Vikan - 04.11.1993, Síða 21
þótt söngleikir leiðinlegir. Mér hafa alltaf þótt
söngleikir leiðinlegir en ég sat nú samt í gegn-
um þennan. Auðvitað fannst mér hann leiðin-
legur. Það er eins og að láta einhvern sem
hefur ekkert gaman af ballett skrifa gagnrýni
um ballett. Fólkið hoppaði fram og til baka.
Það snerti ekkert við mér en var sjálfsagt
voða flott.
Gagnrýni er engu að síður nauðsynleg.
Súsanna er í raun nauðsynleg þó það sé fá-
ránlegt að einn gagnrýnandi geti haft eins
mikið vald og hún hefur. Það sem mér þykir
verst við Súsönnu er hve dónaleg hún er í
skrifum sínum. Hún er mjög ruddaleg við fólk
og fjallar um líkamlegt ástand og svipbrigði
leikaranna. Það er ekki leikhúsgagnrýni í mín-
um augum. Ég hef sloppið nokkuð vel frá
henni. Ég er ekki hræddur við Súsönnu. Ég er
ekki hræddur um að minn leiklistarferill standi
og falli með hennar skrifum.“
Hún skrifaði nú mjög vel um ykkur í Stand-
andi pínu? „Já, henni fannst greinilega gam-
an. Það hafði enginn áhuga á Standandi pínu
á meðan við vorum að æfa leikritið. Það tald-
ist til algjörrar undantekningar ef við vorum
spurðir hvernig gengi og þess háttar. Þar sem
ég var að vinna niðri í Þjóðleikhúsi voru mjög
fáir sem óskuðu mér til hamingju með frum-
sýninguna. Það var ekki fyrr en nokkrum dög-
um seinna, þegar gagnrýnin hennar Súsönnu
hafði birst í Morgunblaðinu, að fólk kom til
mín og óskaði mér til hamingju. Það kom
greinilega í Ijós að flestir leikarar lesa
Súsönnu þó þeir vilji ekki viðurkenna það.
Það er í tísku hjá leikurum að segjast ekki
lesa Súsönnu. Ég skil ekki af hverju. Auðvitað
eigum við að fylgjast með því sem er að ger-
ast í okkar atvinnugrein, alveg eins og aðrar
starfsstéttir gera. Sjálfur les ég alla leikhús-
gagnrýni spjaldanna á milli, hvort sem hún er
um stykki sem ég hef tekið þátt í eða ekki.“
Það hljóta að hafa verið dálítil vonbrigði fyrir
þig að fá ekkert að gera hjá Leikfélagi Reykja-
víkur núna í vetur eftir að hafa verið inni hjá
þeim í fyrra. „Já, mér fannst það dálítið skrýtið.
Þeir voru búnir að eyða miklum peningum í að
kynna okkur, mig, Magnús Jónsson, Sigrúnu
Waage og Ragnheiði Elfu - svipað og Þjóð-
leikhúsið er búið að gera með Baltasar, Ingvar
og fleiri. Þar er búið að koma þessu fólki á
framfæri og Þjóðleikhúsið notar það nokkurn
veginn eins og sitt vörumerki. Mér fannst mjög
skrýtið að fá ekki annað tækifæri í Borgarleik-
húsinu eftir Blóðbræður þar sem búið var að
leggja svo mikið upp úr þvi að kynna mig. Ég
vonast samt til að komast einhvern tímann aft-
ur inn þar. Borgarleikhúsið er yndislegur
vinnustaður. Núna er ég kominn í Þjóðleikhús-
ið og mér líður lika mjög vel þar.“*
Felix leikur, eins og áður sagði, í barnaleik-
ritinu Skilaboðaskjóðunni í Þjóðleikhúsinu og
seinna í vetur kemur hann til með að leika í
öðru verki hjá Þjóðleikhúsinu. Það er ung-
lingaleikritið Gauragangur eftir Ólaf Hauk
Símonarson. „Ég leik þar Heimdellinginn Þór
þorskhaus sem eyðileggur öll partí með því
að spila á píanó.“
Öruggt er að Þór þessi er ekki mjög vinsæll
i sínum vinahópi en það er Felix aftur á móti
og ég á ekki erfitt með að skilja af hverju.
Hann er stór maður með stórt hjarta og lætur
sér annt um náunga sinn en vill lifa sínu lífi án
þess að almenningur sé með nefið ofan í
hans persónulegu málum. Hann lætur verkin
tala og mér finnst það fint. □
' ETUR f93
NONAME
----COSMETICS--
ÚTSÖLUSTAÐIR:
REYKjAVÍK: Snyrtivöruversl. Cher, Laugavegi 76
Spes, Háaleitisbraut 58-60 • Snyrtihús Hei&ars, Vesturgötu 19
Saloon Ritz, Laugavegi 66 • Snyrtistofa Kristínar, Ásvallagötu 77
Hárgrei&slust. Hótel Loftlei&um, Reykjavíkurflugvelli • Ingólfsapótek,
Kringlunni 8-12 • Verslunin 17, Laugavegi 91 ■ Snyrtistofan Paradís, Laugarnesvegi 82
Snyrtistofan Fegrun, • Búðargeröi 10 • Hár og föröun, Faxafeni 8 • Snyrtist. Halldóru,
Fannafold 217a • Sápuhúsið Laugavegi 17 ■ Hárþing Pósthússtræti 13
Salon Á París, Skúlagötu 40 • Snyrtistofan Ásýnd, Starmýri 2 • KÓPAVOGUR: Gott útlit,
Nýbýlavegi 14 • GARÐABÆR: Snyrtihöllin, Gar&atorgi • HAFNARFjÖRÐUR: Versl. Dísella,
Mi&vangi ■ Studio Hár og húö, Reykjavíkurvegi 16
MOSFELLSBÆR: Hárgreiöslustofan Absalon, Uröarholti 4
KEFLAVÍK: Snyrtivöruversl. Smart • AKRANES: Versl. Perla
BORGARNES: Apótek Borgarness • ÍSAFjÖRÐUR: Snyrtistofan Sóley
Versl. Krisma PATREKSFJÖRÐUR: Patreksapótek
SAUÐÁRKRÓKUR: Skagfiröingabú& • Snyrtistofan Táin ■ AKUREYRI: Vörusalan
Betri lí&an • Snyrtistofan Eva • Verslunin Ynja ■ DALVÍK: Snyrtist. Tanja •
HÚSAVÍK: Snyrtistofan Hilma
VOPNAFjÖRÐUR: Lyfsalan ■ HÖFN: Snyrtistofa Ólafar
HVERAGERÐI: Ölfusapótek • Snyrtistofa Löllu, Heilsustofnun NLFÍ
VESTMANNAEYjAR: Mi&bær.
SELFOSS: Snyrtistofa Ólafar Austurvegi 9
LEIKLIST