Vikan


Vikan - 04.11.1993, Síða 52

Vikan - 04.11.1993, Síða 52
í jákvæðu formi getur loft táknað sjálfan „lífsandann" en án hans getum við ekki lifað. Blásum við nýju lífi í einhvern eða eitthvað í draumi getur það þýtt inngöngu í hærri vit- und. Ann Faraday dreymdi skemmtilegan draum sem fól í sér þrjár af höfuðskepnunum fjórum - og hana dreymdi þenn- an draum oft. „Ég mátti velja á milli nýtískulegs húss sem var að mestu byggt úr gleri uppi á ási nokkrum úti á víða- vangi eða lítils en viðkunnanlegs húss við hafið þar sem bárurnar brotnuðu við ströndina þegar hvasst var. Drauma sína skynjaði hún sem árekstur milli opinberrar framabrautar (glerhúsið) þar sem hún kynni að geta náð langt í háskólafræðum (efst á ásnum) og ánægjulegs heimilislífs þar sem tilfinningarnar væru ráðandi (hafið). Draumurinn kom tvímælalaust fram vegna þess að fyrri maður hennar hafði haft í hótunum um að skilja við hana ef hún hætti ekki við störf sín sem sálfræðingur og draumakönnuður og fórnaði sér eingöngu fyrir fjölskyld- una. Draumurinn sýndi glöggt skoðun hennar á þessum úrslitakostum. Hún gat haldið frelsi sínu og sjálfsforræði (störfin) en það kostaði einmanaleika og einangrun. Veldi hún hins vegar öryggi og andvaraleysi (heimilið) átti hún á hættu að verða yfirbuguð tilfinningalega. Draumurinn virtist vera glögg mynd af árekstrinum milli öryggis og frelsis. Það kemur í Ijós að þarna liggur margt fleira að baki en þetta. Með því að taka boðskap draumsins alvarlega er unnt að sneiða hjá mörgum leynigryfjum og taka verkefni hversdagsins fastari tökum. Við þurfum einnig að veita því 50

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.