Vikan


Vikan - 04.11.1993, Síða 20

Vikan - 04.11.1993, Síða 20
stéttarinnar væri hræsni aftur á móti allsráðandi. Þótt hann væri sannfærður um að þetta kæmi ekki heim og saman hafði það ýmis jákvæð áhrif á hann áður en hann flutti. Öðru hverju geta innri raddir af þessum toga gefið okk- ur skynsamleg ráð en fyrir flesta eru þær strangar og ó- breytanlegar og miklu harðari en foreldrarnir voru nokkru sinni sjálfir. DRAUMAR UM VINI OG STARFSFÉLAGA Hér verðum við að sjálfsögðu einnig að gera okkur grein fyrir hvort draumurinn feli í sér raunverulegan sannleika. Dreymi okkur að nýtt viðskiptasamband færi okkur skemmda máltíð er skynsamlegt að rannsaka fjármál þeirra sem hlut eiga að máli eða hvort hægt sé að treysta viðkomandi. Dreymi þig vin, sem þú hefur ekki lengi haft samband við, geturðu verið nokkurn veginn viss um að efi, sem fram kemur í draumnum, er ekki í neinum tengslum við þennan vin. Draumurinn snýst sennilega um áhugaverð- ar aðstæður sem þú bregst við á sama hátt og vinum þínum. Nafnið á þeim sem þig dreymir hefur líka vissa merk- ingu. Dreymi þig fyrrum kunningja sem heitir Kári getur nafnið táknað verulegt hvassviðri - ekki samt í tengslum við þennan forna vin heldur aðra manneskju sem þú þekkir núna. Vinir og samstarfsmenn, sem birtast í draumi, geta líka 18

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.