Vikan


Vikan - 04.11.1993, Síða 29

Vikan - 04.11.1993, Síða 29
VtÐSKIPTAKORT LESENDA VIKUNNAR: að sjá hana þar sem hún sat og grét af söknuði á kvöldin. Ég var í margar vikur að jafna mig eftir þessa reynslu og var komin á fremsta hlunn með að hætta. Svona hefur öll mín þjálfun farið fram. Ég hef nokkrum sinnum far- ið með vitund yfir í heim hinna framliðnu. Þetta gerist þannig að ég er kannski að fara að sofa og dotta eitt sekúndubrot og er þá allt í einu komin hin- um megin og farin að tala viö fólkiö mitt þar. Fyrst hélt ég að þetta væri fyrirboði þess að ég væri að deyja en svo allt í einu opnaði ég augun uppi í rúminu mínu og áttaði mig á því sem hafði gerst, að það væri í raun svona stutt milli heimanna tveggja. Þá fór ég bara að skæla. Þetta er hluti af lífi mínu og ég get ekki lokað á það, það er annaðhvort að sinna þessum málum af alúð eða láta það eftir sér að verða vitlaus. - Eru fleiri í fjölskyldu þinni gæddir þessum hæfileikum? Mér skilst að þetta sé í báð- um ættum mínum og systkini mín eru mjög næm. Eldri dóttir mín hefur ákveðna hæfileika á þessu sviði sem koma í Ijós síðar meir. Sú yngri er eins og mörg lítil börn, hún sér fram- liðna en venjulega er slíkt gengið yfir við þriggja til fjög- urra ára aldur. Hún réttir oft hendurnar til fylgjunnar sinnar, virðist ekki alltaf greina á milli þess hver sé látinn og hver lif- andi. Sú eldri hefur annars konar sýn, þessa innri sýn eins og ég er með. GETUM EKKI ÖLL VERID EINS - Koma margir vantrúaöir til þín? Já, já. Mér finnst það ágætt. Þetta fólk er þá leitandi og er að spá og spekúlera. Margir sem ekki trúa eru samt ekki til- búnir að útiloka neitt. Mitt starf er ekki svokölluð sönnunar- miðlun, mínir stjórnendur hafa sagt mér að sönnunarbyrðin sé ekki mín. Ég tala helst ekki um þessa hluti að fyrra bragði og reyni aldrei að koma mín- um skoðunum yfir á aðra nema þeir óski eftir því. Mér leiðist því mjög þegar vantrú- aðir ráðast á mig að fyrra bragði með kjafti og klóm til að reyna að kaffæra mig í þeirra eigin fordómum. Meðan við spíritistar erum ekki að trufla þá sem ekki trúa, hvers vegna eru þeir þá að abbast upp á okkur? Við getum ekki öll verið eins, það sem hentar einum þarf ekki að henta öðrum. Ég hef stundum sagt að þeir sem ekki trúa sjái bara þegar þeir koma yfir hvað það er í raun og veru sem tekur við eftir jarðvistina. Hin kristna kirkja og spírit- isminn eiga mjög margt sam- eiginlegt. Á einum fundinum hjá mér kom fram maður sem var faðir þekkts prests hér á landi, sem einnig er látinn. Hann hélt mikla ræðu um presta og spíritista og spurði hvers vegna í ósköpunum þessir tveir hópar gætu ekki unnið saman, þeir hefðu báðir kærleikann að leiðarljósi og ynnu í anda almættisins. Hann sagði að eini munurinn væri sá að hjá öðrum hópnum tæki Jesús Kristur á móti mönnun- um en amma og afi hjá hinum. Kirkjan þjónar mjög mörgum sem til hennar leita þó svo að þar mætti ýmsu breyta að mínu mati. Það verður aldrei hægt að fá botn í þetta mál. Biblían er margendurrituð eins og við vit- um. Mér finnst hæpið að trúa hverjum einasta bókstaf sem þar stendur. Ef við tökum kannski fjórar biblíur, sem þýddar hafa verið á jafnmörg tungumál, getur sama greinin, orð eða setningar haft mis- munandi þýðingu eftir því hvaða tungumál á í hlut. Hvernig stendur á því? Spíritistar eru upp til hópa mjög trúaö fólk. Ég tel mig aldrei hafa verið jafnnálægt al- mættinu og eftir að ég fór að starfa sem miðill. Ég trúi því að til sé eitt almætti, kærleiksríkt, sem dæmir engan til refsingar í hinu neðra. Vald Drottins er ekki að refsa. Almættið verður kannski dapurt í sinni gagnvart illvirkjum en það er fullt skiln- ings á öllum verkum mann- anna, sem verða að læra af mistökum sínum og taka á þeim þegar þeir koma yfir. Oft hefur verið reynt að leiða saman fulltrúa kirkju og spíritista. Slíkt hefur aldrei haft neina þýðingu, það mun aldrei fást niðurstaða. Að mínu mati á kirkjan að starfa í friði fyrir okkur og öfugt, annars kostar þetta bara togstreitu og leið- indi. Ég vildi óska þess að kirkjunnar menn létu okkur spíritista í friði og hættu að halda því fram að við séum að vinna með myrkraöflunum, það er ekki rétt. Hvernig gætu þeir sem við þekkjum að góðu einu í lifanda lífi verið orðnir vondir við það að vera fram- liðnir? Það gengur þvert á þá mynd sem mér hefur verið sýnd af tilveru þeirra sem horfnir eru úr þessum heimi. □ VELKOMINA SNYRTISTOFU ÁRBÆJAR <1 | ROFABÆ 39 - SIMI 68 - 93 - 10 | '-m ► ANDLITSBOÐ ► HÚÐHREINSUN ► LITUN ► PLOKKUN ► VAX-MEÐFERÐ ► FÓTSNYRTING ► FÖRÐUN HULDA SÉRMEÐFERÐ: JURTAMASKI: f. bóluhúS, f. báræöaslit, f. eldri húð. HITAMASKI: f. þurra húð, f. óhreina húð, f. vannærða húð. AUGNMASKI: f. poka og hrukkur. HflRGBEIDSLUSTOFfl HÖLLU MJIGHÚSDÓTTUR Houan 7 • sbn ctssEz ANDLITSBÖÐ, HÚÐHREINSUN, LITUN, FÓTSNYRTING, HANDSNYRTING, DAG- OG KVÖLDSNYRTING, VAXMEÐFERÐ. Opið alla virka daga frá kl. 9-6 nema fimmtudaga til kl. 7. HÁRSNYRTISTOFAN GRANDAVEGI 47 (fi 62 61 62 t RAKARA- <k HARCjRE/ÐSCCfSTVFA HVERFISGÖTU 62 -101 REYKJAVlK 22.TBL. 1993 VIKAN 29

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.