Vikan - 04.11.1993, Side 22
SÁLRÆN SJÓNARMIÐ
JÓNA RÚNA KVARAN SKRIFAR
Yið munum að þessu sinni skoða bréf frá
ungri konu sem telur að maðurinn sinni sé
meira en í meðallagi nískur. Undarleg hegð-
un hans er smátt og smátt að eyðileggja sambandið
á milli þeirra. Ástandið veldur öllum heimilisföstum
miklum vandræðum. Hún kýs að kalla sig Gógó af
ótta við að þekkjast því að það vill hún alls ekki.
NÓG AF ÖLLU EN SÁRSVEKKT
„Mér finnst svo skrýtiö, Jóna Rúna, hvaö maöur-
inn minn passar peningana okkar og getur gert
mikiö mál út af furöulegustu hlutum sem varöa
frekar einfaldar þarfir mínar og heimilisins. Viö
erum tiltölulega vel stæö, myndi ég vilja leyfa
mér aö fullyröa, alla vega miöaö viö marga. Viö
eigum einbýlishús, tvo bíia, mikiö innbú, sumar-
bústaö og sparifé, þó ég viti lítiö hvernig því er
fyrir komiö," segir Gógó sársvekkt, náttúrlega.
og verður arfavitlaus ef hún svo mikið sem orðar
vinnu eða áhugamál utan heimilis. „Allt sem blasir
viö öörum og fellur undir lúxus, eins og bílarnir
og húsiö, passar hann upp á aö sé sem glæsi-
legast,"segir hún vonsvikin.
GEÐVEIKI EÐA HEILBRIGÐI?
Ástand þetta er mjög óþægilegt og það sem vefst
fyrir Gógó er hvernig hún á að bregðast við. Á hún
að skilja við manninn? Á hún að reyna að breyta
sér? Hún spyr líka hvort ég haldi að þetta sé geð- <
veiki og hvort mögulega sé hægt að uppræta þetta.
„Ég vil ekki sætta mig viö þetta ástand. Ég
þakka þér fyrir allt annaö gott á umliönum árum
og vona, kæra Jóna Rúna, aö þú svarir mér sem
fyrst." |
Ég þakka Gógó fyrir áhugann á því sem ég geri
og nota innsæi mitt, hyggjuvit og reynsluþekkingu í
svörin.
NISKA
EIGINMANNS
VELDUR
VANDRÆÐUM
JAFNVEL DOMU-
BINDI ERU MÁL
„Við förum aldrei neitt,
ekki einu sinni í bíó því
honum þykir þaö of
dýrt. Hann bókstafiega
telur hverja krónu tvisvar sem viö þurfum aö
nota og röflar út af allri eölilegri eyöslu. Jafnvel
dömubindi geta veriö mál og eru hiklaust á lista
yfir óþarfa hjá honum, þó þaö sé ansnalegt aö
segja það,“segir þessi hrygga, miðaldra kona. Það
sem í bréfinu stendur er meö ólíkindum.
GJAFMILD OG NÆM Á
ANNARRA ÞARFIR
Hún segir aö níska mannsins hafi alltaf verið til
staðar, sérstaklega ef um sé að ræöa eitthvaö sem
henni viðkemur. Hún er heimavinnandi og þau eiga
fjögur börn sem öll búa heima ennþá. „Mér þykir
mjög mikiö variö I aö deila sem mestu meö öör-
um og verö, held ég, aö teljast frekar gjafmild
persóna. Mér er eölilegt aö hugsa um annarra
manna þarfir jafnframt mínum og minna,“ segir
hún. Hana virðist hrylla við því að eiga svona mikið
en njóta svona lítils nema með mikilli eftirgangs-
semi.
Vinsamlegast handskrifið
bréf til Jónu Rúnu og
látið fylgja fullt nafn og
kennitölu, ásamt dul-
nefni. Svorin byggjast á
innsæi Jónu Rúnu og
rithandarlestri og því
miður er alls ekki hægt
að fá þau i einkabréfi.
Utanáskrift er:
Jóna Rúna Kvaran,
Kambsvegi 25,
104 Reykjavík
22 VIKAN 22.TBL. 1993
Á MILLI TVEGGJA ELDA
Börnunum ofbýður framkoma hans f peningamálum.
Hann réttir aldrei neitt að þeim. Hann virðist með
nirfilshættinum hafa fengið alla krakkana upp á móti
sér þannig að Gógó þarf iðulega að milda erfitt
ástand á milli þeirra. Hún telur sig vera á milli
tveggja elda í samskiptum sínum við maka og börn.
