Vikan


Vikan - 04.11.1993, Page 12

Vikan - 04.11.1993, Page 12
VIÐTAL Strákar eru alltaf brýndir til aö harka af sér og halda áfram meðan stelpur eru iöu- lega huggaöar og passaöar. Þess vegna er sú reynsla mikilvæg sem ungar stúlkur fá af því aö æfa keppnis- íþróttir. heyrst að það henti konum betur að stunda almennings- íþróttir en keppnisíþróttir. Andi keppnisíþrótta, þar sem leggja þarf andstæðingana að velli, sé eitthvað sem sé körl- um eiginlegra en konum, þær vilji frekar stunda almennings- íþróttir þar sem máli skiptir að vera með fyrir sjálfan sig. Þessu sjónarmiði hafnar Kristrún og vill þvert á móti að konur auki hlut sinn í keppnis- fþróttum. „Ég held að það sé mjög margt sem konur geta lært af að stunda keppnisíþróttir sem sumar þeirra læra ekki af hefðbundnu uppeldi. Strákar eru alltaf brýndir til að harka af sér og halda áfram meðan stelpur eru iðulega huggaðar og passaðar. Þess vegna er sú reynsla sem ungar stúlkur fá af því að aefa keppnisíþrótt- ir mikilvæg. j keppnisíþróttum þýðir ekki að vera með neitt væl, maður verður að harka af sér og leggja sig fram, hundrað prósent. Þó að konur í íþróttum séu engir vælukjóar eru þær ekki heldur neinar karlkonur! Við spilum fótbolta á okkar forsendum. Að keppa í hópíþrótt eykur einnig fé- lagsþroska mikið. Það er aldrei hægt að verða betri en liðið, hversu góður sem ein- staklingurinn er, prívat og per- sónulega. Maður vinnur fyrir liðið, alveg eins og maður þarf að vinna með öðrum í sam- félaginu. Stundum geri ég skyndi- könnun meðal fólks sem ég þekki og bið það um að telja upp montið fólk. Nær undan- tekningarlaust nefnir fólk þá miklu fleiri karla en konur. Ég held að það sé dragbítur á konum í opinberu lífi, bæði félags- og atvinnulífi, að vera óþarflega hógværar - án þess að ég sé að dásama mont- hana. í íþróttum og þá sér- staklega keppnisíþróttum lær- ir maður að það þýðir ekkert að vera að biðjast afsökunar á sjálfum sér, þá nær maður engum árangri. Ofmetnaður dugar líka skammt." Kristrún segir sér virðast sem afrekskonur í íþróttum finni litla samleið með kvennahreyfingunni og telji sig ekki femínista eða sér- stakar kvenréttindakonur. Hún segir ástæðuna vera að hluta til þá að keppniskonan ætli sér alltaf að sigra og læri því að líta á sig sem sigurvegara. Kvennabaráttan sé hins vegar upptekin af konum sem fórn- arlömbum kúgunar. Nú segir hún að sé þörf á nýrri stefnu fyrir konur, stefnu sigurvegar- ans. „Þegar Gísli Súrsson er að falla í hendur óvina sinna og einn þeirra ber fé á konu hans, Auði Vésteinsdóttur, lemur hún óvininn með pyngj- unni og segir: „Mundu, vesæll maður, meðan þú lifir að kona hefur barið þig.“ Þarna er sig- urvegarinn á ferðinni, kona sem stendur upprétt og lætur ekki brjóta sig, hafnar niður- lægingu þótt ósigurinn sé vís. Þennan anda vantar í kvennahreyfinguna í stað þess að segja að hér séum „við kúgaðar og píndar eins og alltaf hefur verið“ og svo finnst manni „og munum alltaf verða“ hljóti að koma næst." Kristrún telur hættulega þróun að ungar konur hafi ekki áhuga á kvennabaráttu og jafnrétti og kennir þar dálít- ið um að baráttan sé þreytt. „Það er rof milli kynslóðanna. Þær eldri skilja ekki að þeim yngri finnist þær ekki kúgaðar. Og þeim yngri hættir til að gleyma hvað á undan er gengið. Verkefnin stinga hins vegar svo í augun að við verðum að ná saman ef ekki á illa að fara. Ný kvennahreyf- ing er að verða nauðsyn.“ ERT ÞÚ ÞESSI KELLING í SJÓNVARPINU? Kristrún Heimisdóttir er fjórða konan sem gegnt hefur emb- ætti inspector scholae í Menntaskólanum í Reykjavík af þeim hundrað og tíu sem verið hafa frá Hannesi Haf- stein. Hún var reyndar á sama tíma formaður Félags framhaldsskólanema. Hún hefur einnig starfað hjá Ríkis- útvarpinu sem íþróttafrétta- maður í tvö sumur. Hefur það skipt máli að vera kona í þessum störfum? „Mór fannst það ekki skipta máli á þeim tíma og hugsaði ekkert út í það þegar ég var inspector. Stundum koma jafnvel þau augnablik að það kemur manni til góða að vera kona. Þegar ég byrjaði sem íþróttafréttamaður vissi ég auðvitað að sumir karlarnir heima í stofu áttu erfitt með að taka við fótboltaspeki frá einhverjum stelpukrakka. Ég var mér meðvitandi um það. Ég man að ég var einhvern tíma að skemmta mér á Hótel Borg og þá vatt sér að mér maður og spurði hvort ég væri þessi kelling sem væri í sjón- varpinu. Þetta kom svolítið flatt upp á mig enda var ég bara nítján ára þá og leit ekki á mig sem kellingu! Ég reyndi bara að vera óg sjálf og reyndi til dæmis að tileinka mér ekki orðalag Bjarna Felix- sonar, þess góða manns, því það hefði orðið svo hjákátlegt ef ég notaði sömu orðin og hann með mínum mjóa rómi.“ Þegar Kristrún hóf nám í Háskólanum byrjaði hún í heimspeki en skipti yfir í lög- fræði fyrir einu ári. Hvers vegna? „Ég var mjög óráðin þegar ég byrjaði í Háskólanum. Ég hafði verið svo upptekin af félagsmálum að ég mátti ekki vera að því að ákveða hvað ég ætlaði að gera eftir stúd- entspróf. Ég leit svo á að heimspeki væri ákaflega góð undirstöðumenntun. Lögfræð- ina valdi ég vegna þess að hún er mikilvæg grein. Ég hef mikinn áhuga á þjóðfélags- málum og vonandi trausta réttlætiskennd. Það voru tals- verð viðbrigði að koma í laga- deildina og allt í einu var Frið- rik Sophusson fjármálaráð- herra farinn að bjóða mér í kokkteil." Hefurðu mjög gaman af að sækja fram á vígstöðvum karla? „Nei, alla vega ekki nema á mínum forsendum," segir Kristrún Heimisdóttir, knattspyrnukonan sem hefur leikið með landsliðinu í haust en leggur nú skóna á hilluna eftir 155 leiki með KR. □ 12VIKAN 22.TBL.1993

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.