Vikan


Vikan - 04.11.1993, Síða 41

Vikan - 04.11.1993, Síða 41
„skapstirður i meira lagi ef hann varð uppi- skroppa með kókið". Samt tókst þeim Fosse í sameiningu að gera kvikmynd sem nú telst til sígildra listaverka. Meðal nýju kunningjanna var baróninn Alexis de Rede. Þau tóku upp samband og þegar Liza kynntist betur samkvæmisiífi evrópska aðalsins áttaði hún sig á því að hún gat engan veginn látið sjá sig í þeim fötum sem hún var vön að klæðast. Hún flaug því rakleiðis til New York og leitaði á náðir gamals vinar, tískuhönnuðarins Halston. Hann hafði hraðar hendur og hannaði og lét á örskömm- um tima sauma ósköpin öll af fötum handa Lizu. Hann þekkti hana vel og vissi að hún var óörugg með útlit sitt. Með því að fullvissa hana um að hún væri falleg og glæsileg fékk hann hana til að leggja niður pokapeysustílinn sem hún hafði alltaf haft og klæðast glæsileg- um fatnaði hans. Þannig skapaði hann henni þann stíl sem hún hefur síðan haldið sig við. Eitt af einkennum hennar eru til dæmis mjög háir hælar en þannig njóta langir fótleggir ■ Hún neytti óheyrilegs magns eiturlyfja, ótti aragrúa elskhuga og Ijúfa lífið lagði hana næstum þvf f gröfina. Henni tókst samt að sigrast ó erfiðleikunum og snúa aftur, glæsilegri og sterkuri en nokkru sinni fyrr. Saga Lizu Minelli, Hollywood- prinsessunnar með löngu leggina, er sannkallað ævin- týri. hennar sfn hvað best. Halston varð smám saman einn besti og nánasti vinur Lizu, í senn lærifaðir hennar og fósturfaðir, trúnaðarvinur og félagi. Þegar ástarmálin voru í hnút var hann ævinlega boð- inn og búinn að elda handa henni kvöldmat, gefa henni rauðvín og hlusta á hana úthella hjarta sínu en gefa síðan góð ráð. Rauðvín var því miður ekki eini vímugjafinn sem þau neyttu saman því að Halston var eins og Liza farinn að fikta mikið við kókaín. Samband Lizu við baróninn stóð stutt og næstur í röðinni var ungur glaumgosi, Desi Arnaz. Liza hafði sannarlega nóg um að hugsa því að þann 22. mars árið 1972 fékk hún óskarsverðlaunin fyrir hlutverk sitt í Cabaret. HALLAR UNDAN FÆTi Eftir þessa glæsilegu frammistöðu var eins og leiðin gæti aðeins legið niður á við. Liza hélt áfram að lifa hinu Ijúfa lífi, hún var uppáhald allra sem höfðu dáðst að henni í Cabaret og dyr samkvæmislífins stóðu henni opnar sem aldrei fyrr. Hún var i vímu yfir frægðinni - og ýmsu öðru. í janúar 1974 var sýning hennar, Liza at the Winter Garden, frumsýnd í New York. Þetta var dans-, söngva- og gamansýn- ing þar sem hún kom ein fram og biöraðir eftir miðum urðu mílulangar. En hæfileikar Lizu og úthald voru í hættu vegna sívaxandi kókaín- neyslu. Það vakti líka mikla hneykslan þegar Liza og Ben Vareen, sá sem hafði leikið Júdas í Jesus Christ Superstar árið 1972, sátu fyrir saman á Ijósmynd, bæði ber að ofan. Það 22. TBL. 1993 VIKAN 41 FRÆGT FOLK

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.