„Ég veit þaö, kæra Jóna Rúna, aö ég hef heil-
mikiö aö þakka fyrir en þetta ástand á milli okkar
hjónanna er gjörsamlega aö gera mig brjálaöa, “
segir hún og er greinilega ráöalaus og óhamingju-
söm.
ARFAVITLAUS OG UNDARLEG
VIDHORF TIL NEYSLU
Hann slekkur meira aö segja Ijós og lækkar hita til
að spara ef hægt er, þannig að það getur valdið hin-
um miklum óþægindum. Fólkið hans er nokkuð
samansaumað, segir hún, að minnsta kosti foreldrar
hans. Hún segir þau hafa fjarlægst mjög vini og ætt-
ingja vegna þessa. Þó hún vildi mennta sig meira
eða koma sér upp tómstundum er það ekki hægt
vegna þessara undarlegu viðhorfa mannsins til eðii-
legrar neyslu. Hann virðist vilja að Gógó sé heima
ÓLÍKT GILDISMAT
Það má með sanni segja að ekki sé á-
standið gott á þessum ágæta bæ. Við
höfum vitanlega mjög mismunandi
skoðanir á því hvað er einhvers virði
og hvað einskis virði í samskiþtum
okkar hvert við annað. Við getum
endalaust fundið ófullkomnara og fullkomnara fólk
en við erum sjálf. Níska hefur þó aldrei talist til kosta
og engin sérstök ástæöa til að mæla henni bót. Það
er augljóst að þessi hjón eiga fátt sameiginlegt þeg-
ar kemur að peningum og eyðslu þeirra. Gildismat
þeirra er eins ólíkt og svart og hvitt.
TOGSTREITA OG
NET NIRFILSHÁTTAR
Sparsemi getur verið mikilvæg og flest höfum við
þurft um tíma að herða sultarólina en að leggjast í
net nirfilsháttar er neikvætt og getur aldrei annað en
skapað einhverja þá togstreitu á milli fólks sem án
lausnar verður fyrr eða síðar að stóru vandamáli
sem erfitt getur verið að vinna sig frá og út úr. 1 til-
viki Gógóar er augljóslega um að ræða tvær mjög
ólíkar manngerðir þar sem hún og maðurinn hennar
eru. Hann telst ganga of langt í afstöðu sinni til þess
hvað teljast megi viðeigandi í þessum málum en
hún virðist hafa eðlilega auraskynjun.
MARTRÖÐ OG KOLVITLAUST
VERDMÆTAMAT
Það segir sig sjálft að það er eins og hver önnur
martröð að búa með einstaklingi sem sér ekkert at-
hugavert við að fjötra fólkiö sitt með kröfum um af-
neitun á eðlilegum hlutum af engu tilefni. Börnin fá
kolvitlausa mynd af þvi hvað er rétt og rangt í þess-
um efnum. Gógó getur varla, þó hún reyni að hlífa
þeim, komiö í veg fyrir að þau taki þátt í þessari sér-
kennilegu aflögun. Þau eru sum það fullorðin að
þau hljóta að taka töluvert út við að sjá föður sinn
haga sér svona furðulega af tilefnislausu.
ÁMINNINGAVÖNDUR
PYNTINGASJÓNARMIDA
Hvaö varðar samneysluna á heimilinu er engu líkara
en á bak við þann ósóma séu einhvers konar pynt-
ingasjónamið hjá manninum. Hann neitar sjálfum
sér eins og þeim um þokkalegt atlæti fyrir utan það
sem sést og væntanlega er tilgangurinn, ef tilgang
skyldi kalla, einhvers konar áminningarvöndur sem
hann notar ótæþilega og á hann þá líklega að
minna aðra á heimilinu á að ekkert sé í raun til um-
fram það sem var látið af hendi.
ÓGED ANNARRA Á
JÓAKIMSHÆTTI NIRFLA
Hvort um er að ræða einhvers konar geöveilu hjá
honum er ekki gott að segja vegna þess að á öllum
öldum hafa verið til íslendingar sem hafa þótt sýna
öll einkenni nirfilsins og alls ekki talist geðveikir,
þrátt fyrir ógeð annarra á Jóakimslegu framferði
þeirra. Það er vissulega sorglegt þegar fólk velur að
eitra annars góða möguleika sína á notalegum sam-
skiptum með ömurlegu framferði eins og níska auð-
vitað er og ekkert annað.