Vikan - 01.10.1994, Qupperneq 35
Hvar á eiginlega að
byrja frásögnina af
henni Möttu? Ætti
þaö aö vera af henni sem
barni á Skógarströnd og
vestur í Hrútafirði? Ættum
við ef til vill að staldra við og
heyra hana segja af ferða-
lögum sínum um heiminn
þveran og endilangan? Eða
biðja hana að segja okkur
frá Gistiheimili Mattheu þar
sem fjöldi útlendinga gistir
og nýtur gestrisni fjölskyld-
unnar, árið um kring? Eigum
við að biðja Möttu að segja
frá einkasyninum sem hún
varð að fylgja til grafar þegar
vorið brosti og skartaði sínu
fegursta? Eitt er víst að við-
ræðubetri manneskju er ekki
hægt að finna. Matta er op-
inská og vill segja okkur
sögu sína. Hún er fjörlegri I
fasi en flestir aðrir og að-
spurð um það segir hún að
hún sé svo þakklát fyrir það
sem hún hafi notið í lífinu og
ekki síst fyrir þennan ein-
dæma jafnlynda mann sem
hún hafi deilt lífinu með.
Maðurinn brosir en hann er
Ingimar Einarsson ættaður
úr Hrútafirði og var það sá
hinn sami er stóð í hlaðvarp-
anum „á sínum sauð-
skinnsskóm11 10 ára hnokki,
þegar Matta fluttist að Óspa-
ksstöðum, sjö ára gömul.
„Þetta var mikið átak ef
Matta tekur viö pöntun frá
Þjóöverja sem hún hefur
hýst þrisvar áöur.
miðað er við þær aðstæður
sem þá ríktu. Fara þurfti á
báti með búslóð og stórgripi
inn að Kambsnesi, sem er
innst í Hvammsfirði. Ég
minnist þess að ég var æði
hrædd við hávaðann í vél-
inni og hrópaði í sífellu „bara
róa, bara róa.“ Enn þann
dag í dag man ég hvað skyr-
ið var gott, með hnausþykk-
um rjóma, sem við fengum á
Skarði á leiðinni.
Við áttum góð ár í Hrúta-
firðinum og við leikfélagarnir
vorum saman öllum stund-
um. Þegar mæðiveikin geis-
aði yfir landið varð heimili
okkar fyrir stóru áfalli og urð-
um við faðir minn að leita
eftir vinnu og fengum vinnu
við fiskverkun í Njarðvíkum.
Var þetta æði kaldasamt
starf og fyrir kom að við
fengum volgt vatn til þess að
ylja á okkur fæturna. Ungl-
ingsárin liðu og leiðir okkar
leikfélaganna höfðu skilið
um nokkurra ára skeið en
tryggðaböndin höfðu ekki
rofnað og nýjar tilfinningar
gerðu vart við sig. Á blíðum
vordegi opinberuðum við trú-
lofun okkar og haustið á eftir
hélt ég að Varma-landi á
Húsmæðraskóla til undir-
búnings komandi framtíðar.
Við gengum í hjónaband
þann 27. október 1948 og fór
vígslan fram í stofunni á
Óspaksstöðum. Hún var afar
látlaus en hjónabandið varð
eigi að síður bæði farsælt og
haldgott.“
Matta og Ingimar búa við
götuna Bugðulæk í Reykja-
vík, í húsi númer 13. Bugðu-
lækurinn er lítil gata sem
liggur í boga milli Laugaiæks
og Rauðalæks. Garðarnir
við götuna eru gróskumiklir
og fallegir og margir, sem
búa hér, eru frumbyggjar
eins og Matta og Ingimar.
„Við fluttum hingað árið
1957 og með góðra manna
hjálp tókst okkur að koma
okkur fyrir hérna. Hér fædd-
ist yngsta barnið, hún Jó-
hanna en hún býr einnig í
húsinu á Bugðulæk 13 og
aðstoðar foreldra sína við
rekstur Gistiheimilisins."
Hvernig byrjaði þetta allt?
„Það leiddi svona eitt af
öðru. Eldri dóttir okkar, Guð-
rún, fluttist til Ástralíu árið
1969 og var okkur mikil eftir-
sjá í henni í fyrstu og sögðu
sumir að nú myndum við
ekki sjá hana meir. En ef til
vill hefur þetta að einhverju
leyti verið upphafið að ævin-
týrinu, því nú höfum við Ingi-
mar ferðast um heiminn
TEXTI: ANNA S. BJÖRNSDÓTTIR.
MYNDIR: HREINN HREINSSON
NO NAME
----COSMETICS-
ÚTSÖLUSTAÐIR:
REYKJAVÍK: Spes, Hóaleitisbraut • Oculus Austurstræti • Hárgreiðslust. Hótel Saga • Snyrtihús
Heiðars, Vesturgötu • Saloon Ritz, Laugavegi • Hárgreiðslust. Hótel Loftleiðum • Ingólfspotek,
Kringlunni • Verslunin 17, Laugavegi • Snyrtistofan Paradís, Laugarnesvegi • Snyrtistofan Fegrun,
Búðargerði • Snyrtist, Halldóru, Fannarfold • Hárgreiðslust. Prímadonna Grensásvegi • Jósefína,
Laugavegi • Conný, Laugavegi • Snyrtist. Asýnd, Starmýri • Hárþing, Pósthússtræti
KÓPVOGUR: Gott Útlit, Nýbýlavegi HAFNARFJÖRÐUR: Versl. Dísella, Miðvangi
MOSFELLSBÆR: Hárgreiðslust. Absalon KEFLAVÍK: Snyrtivöruversl. Smart AKRANES:
Versl. Perla BRÚ: Kaupfélag Hrútfirðinga EGILSSTAÐIR: Snyrtist. Ragnheiðar
NESKAUPSTAÐUR: Snyrtist. Rakel ÍSAFJÖRÐUR: Snyrtistofan Sóley • Verssl. Krisma
PATREKSFJÖRÐUR: Patreksapótek SELFOSS: Snyrtistofa Ólafar STYKKISHÓLMUR:
Hárgreiðslust. Maríu SIGLUFJÖRÐUR: Gallerý Heba SAUÐÁRKRÓKUR: Skagfirðingabúð
• Snyrtistofan Táin AKUREYRI: Vörusalan Betri Líðan • Snyrtistofan Evá • Verslunin Ynja
DALVÍK: Snyrtistofan Tanja HÚSAVÍK: Snyrtistofan Hilma VOPNAFJÖRÐUR: Lyfsalan
HÖFN: Snyrtistofa Ólafar HVERAGERÐI: Snyrtissstofa Löllu, Heilsustofnun NLFÍ
VESTMANNAEYJAR: Miðbær ÞÓRSHÖFN: Kaupfélag Langnesinga.
9. TBL. 1994 VIKAN 35
Ljósm: Grímur Bjarnason. Hár: Erla í Prímadonnu meó Daniel Galvin.