Vikan - 04.11.1993, Side 65
ing til Asuncion, höfuðborgar
Paraguay. Kunnuglegt glottið
og orðaflaumurinn, sem því
fylgdi, þýddi eitthvað í þá veru
að ef mig vantaði far væri nóg
pláss á þaki trukksins. Ég
gluggaði í landakortið og ekki
var annað að sjá en Asuncion
væri sterkur leikur því þaðan
er ekki ýkja langt til Iguassu-
fossanna.
Næsta morgun var því
stefnan tekin norður á bóginn
í átt að landamærum Argent-
ínu og Paraguay og þá um
leið inn í hitamistur Gran
Chaco skóganna. Mér til mik-
illar ánægju var þessi þjóð-
vegur í mun betra ásigkomu-
lagi en búast hefði mátt við að
fenginni reynslu og miðaði
okkur því vonum framar.
Þetta varð til þess að við náð-
um til landamæranna og þá
um leið hinnar hálfsofandi
höfuðborgar Paraguay, As-
uncion, rétt um það leyti eftir-
miðdags sem landamæra-
▲ Einn af
mörgum
hrikaleg-
um tindum
Andes-
fjalla á
landamær-
um Chile
og Argent-
inu.
◄ Iguassu-
fossarnir
eru meöal
náttúru-
undra
Suöur-
Ameríku.
verðir voru að loka tollskoðun.
Með tilhlýðilegu snarræði, ör-
litlu röfli og sannfærandi seðl-
um tókst mér að fá dvalar-
stimpil. Ég hafði einfaldlega
ekki hug á því að gista aftur á
þaki þessa annars ágæta
flutningatrukks.
Eftir að hafa kvatt þann létt-
glottandi, eins og ég var far-
inn að kalla hann, með virkt-
um var mér ekkert að vanbún-
aði og hélt því fótgangandi
með eigur mínar og hatt yfir til
Paraguay. Tveimur tímum
seinna hálfhékk ég utan á
aldraðri innanborgarrútu á leið
niður í miðbæ Asuncion. Það
reyndist hið versta mál þvi
hvar sem stoppað var varð ég
að hoppa af til að hleypa því
fólki sem ætlaði út úr mann-
þrönginni framhjá mér en þar
sem bílstjórinn var greinilega
á hraðferð stoppaði hann
hvergi heldur lét nægja að slá
verulega af hraðanum. Þróað-
ist því þessi annars ágæta
rútuferð f heldur spaugilegt
spretthlaup hingað og þangað
um höfuðborgina.
Asuncion og þá um leið
Paraguay reyndist mun ódýr-
ari en Argentína og úr varð að
ég sætti mig við vellystingar
og blómstandi appelsínutré
höfuðborgarinnar í nokkra
daga enda er Asuncion mjög
róleg og vinaleg af stórborg
að vera. Á þriðja degi hafði ég
kynnt mér hina ýmsu mögu-
leika og varð úr að ég fékk ó-
dýrt sæti í langferðabíl sem
átti að skila mér til Iguassu-
fossanna eftir dagskeyrslu
með þægilegum stoppum.
ÞRJÚ SÆTI STRAX
Eftir léttan morgunverð og
klukkustundar labb ætlaði ég
ekki að trúa mínum eigin aug-
um þvf ég fékk ekki betur séð
en áðurnefndur langferðabfll
væri löngu orðinn þéttskipað-
ur og í því að ég ætlaði að
fara að leita uppi bflstjóra rak
ég augun í tvær vestrænar
stúlkur sem stóðu f einhverju
stappi við mannkerti sem lítið
þóttist skilja. Eftir stutt spjall
við aðra stúlkuna skildist mér
að til þess að fá sæti hefðum
við þurft að mæta minnst
þremur tímum fyrir brottför.
Einhvern veginn var ég ekki í
skapi til að kyngja því og tölti
þar af leiðandi afsfðis með
mannkertið í eftirdragi og út-
skýrði á mjög sannfærandi
hátt að ég vildi fá þrjú sæti
strax. Rétt svona til að breiða
yfir skaphitann, sem upp hafði
blossað, laumaði ég að hon-
um léttum skildingi sem varð
til þess að áður en fimm mín-
útur voru liðnar höfðum við
komið okkur sæmilega fyrir í
annars frekar plásslitlum sæt-
um.
Eftir stutt kynni við stúlkur
þessar fann ég mig enn og
aftur í þeirri aðstöðu að erfitt
reyndist samferðafólki að trúa
þvf að ég væri borinn og
barnfæddur fslendingur.
Jackie og Erika eru hins veg-
ar frá norðureyju Nýja Sjá-
lands sem svipar um margt til
íslands.
Asuncion kvöddum við
rúmum tveimur tímum á eftir
áætlun ásamt grátandi smá-
fólki í sjóðheitum og yfirtroðn-
um, skröltandi langferðabíln-
um og tókum stefnuna út á
akurlönd og bújarðir Gurani-
indíána. Seinnipartinn var ör-
Iftið farið að rýmka um mann-
skapinn og um leið og lands-
lagið breytti um svip, þar sem
við tóku hásléttur Misiiones-
frumskógarins, nálguðumst
við Iguassu-fossana þar sem
landamæri Argentínu, Brasilíu
og Paraguay mætast í breiðri
beygju Iguassu-fljótsins.
Kvöldkyrrðin var að leggjast
yfir þegar að landamærunum
kom og okkur til undrunar
reyndist vandkvæðalaust að
komast yfir landamærin til
Brasilíu þótt flestir innfæddir
væru allt að því togaðir úr
tauinu. Eftir nokkurra tíma
göngu á vegi þeim er merktur
var Foz Do Iguaco var aug-
22.TBL. 1993 VIKAN 65
FERÐALOG