Vikan


Vikan - 01.10.1994, Qupperneq 28

Vikan - 01.10.1994, Qupperneq 28
o o < < V) tók fyrsta prófið í ágúst í ár. „Upphaflega heillaðist ég upp úr skónum af þessari listrænu, japönsku leið en mér gekk svo illa fyrstu þrjú árin að það var skelfilegt. Hver tími var alger pína. „Á ég að fara eða ekki? Nei, ég ætla að vera veik. Nei, ég verð að hundskast." Ég hafði enga hugmynd um hvar lík- aminn var staðsettur í ver- öldinni og í þokkabót á að anda í takt. Ég fékk ítrekað strenginn í eyrað og var farin að pæla í því hvort Japanir ættu ekki að hanna handa mér sérstaka eyrnahlíf. Eyr- að var eldrautt vikum sam- an, eftir því hvað ég skróþ- aði mikið. Svo kom ég aftur full af sektarkennd yfir því að hafa ekki mætt. Ég hugsaði með mér 150 sinnum: „Nei. Þetta er sjálfspíningarhvöt, þetta gengur ekki svona lengur, ég verð að hætta, ég get ekki verið þekkt fyrir að láta mig hafa þvílíka niður- lægingu í hverjum einasta tíma.“ Svona liðu þrjú ár. Ég hef aldrei lent í öðrum eins hremmingum. Mitt eigið aga- leysi stuðlaði að því að ég hélt áfram. Þetta var auðvit- að alger áskorun og ég ætl- aði ekki að láta þetta brjóta mig niður. Eftir að Avatar-að- ferðin kom til skjalanna tók ég ákvörðun um að nota hana á bogfimina og láta það skera úr um framhaldið. í Jaþan þykir þó ekkert óeðli- legt að taka 2 - 4 ár í að finna hvort leiðin henti. Þú ferð ekkert í tvo tíma og prófar. Þeir segja: „Komdu eftir svona fimm ár og þá sjáum við til.“ Þeir sem kenna Kyudo eru yfirleitt mjög vel efnaðir og þurfa ekki að vinna. Þeir geta stundað bogfimi alla daga vikunnar en hún er ákveðin leið til að upplifa sannleika, gæsku og fegurð. Þeir velja því þá nemendur sem þeir treysta til að viðhalda hefð- inni. Formið er afar strangt og engin frávik leyfð. Innan þessa stífleika eru þó ótrú- legir fagurfræðilegir mögu- leikarog efling á kieða innra krafti. Hvað það taki langan tíma að ná sæmilegri leikni? Svona tíu ár til að verða slarkfær, tuttugu ár til að ná grunntækninni." AVATARÆVINTÝRIÐ Fyrir þremur árum flaug Soffía á vit enn eins ævin- týris. Það nefnist Avatar en á Sanskrít merkir Avatar: Einstaklingur sem hefur náð ákveðnu stigi upphafningar og getur skapað vitund án hindrana. Sjálf kemur Soffía af svæði sem á sér engin landamæri og hefur enga mælanlega dýpt. „Allt líf sprettur úr vatninu," segir Kóraninn. Sem Fiskur fiskar Soffía eftir leyndardómnum um uppsprettu sjálfs lífsins. Það á því vel við að hún sé eini Avatarkenninn á ís- landi, því Avatar leggur áherslu á uþpsprettu hlut- anna. Námskeið og kynn- ingar eru haldin mánaðar- lega. Hvað er Avatar? „Avatar er stjórnun við- horfa á skapandi hátt, að- ferð til að öðlast samkennd með öllu og öllum. Avatar er mjög beinskeytt aðferð. Það er ekki tekið gilt að einhver annar beri ábyrgðina. Við erum öll samábyrg. í Avatar lærir fólk að skapa áður en það lærír að afmá. Við sköpum mögu- leika með því að trúa okkur inn í þá og leysum upp hindranir með því að upþlifa okkur út úr þeim. í íslensku þjóðarsálinni virðist vera mikill ótti við að skorta. Fyrir helgar fer fólk í stórmarkaði og fyllir þrjár körfur til þess að hafa nóg fram á mánudagsmorgun, þótt matvöruverslanir séu opnar alla daga vikunnar! Móðuharðindahugsunin er ennþá á sveimi. Avatar gæti hjálpað heilmikið til að leysa upp slík viðhorf og þau við- horf sem skaþa efnahags- legan samdrátt. Við teljum okkur vanhæf til þess að leysa okkar mál sjálf. Við treystum ekki á eigin menntun og færni. Alvarleg- ast er þó það viðhorf að efnahagslægðin sé óumflýj- anlegt lögmál. Við trúum því að við verðum að hafa það alveg djöfull skítt. Þá getum við upþlifað okkur samkvæmt þessum móðuharðindavið- horfum. Avatar bendir okkur á að ótti sé ekkert annað en sú trú að maður sé vanhæfur til þess að takast á við hlut- ina. Hér í Reykjavík erum við að þykjast vera voðalega menningarleg en höfum í rauninni ekki alla burði til þess að lifa í borgarsamfé- lagi. Hér vantar tengingu og samstillingu