Vikan


Vikan - 01.10.1994, Side 15

Vikan - 01.10.1994, Side 15
Í HINU OG ÞESSU Fyrir utan gerð hljóð- skúlptúra hefur Magnús meðal annars unnið um- hverfisverk, „perform- ansa“, skúlptúra, vídeó- verk, gjörninga, leikverk og bókverk. Hvers vegna skyldi hann breyta jafn oft um viðfangsefni og raun ber vitni? „Þetta er bara óstöðvandi löngun," segir hann. „Einhver þörf. Ef mér finnst ég vera búinn að segja nóg með einhverri aðferð hef ég enga ástæðu til að halda áfram. Þá leið- ist ég yfir í annað, senni- lega í einhverju rökrænu samhengi án þess að það þurfi svo sem neitt að út- skýra það fyrir sjálfum mér eða öðrum. Ég held að maður „fúnkeri" þannig. Að maður leiðir eitt af öðru. Maður stoppar ekki í ein- hverju sem maður er að gera, gjörbreytir sér allt í einu og hoppar yfir í eitt- hvað annað. Ef farið er yfir í eitthvað annað hlýtur það að gerast með einhverjum rökrænum „prósess“.“ Magnús segir að ailt sem gert er spegli viðhorf til lífs- ins. „Kannski til tilvistarinn- ar,“ segir hann. „Það sem felst í þessum verkum fjall- ar iðulega bara um listina sjálfa. Þetta er eiginlega eintal listarinnar um það hvernig hún eigi að vera. Að því leyti er það kannski þólitík; þetta fjallar um samfélag og líf. Oft felst í verkunum einhver gagn- rýni á umhverfið og á sam- félagið án þess að vera meðvituð gagnrýni; ef það er ekki bara gert til að gleðja einhver augu. Þetta er framlag í einhverja um- ræðu um líf, uppruna manneskjunnar, tilveru og um svokallaða list sem ég veit ekki nákvæmlega hvað er.“ ÞRÓUN LISTARINNAR „List mín hefur leitað í það að hverfa og verða óefnis- kennd. Ég er kannski að leita að einhverjum tærleika sem er ólíkur þessum subbuskap sem er við gerð skúlptúranna. Ég hef lært ákveðna hluti og fengið þjálf- un í ákveðinni hugsun. List- sköpun mín hefur alltaf gengið í tímabilum með hlé- um á milli. Hún hefur gengið í feiknilegum sköpunartíma- bilum eða útrásartímabilum. Þegar ég var búinn að koma einhverju frá mér tók ég mér frí. Síðan hef ég oft, án þess beinlínis að ætla mér það, byrjað á einhverju öðru. Komið að verki frá einhverri annarri hlið sennilega vegna þess að ég var þá orðinn ieiður á þvi sem ég var bú- inn að vera að gera áður. Nennti því ekki og orðinn lat- menntaða listamenn og er- um þrautmenntaðir í því að fylgjast með list erum ekki nærri því eins tærir í þessari þörf. Þá er farið að blandast inn í þetta alls konar félags- legur metnaður sem alþýðu- listamennirnir eru svo bless- unarlega lausir við.“ Magnús segir að sér hundleiðist að búa til lista- verk en að sér finnist gaman GAGNRÝNI GETUR SKEMMT Allir listamenn þurfa að hlusta á gagnrýni og Magn- ús telur að gagnrýnandinn geti ákaflega sjaldan leið- beint því listamaðurinn sjálf- ur sé kominn það langt inn í það sem hann er að gera að það sé ákaflega hæpið að nokkur sem stendur fyrir ut- an geti leiðbeint honum. „Að ur. Stundum stóðu þessi tímabil yfir í 5 ár og svo gat kannski verið þriggja ára hlé þar sem ég gerði svo til ekk- ert. Þá vann ég bara við það að hafa ofan af fyrir mér. Vinna fyrir mér og fjölskyld- unni. Ég vann náttúrlega töluvert mikið við kennslu og vann við uppsetningu vöru- sýninga.“ HVERS VEGNA LIST? Þrátt fyrir margvíslegar og óhefðbundnar nýjungar í list- sköpun segist Magnús hafa mjög sterkar rætur í klass- ískri list. „Það er ekki hægt að slíta list neins samtíma úr tengslum við það sem á undan var. Allt byggist þetta á gömlum kúltúr." Hann segir jafnframt að best sé að spyrja alþýðulistamennina að því hvers vegna fólk þurfi að búa til listaverk. „Þeir hafa þessa sönnu þörf fyrir sköpun. Ómengaða innri þörf. Við hinir sem teljum okkur vera svokallaða að hafa gert það. „Mér finnst gaman að sjá það sem ég hef gert. Það er eitthvað gott við það. Það er eitthvað mont í þessu og maður montar sig af að hafa gert eitthvað. Ég held að menn geti ekkert að því gert að skapa listaverk. Þetta er hollt fyrir andlega lífið og til- finningalífið. Það felur í sér ákveðna þjálfun fyrir hug- ann, ákveðinn lærdóm og ákveðin viðhorf til umhverfis sem eru góð að kjarna til. Fyrir utan það er það mjög skemmtilegt viðfangsefni fyr- ir alla að hugsa um slíka hluti. Það er líka mjög gott að fást við ættfræði og slíkt en hún er kannski ekki eins tilfinningatengd eins og það að búa til listaverk eða skoða listaverk. Afstaða mín til listarinnar er einhver óþreyjuafstaða; óþolinmæði og einhver pirringur út af því að sjá kannski ekki eitthvað ferskt. Kannski yrði tilveran annars svo leiðinleg." vísu er hægt að benda Magnús manni á ákveðna hluti," segir a*. hann. „Gagnrýni getur nátt- störfum' úrlega verið eftirminnileg ef hún pirrar mann mikið. Það er mjög gott að gagnrýni, ef hún er góð, skuli vera til og kannski helst fyrir aðra en listamanninn sjálfan." Magn- ús neitar því ekki að illa skrif- uð gagnrýni geti skemmt fyr- ir listinni. „Negatív" umfjöllun hefur skemmt mikið fyrir list- inni á íslandi og náttúrlega ekki bara á íslandi. Slæm umfjöllun hefur á síðustu áratugum skemmt mjög mik- ið. Hún hefur lengi verið slæm og hefur farið illa með fólk. Skemmt það þannig að það getur ekki opnað sig fyrir ákveðnum góðum hlutum sem hefði verið gott fyrir fólk- ið að taka þátt í. Þannig hef- ur mikið af gagnrýni verið skaðleg. Eins og ég segi, ekki fyrir listamennina heldur fyrir fólk sem hefði kannski haft gagn af að verða þátt- takendur i þeirri list.“ □ 9. TBL. 1994 VIKAN 15 MYNDLIST

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.