Vikan


Vikan - 01.10.1994, Blaðsíða 37

Vikan - 01.10.1994, Blaðsíða 37
undurfögrum stað og sá lít- inn bláan fugl flögra á milli grænna greina í fögrum skógi. Ég þóttist viss um að nú kæmi lítill drengur í heim- inn en daginn, sem Pálmar var jarðsunginn, birtist á for- sfðu Morgunblaðsins mynd af litlum fugli á grein og var blámi himinsins allt um kring.“ En þótt sorgin hafi vitjað þeirra láta þau hana ekki ráða ríkjum og í veikindum Pálmars sýndu fjölskyldan og vinirnir hvað í þeim bjó. Tolli, vinur Pálmars, færði honum stórt málverk sem var honum augnayndi síð- ustu stundirnar. Þegar Matta vildi þakka honum fyrir mál- verkið svaraði Tolli glað- hlakkalega: „Hvað munar kartöflubóndann um tvö kíló af kartöflum." En engu að síður voru Matta og Ingimar honum innilega þakklát. „Ég hugsa um Pálmar á hverjum degi. Minnist þess hvað hann var góðgjarn maður og einnig man ég fyndnu atvikin eins og til dæmis þegar fyrstu Ástralíu- ferðinni okkar var að Ijúka. Eitt af síðustu kvöldunum vorum við stödd á Ítalíu og settumst enn einu sinni við borð á hótelinu okkar til að þanta okkur kvöldverð. Þá gerðist það að Pálmar stóð upp frá borðinu og sagði: „Ég er farinn upp að sofa. Þetta gengur ekki lengur, við verðum að spara." Matta rifjar upp liðnar stundir í faðmi fjölskyldunn- ar. „Allt getur gengið vel ef haldið er utan um verðmætin sín en þau tel ég vera heim- ilið, fjölskylduna og góða vini. Ég hef verið svo heppin. Ég vann í Leiklistarskóla ís- lands um fjögurra ára skeið fyrir nokkrum árum. Þessi tími var mér svo mikils virði og ef hægt er að tala um að þroskast á mínum aldri þá gerði ég það þarna, með þessu einstaka fólki. Bæði kennarar og nemendur höfðu svo mikil áhrif á mig, glöddu svo hjarta mitt.“ Gistiheimili þeirra Möttu og Ingimars er eitt af vinsæl- ustu heimagistingum í Reykjavík og þegar þeir, sem búa neðar í götunni, sjá glaðlega útlendinga ganga fram hjá er vitað mál að þar fara gestir þeirra hjóna. Það er ekki aðeins að þau vinni við þetta allan ársins hring heldur er þetta lífsstíll sem þau hafa tileinkað sér. Að veita af rausn og opna heim- ili sitt fyrir þeim sem koma hingað að skoða landið og dvelja hér um lengri eða skemmri tíma. Þau hjónin sinna gestum sínum af áhuga og finnst allir vera sérstakir og láta þá finna það á margvíslegan hátt. Ýmis tungumál eru töluð í eldhúsinu, ásamt fingramáli, handapati og ýmsum skrif- uðum táknum. Allir skilja hver annan nægilega vel og mikið er hlegið. „Já, það hefur margt verið brallað hér á Bugðulæk 13. „Brúðarsvítan" er skreytt ef einhver eyðir hveitibrauðs- dögunum hérna og við höf- um mjög gaman af að halda upp á hátíðardaga og gera okkur tilefni til að gleðjast og eru ótal tækifæri til þess sem við notum ósþart, höldum t.d. Þorrablót svo að eitthvað sé nefnt. Blm. Vikunnar á auðvelt með að skilja þetta því það er alltaf eins og að það sé hátíð á Bugðulæknum og er blm. kominn með matarást á Möttu eftir nokkrar heim- sóknir til hennar. Gestir ganga þar um eins og heima hjá sér. Sumir eru í mat, sumir ekki. Norskur dýra- læknir spjallar góða stund við blm. og húsráðendur en gefur sér einnig tíma til að leika við dóttursyni þeirra tvo. Svo eru teknar myndir af „strákunum" og þær sendar síðar til Noregs með kærri kveðju frá íslandi. Matta og Ingimar standa í garðinum á Bugðulæk 13. Þau hugsa hlýlega til ná- granna sinna allra í gegnum árin, ekki síst þeirra Þor- steins Gíslasonar og Ólínu Benediktsdóttur og þakka samveruna. Matta segist elska mannlífið, það sé það skemmtilegasta sem til sé og þegar á móti blási þá vegi alltaf eitthvað upp það sem miður fer, alltaf komi eitthvað í staðinn fyrir það sem glat- ast. „Ég á yndislega tengda- dóttur Hildi og lítinn sonar- son. Lífið heldur áfram og kemur okkur sífellt á óvart, þannig á það að vera .