdóttir. Margir hrökkva í kút þegar hún ávarpar þá á íslensku. Öllum líkar þetta vel og þeim léttir stórlega sem eiga jafnvel erfitt með að tjá sig öðruvísi en á móðurmálinu. Bergdís segir Hertz leggja mikla áherslu á að veita íslendingum sem besta þjónustu og þetta sé einn liðurinn í því enda hafi þetta gefist ákaflega vel þau misseri sem Flugleiðir hafa átt samstarf við Hertz. LÆGSTA VERÐIÐ Að sögn yfirmanns Hertz bílaleigunnar í Lúxemburg, Jacques Letté, býður fyrirtæk- ið upp á lægsta verðið af þeim bílaleigum sem þar eru - og þó víðar væri leitað, en langstærstur hluti viðskipta- vinanna eru farþegar Flug- leiða. „Samkeppnin er mjög mikil," segir hann, „og ég held ég geti fullyrt að við séum með lægsta verðið í heimin- um, að Flórída í Bandaríkjun- um undanteknum." Hann gat þess að í vor og sumar hefði verið mikið að gera hjá þeim og að íslendingar virtust ekki láta efnahagskreppuna aftra sér frá því að ferðast, ekki ennþá að minnsta kosti. „Þið búið á eyju og þurfið að ferð- ast út fyrir landsteinana eins og aðrir." Jacques Letté var spurður um reynslu fyrirtækisins af ís- lenskum ökumönnum. „Margir hafa oftsinnis ekið um Evrópu og þykir það jafnvel þægilegra en að aka heima hjá sér. Sumir hafa aftur á móti aldrei ekið bíl utan íslands og hrýs hugur við því í fyrstu. Ég held samt aö þeir verði ekki fyrir óhöppum í umferðinni hér fremur en aðrir. En Banda- ríkjamennirnir hins vegar, þeir fara stundum hræðilega með bílana. Ástæðan er sú að þeir þekkja ekki annað en sjálf- skipta bíla og lenda í hinu ó- trúlegasta basli þegar þeir setjast undir stýri á evrópsk- um bíl.“ Margir hafa skoðað leiðina vel á korti og merkt inn á það áður en þeir leggja af stað í ferðalagið. Af þeim sökum þarf Bergdís sjaldnast að segja fólki til vegar nema út úr borginni. Það er heldur ekkert mál fyrir hana og samstarfs- fólk hennar að gefa viðskipta- vinum nákvæma leiðarlýsingu nánast hvert sem er með því aðeins að keyra hana út úr tölvunni. Aðspurður sagði Jacques að þess væri samt líklega ennþá langt að bíða að bílarnir þeirra yrðu útbúnir með rattölvu sem segði öku- manninum beinlínis til hvert hann ætti að fara og hvar hann væri staddur." AÐEINS NÝIR BÍLAR Jacques Letté sagði jafnframt að Hertz notaði aðeins nýja bíla. Það þýðir að allir bílar fyrirtækisins eru seldir þegar þeir eru orðnir þriggja mán- aða gamlir og nýir keyptir í staðinn. „Þetta er feiknarlegt öryggisatriði," bætti hann við, „auk þess sem þetta tryggir viðskiptavininum þægilega og skemmtilega ökuferð. Þrátt fyrir að bílarnir séu svo nýir er farið yfir fjölmörg atriði áður en þeir eru leigðir nýjum viðskiptavinum - allt frá því að athuga hvort öskubakki er tómur og hreinn, nóg loft í dekkjunum, útvarpið stillt á stöð, bremsurnar í lagi og svo framvegis. „Ef bíllinn bilar eða eitthvað kemur fyrir er komið með nýjan bíl í snarhasti ef ekki er unnt að gera við hann á staðnum á skömmum tíma - en ekki seint og um síðir eins og við vitum að gerist stundum hjá keppinautum okkar." Hvað tryggingar varðar er gert ráð fyrir svolítilli sjálf- skuldarábyrgð en að öðru leyti er slíkt innifalið í leigu- samningnum. Bílaleigur á borð við Hertz hafa orðið fyrir miklum búsifjum vegna þess hvað bílaþjófnaður hefur færst í vöxt og á síðasta ári keyrði um þverbak að sögn Jacques Letté en einkum hafa orðið brögð að þessu í ákveðnum löndum. Nú er svo komið að bílaleigan getur ekki leigt þeim bíla sem ætla til Ítalíu, Póllands eða Rúmeníu til dæmis. Hertz-bílarnir hafa notið sérstakra vinsælda á meðal bílaþjófa fyrir það að þeir eru alltaf nýir og sjaldnast eknir meira en 15.000 kíló- metra. □ Bergdís og Jacques fyrir framan aöalskrif- stofu Hertz í Lúxem- borg. CD CT3 14.TBL. 1993 VIKAN 41

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.