Vikan


Vikan - 01.10.1994, Blaðsíða 62

Vikan - 01.10.1994, Blaðsíða 62
SOFN Örn býr ásamt eiginkonu sinni í einu húsanna á safnalóðinni. Þaó var byggt áriö 1902 og stóð þá á horni Laufásvegar og Hellustunds. „Þaö er ákaflega góður handi í þessu húsi,“ segir Örn. GENGIÐ í ÞAÐ HEILAGA Meira er um aö pör gangi í hjónaband í Árbæjarkirkju á veturna en á sumrin og Örn telur ástæöuna vera þá aö næöisamara er á veturna þar sem safniö er ekki opiö almenningi. „Ástæöur þess aö fólk giftir sig í svona gam- alli kirkju geta veriö margar," segir Örn. „Fólk getur meöal annars veriö meövitaöra um uppruna sinn og fortíð þegar þaö er aö hugsa um þessa hluti heldur en ella og auk þess er kirkjan hæfilega stór en hún tekur um þaö bil 60 manns í sæti. Þaö kemur fyrir aö í kirkjunni eru nokkr- ar athafnir á dag en svo koma tímar þegar ekki er ein einasta athöfn í lengri tíma. Kirkjan er í Árbæjarpresta- kalli þannig aö prófasturinn okkar, séra Guðmundur Þor- steinsson, og aðstoðarprest- ur hans sinna þessari kirkju. Hins vegar geta aliir fengið aö nota hana og ýmsir prest- ar nota kirkjuna við giftingar." HIÐ GAMLA BLÍFUR Örn og eiginkona hans búa í tveggja hæða húsi of- arlega á safnlóðinni. Þaö var byggt áriö 1902 og stóö þá á horni Laufásvegar og Hellu- sunds. „Ég kann ákaflega vel viö húsið og þaö er góð- ur andi í því," segir Örn. „Hannes Thorarensen byggöi það en hann og kona hans bjuggu í því til dauðadags og „Hæsnin hafa búsetu hérna allt árið eins og ég,“ segir Örn. 1 % s 1 ...... 'JM - þegar þau voru fallin frá keypti breska sendiráðið það og gaf hingað í safniö vegna þess aö Bretarnir voru ein- ungis aö sækjast eftir lóð- inni. Síðan hefur þaö veriö bústaöur borgarminjavarðar og núna ráðsmanns. Húsiö er ákaflega vel heppnaö aö öilu leyti. Það er hátt til lofts, herbergi eru öll björt og góö og þaö er í alla staði mjög heimilislegt og hlýlegt." í safnhúsunum eru gömul húsgögn sem hafa komið hvaðanæva af og er um aö ræöa hluti sem fólk gefur vegna þess aö þaö finnur að þeir eru einhvers viröi auk þess sem fólk veit af þeim á öruggum stað í safninu. „Þessi gömlu húsgögn hafa miklu sterkari karakter held- ur en þau húsgögn sem nú eru á boðstólum enda má segja að miklu meira hafi verið í þau lagt bæöi í vinnu og efni. Auk þess eru þau traustari aö öllu leyti. Þessi nýja bylgja í húsgögnum, þar sem markmiðið er aö hafa þau ódýr, gerir þaö að verkum að þau verða ein- faldari og eru ekki meö eins sterkan karakter." SUMIR KOMA ALDREI Örn segir aö yfir sumar- mánuöina séu það fyrst og fremst útlendingar sem heimsæki safnið á virkum dögum. „Aftur á móti er hér alltaf einhver sérstök dag- skrá um helgar. Ég get nefnt sem dæmi handverksdaga þar sem sýnt er gamalt handverk eins og járnsmíði, eldsmíöi, útskuröur, prjóna- skapur og vefnaöur. Einnig eru sérstakir sláttudagar en þá geta menn fengið aö spreyta sig á aö slá með orfi og Ijá, raka, snú.a og binda bagga. Ég hef séð ungt fólk koma hingað og slá eins og fjandinn væri á hælunum á því. Um helgar eru fornbíla- sýningar, danssýningar, tón- ieikar og fleira. íslendingar sækja þessa dagskrá fyrst og fremst. Þannig skiptist aðsóknin á milli íslendinga og útlendinga. Útlendingar koma mikið á virkum dögum en íslendingarnir koma aöal- lega til aö sjá þá dagskrá sem í boöi er og það er mest um helgar. Hins vegar eru náttúrlega margir sem koma aldrei. Oft hitti ég fólk sem segist hafa ætlað að koma í 30 ár en aldrei hafi oröiö af því. Safnið er við bæjardyrn- ar og þaö er ekkert sem rek- ur á eftir fólki aö fara í dag, á morgun eöa í næstu viku og þannig dregst þetta ár eftir ár og fólk fer kannski aldrei." □ 62 VIKAN 9. TBL. 1994
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.