“ Það er sumar og það glamþar á augu barnanna og eins og Matta segir svo oft: „Alls staðar skein sól- in.“ □ Þroskaöa söngkonan meö barnslegu röddina. Rosa Ponselle var einstök. Plötur frá Nimbus-útgáfunni fást í Japis. VAR ROSA PONSELLE? TEXTI: ÓLAFUR SIGURÐSSON Það er illa farið með góðan söngvara ef hann neyðist til að syngja alltaf sömu verkin á sama stað og fær aðeins að taka upp hjá einu hljóm- plötufyrirtæki sem ræður allt- af öllu. Þetta kom fyrir hana Rosu Ponselle (1897-1981) sem söng þó svo ótrúlega vel að gagnrýnendur máttu hafa sig alla við að verða ekki of væmnir í dómum sínum um frammistöðu hennar. Hún var hinn sanni næturgali sem fékk fólk til að gleyma stund og stað. Hún átti stuttan feril, fékk oftar en ekki ómerkileg hlut- verk og hætti svo að syngja opinberlega þegar henni fannst þetta ekki lengur ómaksins vert. Síðan hafa margir harmað þann missi. Ferill hennar var á engan hátt venjulegur, hvorki hvern- ig hann byrjaði né hvernig hann endaði. Hún byrjaði 15 ára að syngja undir í fyrstu kvikmyndahúsunum, á tímum þöglu myndanna. Þegar hún var nýorðin 21 árs dró systir hennar hana með i söng- kennslu vorið 1918. Þá um haustið kom Enrico Caruso (mesti söngvari þeirri tíma) og heyrði hana syngja. Hann dreif Rosu til Metropolitan óperunnar þar sem hún var strax ráðin og söng mjög erfitt hlutverk með Caruso sjálfum. Það var ekki að því að spyrja, fagnaðarlætin keyrðu um þverbak og þannig varð það á hverri sýningu eftir það. Columbia plötufyrirtækið samdi við hana um plötuút- gáfu og fór fyrsta upptakan fram innan þriggja vikna frá frumraun hennar á Metropol- itan. Þar með var útséð um að tekin yrði upp söngur hennar og Carusos, þar sem hann var samningsbundinn öðru plötufyrirtæki. Raddblær hennar þótti svo ríkulegur að fólk fékk gæsahúð við að hlusta á söng hennar. Hin heims- fræga prima donna Geraldin Farrar skrifaði eitt sinn: „Þegar rætt er um söngvara, ber að taka Caruso og Rosu til hliðar og þá er hægt að byrja.“ Maria Callas heilsaði Rosu sem „mesta söngvara okkar allra.“ Pavarotti sagði hana að hún væri „Drottning söngdrottninganna". Stuttu áður en Puccini dó söng Rosa fyrir hann á heimili hans á Ítalíu. Að söng hennar loknum á einni aríu úr Toscu hélt Puccini um höfuð sér og sagði hljóð- lega: „Ef ég hefði aðeins heyrt í þér fyrr.“ Samt fékk Rosa aldrei að syngja verk eftir Puccini hjá Metrapolitan óperunni og þegar hún eitt sinn fékk ekki hlutverk, sem hún óskaði eftir hjá stjórn- anda Metrapolitan, sagði hún við aðstoðarstúlku sína eftir flutning á Carmen að hún færi aldrei framar á svið. Þá var Rosa 40 ára, árið 1937. Með útgáfu geislaplötu á söng Rosu hefur Nimbus fyr- irtækið gert almenningi mögulegt að hlusta á hana að nýju. Mörgum þykir sjálfsagt truflandi að þurfa að hlusta á lágt suð og aðrar truflanir af gömlu plötunum en það gleymist fljótt við hlustunina og þá koma töfrar söngsins í Ijós. Hafa þá margir fundið að þarna væri einhver mesta söngkona þessarar aldar að syngja, Rosa Ponselle. □ 9. TBL. 1994 VIKAN 37 SONGLIST
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.