og hugsun fyrir heildina. Avatar gæti stuðlað að meiri samkennd og eðli- legri og meira gefandi sam- skiptum því Avatar er sam- úðarfull leið til að upplifa heiminn og annað fólk,“ seg- ir Soffía. Avatar fæst líka við að læra að fleygja hlutverka- grímunum sem fólk felur sig á bak við. „Það er allt í lagi að leika hlutverk, svo fram- arlega sem maður er meðvit- aður um það,“ segir hún. „Galdurinn er að vera ekki samsamaður hlutverkinu og telja það ekki vera mann sjálfan. Hvert hlutverk sem þú leikur er einungis hluti af þeim möguleikum sem þú hefur. Það er hægt að leika sér í umheiminum og skapa veröld sem þú og aðrir hafa ánægju af. Þín ánægja lyftir þá upp þeim sem eru í kring- um þig en er ekki á kostnað þeirra. Hugmyndin um tíund- ina var að láta hlutina flæða til hagsbóta fyrir samfélagið. Það er eðlilegt. Það er ekki eðlilegt að safna og safna þar til þú deyrð af ofáti. Það held ég að sé aðalmeinið í þjóðfélaginu. Það fer svo mikið inn en lítið út.“ ER AVATAR NÝALDAR- AFSPRENGI? „Ég kýs ekki að skilgreina mig innan nýaldarinnar. Nýöldin snýst um dulið ósjálfstæði en Avatar um sjálfstæði - að vera sjálfur uþþsgretta eigin lífs. í Ava- tar skaparðu sjálf markmið og skilgreinir þig samkvæmt þeim en ekki samkvæmt gömlum viðhorfum um sjálfa þig og hvað þú getir eða getir ekki. Um leið hættirðu að vera fortíðarfík- ill. Fortíðin hefur ekki lengur tök á þér vegna þess að þú hættir að skapa hana hér og nú. Fortíðin getur bara verið til ef þú kýst að halda henni við sem áhrifavaldi. Allir eiga „fortíð" en þú getur valið hvort hún er áhrifa- valdur eða ekki. Sá er mun- urinn.“ Hvernig virkar Avatar? „Maður notar aðferðina til þess að skaþa sjálfur eigin aðstæður og sakast ekki lengur við einn eða neinn. Maður hættir að eyða orku í hatur, óvild, pirring, allt sem truflar okkur í fari annarra og við sjáum ekki í eigin fari. Ef um er að ræða að- stæður sem þú vilt ekki upplifa eða viðhorf sem skapar ekki góða tilfinningu innra með þér, þá eyðirðu því. Tökum einhvern sem hef- ur gert þér grikk. Þú sérð hann í gegnum þennan grikk. Þú nærir óvildina til hans og grikkurinn verður að stóru fjalli sem er stærra en þú og verður alltaf á milli. Þú getur því ekki séð manneskj- una eins og hún er núna heldur bara eins og hún var. Eðlilega leiðir það af sér að hinn svarar þessum vænt- ingum þínum af mikilli skyldurækni. Svörunin er al- gerlega í samræmi við það viðhorf sem þú hefur til við- komandi manneskju. Það er þá okkar að leysa upp eigin sköpun - í samvinnu við hinn aðilann - þannig að hvor um sig sé 100% ábyrg- ur. Ef viðkomandi er ekki þess umkominn að taka ábyrgð er leiðin til samskipta opnuð á mjög mjúkan hátt án þess að skapa meiri átök. Það er stórkostlegt að finna að það er algerlega undir manni sjálfum komið hvernig maður upplifir fólk í kringum sig. Þetta verður auðveldara eftir því sem maður er þolin- móðari gagnvart sjálfum sér og ber meiri elsku til sín. Það er engin skylda að elska alla en þá hefurðu möguleik- ann á að vera hlutlaus." Soffía er á því að flest sé- um við þurfalingar á andlega og kærleikssviðinu. „Þegar kærleikurinn er ekki til staðar verður gap sem aldrei er hægt að fylla nema maður fylli það sjálfur innra með sér. Aðeins þú getur skapað þér þann veruleika að vera þér bæði móðir og faðir." Geta allir tileinkað sér Avatar? „Fólk þarf ekki að setja sig í neinar stellingar til að iðka Avatar og velur sér sjálft sín forgangsverkefni til að vinna að. Þú tekur fyrir þau svið í þínu lífi sem angra þig mest. Fólk getur notað þessa aðferð við hvaðeina sem það kýs að beina kröftum sínum að. Aðferðin kemur á móts við þarfir þeirra sem eru til- búnir að vaxa. Allar breyting- ar skapa ótta. Að vera tilbú- inn til að takast á við þann ótta eins og hvert annað við- horf breytir upplifuninni ger- samlega. Þú breytir viðhorf- inu og upplifunin breytist og aðstæður þá um leið.“ □ 28 VIKAN 9. TBL. 1994
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.