Vikan


Vikan - 04.11.1993, Page 50

Vikan - 04.11.1993, Page 50
Konu nokkra í jógaskóla, sem var undir stjórn andlegs leiöbeinanda, dreymdi aö hún sæi sjálfa sig synda í kafi í skuröi. Hana dreymdi sama drauminn tvær nætur í röö. Fyrri nóttina sá hún sjálfa sig sem ferstrenda veru sem synti ákaft en fremur klunnalega. Síðari nóttina var hún hins vegar ágætur sundmaður sem skaust gegnum vatnið. Þá var hún fim eins og fiskur. Þessir draumar fjölluðu greinilega um andlegar framfarir. Ólgandi haf og brimrót í óveöri getur táknaö órólegar tilfinningar. ELDUR Eldur er ekki einvöröungu ytra afl heldur finnst hann engu síður innra meö okkur. Allir náttúrukraftar hafa tvíþætt eöli. Alveg eins og vatniö getur eldurinn bæöi hreinsaö og eyöi- lagt. Jákvæö viöhorf eldsins eru eldmóður, atorka, kærleik- ur, sköpunargáfa. í versta tilfelli getur hinn innri eldur birst sem óviöráöanlegir skapsmunir, afbrýöisemi, hefnigirni, hatur og óstjórnleg kynhvöt. Jákvæöu hliöina sjáum viö í eftirfarandi draumi: „Ég og fjölskylda mín vorum í stuttri skemmtiferð meö stórum hópi kunningja. Allt í einu sáum viö mikinn eld fyrir framan okk- ur og allir flýöu í ofboði til þess aö komast undan honum. Ég sat í bílnum en ákvaö aö flýja fótgangandi. Ég var ein á veginum og eldurinn var aö því kominn aö brenna mig. Allt í einu nam ég staðar og spuröi sjálfa mig: Til hvers ertu að þessum hlaupum? Ég sneri mér viö og beið eftir logunum. Tvær eldtungur teygöu sig fram og lyftu mér upp í faöm- lögum. Eldurinn var mjúkur, hlýr og þægilegur.“ 48

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.