Vikan - 01.10.1994, Blaðsíða 65
TEXTI: ÞORDIS BACHMANN
KVIKMYNDARINNAR UM LÖTU STELPUNA
orskastríöiö er í al-
gleymingi, Haukur
Morthens syngur um
eftirsótt íslandsmið og ríkis-
stjórn Hermanns Jónasson-
ar biðst lausnar vegna
háskalegrar verðbólguþró-
unar. í Vesturbænum situr
lítil stelpa á rúmstokk og les
bókina um lötu stelpuna,
hana Grétu. Þetta er hlýðin
og góð lítil stelpa, sem finnst
agalegt að hugsa til lötu
Grétu sem býr ein í hreysi úti
í skógi. Hjá Grétu er hirðu-
leysi og óþrifnaður allsráð-
andi. Eitt sinn kemur hún að
kisu sinni sem er að reyna
að ná sér í mjólk. Gréta rýk-
ur til og hendir kisu og alls
kyns hlutum út úr húsinu.
Þegar Gréta leggur sig til
svefns, ygglir sængin sig -
hún vill ekki liggja upp að
henni. Mýsnar koma fram
eftir að Gréta sofnar, þær
þrífast í skítnum og draga
fram xýlófón og dansa á
honum. Þegar kisa kemur
inn til að taka saman pjönkur
sínar hverfa mýsnar inn í
músarholur. Kisa yfirgefur
Grétu og allir húsmunir fara
á eftir henni. Gréta verður al-
ein eftir og húsið flýgur ofan
af henni líka. Hlutirnir finna
faliegt rjóður og húsið lendir.
Þegar Gréta kemur á vett-
vang verða stympingar sem
enda með því að hún lendir
ofan í þvottabala og henni er
þvegið hátt og lágt.
Litla stelpan í Vesturbæn-
um vex úr grasi og fer í ball-
ett í Þjóðleikhúsinu þar sem
kennararnir heita Fay Wern-
er og Colin Russel. Ballett-
inn á hug hennar allan og
þegar Colin hættir að kenna
á Islandi leggur hún land
undir táskó og fer til Osló, í
nám við norsku óperuna.
Næst liggur leiðin til London
og stelpan, sem nú er orðin
unglingur, segir við sjálfa sig
að hún geti að minnsta kosti
orðið góður kennari, hvað
sem öðru líði. í London
kemst hún að hjá góðum
kennara, Madame De Vos.
De Vos er svo góð að einn
nemenda hennar hefur verið
aðlaður fyrir framlag sitt til
dansins á Bretlandseyjum.
„Hún kenndi svo skemmti-
lega; vann persónulega með
hverjum og einum og þá
byrjaði ég að vaxa,“ segir
Guðbjörg Skúladóttir, fram-
leiðandi og höfundur dans-
myndarinnar um Lötu stelp-
una.
Eftir námið hjá De Vos
fékk Guðbjörg samning við
óperuna í Gautaborg um að
dansa þar til 45 ára aldurs.
27 ára tók hún sér frí og
dansaði í Frankfurt í eitt ár,
þar til fyrsta barnið vildi kom-
ast í heiminn. Eftir langa um-
hugsun ákvað Guðbjörg að
leggja dansskóna á hilluna
þegar þar var komið sögu.
„Ég var orðin þreytt eftir
þýsku vinnuhörkuna og
maðurinn minn var í þannig
starfi að hann hefði ekki get-
að elt mig lengur," segir hún.
Flökkulífinu var þó ekki lokið
vegna þess að Þórarinn,
maður Guðbjargar, tók að
sér starf í Bandaríkjunum
þar sem þau bjuggu næstu
árin.
í Bandaríkjunum var Guð-
björg „bara“ húsmóðir og
fékk óspart að heyra það frá
kunningjakonum sínum að
hana vantaði nú tómstunda-
gaman. Sjálf segist hún vera
manneskja með mikið af
draumum. „Einhverjir þeirra
eru kannski að rætast eftir
að hafa verið heima í áratug
að ala upp börn. Ég held að
það sé staða sem stórum
hópum fólks finnst lítið til
koma. Fólk segir: Ertu bara
heima? Ertu ekkert að
gera?“ Hugsanlega gerir hin
margfræga íslenska mann-
fæð það að verkum að fólk á
erfitt með að sjá nema eina
tegund lífsstíls fyrir sér.
Eftir að heim var komið lét
Guðbjörg gamlan draum
rætast og stofnaöi Klassíska
listdansskólann. „Ég er mjög
metnaðargjörn, svo það kom
mér á óvart hvað mér finnst
gaman að vinna með krökk-
unum. Ég finn að ég má
kona Guðbjargar, er lærður
pródúsent svo það var sjálf-
gefið að hún tæki að sér að
pródúsera, ásamt Agnari
Hreysi Grétu í skóginum.
draga úr þessum metnaði til
þess að kæfa ekki börnin en
það er svolítið erfitt af því að
ég vil fá hverja taug úr
þeim,“ viðurkennir hún.
Guðbjörg hugsaði sér
upphaflega að gera ball-
ettprógramm úr sögunni um
Lötu stelpuna. Smám saman
þróaðist hugmyndin yfir í
skemmtilega sögu í dans-
formi. Guðbjörg segist hafa
hugsað stíft um þetta verk-
efni I tvö ár en vinna við
myndina hófst í janúar á
þessu ári. „Kvikmyndagerð
er mikil vinna og heilmikið
taugastríð þótt áhorfandinn
sjái ekkert nema glæsilega
mynd,“ segir Guðbjörg.
„Fram til þessa hef ég alltaf
verið hinum megin við
myndavélina þegar ég hef
verið með í upptökum á
dönsum. Mér fannst þetta
mjög merkilegt og voðalega
spennandi fyrir mig að kynn-
ast þessu starfi.“
Svava Kjartansdóttir, mág-
Þóra Guöjohnsen í hlutverki
Grétu.
Loga Axelssyni en hann er
einnig klippari myndarinnar.
„Svo fékk ég tónlistarmann,
Martral Narteau, sem gerði
svo snilldarlega tónlist,“ seg-
KVIKMYNDIR